Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 24
Áætlað er að það þurfi að flytja inn vinnuafl fyrir að minnsta kosti 5.000 störf á næstu fjórum árum. Þetta kemur fram í Þjóðhagsspá greiningardeildar Arion banka, sem ber yfirskriftina Á fullu stími – forðumst skerin. Hrafn Steinarsson, sérfræðingur hjá greiningardeild­ inni, sagði á fundinum að þörf fyrir innflutning vinnuafls hefði aukist og þess væru þegar farin að sjást merki. Hrafn benti á að aukinn ferða­ mannastraumur til landsins yki eftirspurn eftir vinnuafli. „Við erum að sjá töluverðan vöxt í atvinnu­ greinum tengdum ferðaþjónustu,“ sagði Hrafn. Hann benti á að vöxturinn í ferðaþjónustutengd­ um greinum væri töluvert meiri en annars staðar. Sá vöxtur gæti skapað spennu á vinnumarkaði á næstu árum. Anna Hrefna Ingimundardóttir, samstarfskona Hrafns hjá grein­ ingar deildinni, sagði að búast mætti við fleiri útlendingum hingað í vinnu á næstunni. „Frá 2012 höfum við flutt inn vinnuafl og miðað við stöðuna gerum við ekki ráð fyrir öðru en að við höldum því áfram,“ sagði Anna Hrefna. Hún benti á að samkvæmt könnunum gerðu mun fleiri ráð fyrir því í september en í maí að þeir myndu fjölga starfsfólki á næstu sex mánuðum. Í máli Önnu Hrefnu kom fram að búist er við meiri hagvexti núna heldur en gert var ráð fyrir í júní. Mikill hagvöxtur var á öðrum fjórðungi og Anna Hrefna segir að vísbendingar séu um hið sama á þriðja fjórðungi. Greiningardeild Arion banka gerir því ráð fyrir að hagvöxtur í ár verði 5,4 prósent og verði þá mesti hagvöxtur frá árinu 2007. Svo er gert ráð fyrir að vöxturinn minnki jafnt og þétt til ársins 2018, en þá er gert ráð fyrir að hann verði 2,5 prósent. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að hagvöxturinn í ár og á næsta ári verði aðallega borinn uppi af einkaneyslu og fjárfestingu. Fjárfestingar í hótelum og kísil­ verum eiga mikinn þátt í atvinnu­ vegafjárfestingu, en einnig inn­ flutningur skipa og flugvéla. Anna Hrefna segist vonast til þess að íbúðafjárfesting fari að taka við sér vegna stöðunnar á markaði. „Það kom á óvart hvað tölurnar á fyrstu tveimur fjórðungum ársins í íbúðafjárfestingu voru slakar. Hugsanlega er einhver sam­ keppni við hótel þar um vinnuafl, fjármagn og aðföng,“ segir Anna Hrefna. Einnig kunni að vera að slæmt veðurfar á fyrsta fjórðungi hafi haft áhrif. Þurfum útlendinga í 5.000 störf Íslendingar hafa þurft erlent vinnuafl frá árinu 2012 og munu þurfa það áfram. Hagvöxtur verður yfir 5 prósent í ár, en mun svo minnka. Hugsanlegt að mikil fjárfesting í hótelum dragi úr íbúðafjárfestingu. Í ár 5,4% 2016 4,1% 2017 3,1% 2018 2,5% Spá um hagvöxt á Íslandi* *Skv. Þjóðhagsspá greiningardeildar Arion banka Greiningardeild Arion banka telur að aukinn ferðamannastraumur verði ein helsta driffjöður vaxtar í útflutningi á komandi árum. Þó er gert ráð fyrir að framlag utanríkisviðskipta verði lítillega neikvætt á næstu tveimur árum þar sem gert er ráð fyrir talsverðum vexti í innflutningi. Talið er að viðskiptajöfnuður verði engu að síður jákvæður á spátímabilinu, að gefnu föstu gengi. Viðskipti með bréf bílaframleið­ andans Ferrari hófust með látum í gær á hlutabréfamarkaðnum í New York. Hlutabréfaverðið hækkaði um 15,4% frá útboði og nam 60 doll­ urum, jafnvirði 7.500 íslenskra króna. Verðið lækkaði lítillega yfir daginn en hélst mjög hátt. Ferrari, sem er í eigu Fiat Chrysler, seldi 9% af hlutabréfum sínum á þriðju­ daginn til viðskipta á almennum markaði fyrir 893 milljónir dollara, jafnvirði 112 milljarða íslenskra króna. Því kostaði hver hlutur 52 dollara, eða 6.500 krónur. Hluta­ fjáreigendur Fiat Chrysler eiga eftirstandandi hlutinn í Ferrari en forstjóri fyrirtækisins, Sergio Marchionne, ákvað í fyrra að aðskilja Ferrari frá Fiat. – sg Ferrari fer á markað með látum Starbucks og Fiat Chrysler verður gert að endurgreiða 22 millj­ ónir punda, jafnvirði 4,3 milljarða íslenskra króna, í ógreidda skatta í Evrópu. Ástæða þess er að skattaafslættir, eða skattaskjól, sem fyrirtækin nýttu sér í Hollandi og Lúxemborg, hafa verið dæmd ólögleg. Starbucks hyggst kæra ákvörðunina. Forstjóri evrópska samkeppnis­ eftirlitsins, Margrethe Vestager, segir að skattaskjól séu ekki í sam­ ræmi við lög Evrópusambandsins, þau séu ólögleg. Hún segir að öll fyrirtæki, stór eða smá, alþjóðleg eða starfandi í einu landi, eigi að greiða sanngjarnan skatt. – sg Skulda á fimmta milljarð í skatt Búist er við mikilli fjárfestingu í hótelum á næstu árum. Sú fjárfesting kann að hafa áhrif á íbúðafjárfestingu. FréttaBlaðið/GVa Á sýningu sem fer fram í RAI-ráðstefnuhöllinni í Amsterdam í Hollandi þessa dagana er lögð áhersla á samgöngur og flutningaleiðir. Þar voru líka nýjustu bílar til sýnis. FréttaBlaðið/EPa Myndar ofurtrukk Frá 2012 höfum við flutt inn vinnuafl og miðað við stöðuna gerum við ekki ráð fyrir öðru en að við höldum því áfram. Anna Hrefna Ingimundardóttir, sérfræðingur greiningardeildar Arion banka Viðskipti 2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r24 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.