Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 88
Opið virka daga frá kl. 11 til 18
laugardaga frá kl. 11 til 17
sunnudaga frá 13 til 17
Sími 568 9512
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen)
afsláttur af öllum
skyrtum
60%
Troðfull
verslun af
merkjavöru!
40 - 70%
afsláttur
af öllum vörumOpið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, apr.–jún. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
54,0%
19,3%
FB
L
M
BL
Allt sem þú þarft ...
Á Vesturlöndum gerast nú víða spennandi hlutir í stjórnmálum. Í Bandaríkjunum fer eldri borgarinn Bernie Sanders
um sem öskrandi byltingarmaður,
boðar nýjar áherslur sem hingað
til hafa þótt helgispjöll þar í landi.
Mannsæmandi kjör fyrir almúgann
á kostnað hinna moldríku. Skandin
avískur sósíalismi er mantran og boð
skapurinn selst vel.
Í Stóra-Bretlandi hefur annað
gamalmenni, Jeremy Corbyn, tekið
stjórnartaumana í Verkamanna-
flokknum og þaðan hljóma svipuð
stef. Meira réttlæti, minni ójöfnuður
og útrýming fátæktar. Það er alþýðu-
bylting í loftinu.
Óvæntur sigur frjálslyndra í Kan-
ada er einnig í þessum sama anda.
Þar á nú að nota opinbert fé í fram-
kvæmdir, herða baráttuna gegn lofts-
lagsbreytingum, hækka skatta á hina
ríku og lækka á almúgann. Leiðtogi
frjálslyndra, sem nú er að verða for-
sætisráðherra þar í landi, ætlar að gera
það að sínu fyrsta embættisverki að
lögleiða kannabis. Fólk er að vakna.
Á Íslandi erum við svo líka í fínum
málum. Sjávarútvegur og ferðaþjón-
ustan mala gull og fá þar af leiðandi
að borga lægstu skattana. Ellilíf-
eyrisþegar lepja dauðann úr skel og
heilbrigðiskerfið er holað að innan.
Reyndir lögreglumenn eru með
helmingi lægri laun en nýútskrifaðir
prestar. Við viljum meiri útblástur og
fleiri dópista í fangelsi.
Íslensk stjórnmál snúast nú
um kaup og sölu á endurreistum
skrímslum hrunsins. Þau eru öðrum
þræði viðskiptabankar almennings
sem bjóða upp á lífstíðarfangelsi
okurvaxta, um leið og þeir eru fjár-
festingarbankar smjörkúka sem
maka krókinn á vildarkjörum lokaðra
hlutabréfaútboða. Það er veisla í gangi
en ég kýs að afþakka. Má ég frekar fá
einn góðan ellilífeyrisþega sem er til
í byltingu?
Það er veisla!
Frosta
Logasonar
Bakþankar
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja