Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 26
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Í framhaldi af grein Stefáns Jóns Hafstein sl. helgi blanda ég mér í umræðuna. Sem frambjóðandi 2012 bý ég yfir margs konar reynslu og stefnumótun sem á erindi til
lesenda Fbl. Hlutverk forsetans skilgreindi ég svona – og
tel orðin í góðu gildi:
Við viljum aukna bjartsýni og jafnrétti. Við viljum að
mannúð og heiðarleiki sé í fyrirrúmi. Við viljum sjá sann-
girni og ábyrgð í verki. Forseti Íslands er þjóðkjörinn
embættismaður sem heldur trúnað við kjósendur sína,
óháð stjórnmálaskoðunum þeirra, og leitast við að vinna
traust sem flestra landsmanna. Forsetinn getur stuðlað
að því sem við viljum með orðum og þeim gerðum er
ákvæði stjórnarskrár lýsa í heild sinni. Viðfangsefni for-
setans eru mörg og misflókin. Hann stuðlar að lýðræðis-
legum lausnum með sem mestum stuðningi í samfélaginu.
Hann sameinar í störfum sínum almenn stjórnmál í víðum
skilningi, önnur samfélagsmál, siðræna umræðu og sendi-
störf sem þjóðarfulltrúi í útlöndum. Hann eflir samstarf
við aðrar þjóðir.
Ég legg áherslu meðal annars á eftirfarandi atriði
Samræður milli þjóðfélagshópa um hag og framtíð sam-
félags okkar. Skilvirkt, fjölbreytt og einstaklingsmiðað
menntakerfi. Atvinnu og menningarstarf ungs fólks.
Styrka samhjálp handa öllum til heilbrigðs lífs án til-
lits til kyns, kynhneigðar eða húðlitar. Sérþekkingu vís-
indanna og nýsköpun. Jafnrétti og mannréttindi á grunni
Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna og fleiri
samþykkta.
Aukið viðnám gegn náttúruvá og áhrifum hlýnunar and-
rúmsloftsins. Blómlega landsbyggð og styrk bæjarfélög.
Sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Kynningu heima
og heiman á stöðu og eðli íslenskrar náttúru. Kynningu
heima og heiman á íslenskri og alþjóðlegri menningu.
Samræður sem flestra um framtíð veraldarinnar, frið,
frelsi og lýðræði. Öflugt samstarf Norðurlanda. Jafnræði
þjóða og allra trúarbragða og lífsskoðana. Aukin sam-
skipti við þróunarlönd. Sérstöðu Íslands í málefnum
heimskautasvæða. Lýðræðislegar ákvarðanir um helstu
samskipti við aðrar þjóðir.
Hlutverk forseta Íslands
Það er
tímabært að
innanríkis-
ráðherra
svari því
skýrt hvort
þetta sé
stefna
ríkisstjórn-
arinnar í
málefnum
innflytjenda,
hælisleit-
enda og allra
af erlendum
uppruna
sem hingað
leita.
Ari Trausti
Guðmundsson
jarðvísinda-
maður og rit-
höfundur
Jólatónleikar Pálma Gunnarssonar
ásamt Ragnheiði Gröndal í Eldborg Hörpu
19. desember kl. 21:00
Miðasala á harpa.is, tix.is og í síma 528 5050
Í tengslum við flóttamannaumræðuna, sem farið hefur hátt undanfarið, hefur töluverð umræða skap-ast um Útlendingastofnun. Í gær voru stofnuninni afhentar 10.000 undirskriftir sem safnast höfðu til stuðnings albanskri fjölskyldu sem fær ekki hæli hér á landi.
Fréttablaðið greindi frá nýju máli í gær sem snýr að
stofnuninni. Málavextir eru þeir að stofnunin fór þess
á leit við lögreglu að hún hæfi rannsókn á hjónabandi
fólks, nýbakaðra foreldra, frá Víetnam vegna gruns um að
það væri til málamynda. Rannsóknarbeiðnin var send til
lögreglu tveimur mánuðum áður en fólkið fékk sitt fyrsta
viðtal hjá stofnuninni.
Grunur Útlendingastofnunar er reistur á myndbandi
úr brúðkaupi hjónanna þar sem starfsmenn telja að
brúðinni hafi „liðið afar illa“. Auk þess fékk stofnunin
ábendingu frá Landspítalanum um að konan væri ung og
barnaleg og maðurinn óframfærinn.
Ef litið er fram hjá þessari vafasömu stjórnsýslu og
mögulegu broti á persónuverndarlögum af hálfu spítal-
ans, sem og þeirri undarlegu ályktun að óframfærið og
ungt fólk sé líklega ekki ástfangið, hlýtur að þurfa að setja
enn eitt spurningarmerkið við vinnubrögð Útlendinga-
stofnunar.
