Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 22.10.2015, Blaðsíða 56
| SMÁAUGLÝSINGAR | 16 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi Aðalskipulagsmál