Í samtali við Fréttablaðið í dag segir lögfræðingur
stofnunarinnar að samkvæmt lögum beri að kanna hvort
um málamyndahjónaband sé að ræða ef annar einstak-
lingur í hjúskap er 24 ára eða yngri, líkt og raunin var í
umræddu tilfelli. Símtal spítalans hafi verið aukaatriði
þar sem grundvöllur athugunarinnar var aldur konunnar.
„Við förum bara eftir lögunum eins og þau standa, hvort
sem okkur líkar betur eða verr.“
Með auknum fjölda innflytjenda, hælisleitenda og
vinnuafls af erlendum uppruna hér þá þyngist starf
Útlendingastofnunar. Augljóslega. Og mistök geta orðið
við aukið álag. Mistök, séu þau viðurkennd og beðist
afsökunar á þeim, er hægt að fyrirgefa. En stofnunin
viðurkennir engin mistök heldur ítrekar að um góða
stjórnsýslu sé að ræða.
Það er merkilegur skilningur starfsmanna stofnunar
á lögunum, sem hlýtur að skrifast á stjórnanda hennar,
að þörf sé á lögreglurannsókn á hjónabandi áður en fyrir
liggur eitt einasta viðtal við hjónin sjálf. Í raun kristallast
í þessum skilningi sú tilfinning, sem þeir sem afhenda
stofnuninni undirskriftalista til stuðnings fjölskyldu
sem ekki fær að vera hér, hafa fyrir stofnuninni; að þar sé
unnið gegn því fólki sem á að þjónusta en ekki með því.
Illugi Jökulsson sem stóð fyrir undirskriftasöfnuninni,
sagði í samtali við Vísi að ef fólki blöskraði þá ættu opin-
berar stofnanir að leggja við hlustir. Undirskriftirnar og
gusturinn af vinnubrögðum Útlendingastofnunar undan-
farið gefa það bersýnlega til kynna að fólki blöskri.
Það er tímabært að innanríkisráðherra svari því skýrt
hvort þetta sé stefna ríkisstjórnarinnar í málefnum inn-
flytjenda, hælisleitenda og allra af erlendum uppruna sem
hingað leita. Stofnun sem segist bara vinna eftir lögum
lýtur stjórn yfirvalda og það hvernig hún túlkar lögin er á
ábyrgð ráðherra. Sé þetta ekki stefna stjórnarinnar þarf að
grípa til ráðstafana strax. En ef svo er þá er spurning hvort
innanríkisráðuneytið þurfi ekki að leggja við hlustir.
Fólki blöskrar
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð
SKOÐUN
Spurt að leikslokum
Stjórnarandstöðunni var heitt
í hamsi á Alþingi í gær undir
dagskrárliðnum Fundarstjórn
forseta en þar var kvartað sáran
yfir því að forsætisráðherra fengist
ekki til að ræða afnám verðtrygg-
ingarinnar. Forseti Alþingis þurfti
nokkrum sinnum að spila sóló á
bjölluna yfir saltvondum stjórnar-
andstæðingum. Helgi Hrafn Gunn-
arsson, þingmaður Pírata, sagði
meðal annars forsætisráðherra
gera lítið úr sjálfum sér sér með því
að þora ekki að taka umræðuna.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, benti
yfirvegað á að kjörtímabilinu væri
enn ekki lokið og nægur tími til að
ræða um afnám verðtryggingar.
Hjólin löngu farin að snúast
Undir sama dagskrárlið las for-
seti Alþingis upp tilkynningu frá
forsætisráðherra um að afnám
verðtryggingar væri á borði
fjármálaráðherra. Fréttablaðið
greindi frá því í apríl síðastliðn-
um að á borði fjármálaráðherra
væri engin áætlun um afnám
verðtryggingar, einungis áform
um að lengja lágmarkstíma
verðtryggðra lána og stytta
hámarkstíma þeirra. Ekki kemur
á óvart að forsætisráðherra sé á
flótta undan umræðu um afnám
verðtryggingar. Enda virðist ekki
standa til að leggja verðtrygg-
inguna fyrir róða.
stefanrafn@frettabladid
Halldór Baldursson 22-10-2015
Forseti
Íslands er
þjóðkjörinn
embættis-
maður sem
heldur
trúnað við
kjósendur
sína, óháð
stjórnmála-
skoðunum
þeirra, og
leitast við að
vinna traust
sem flestra
landsmanna.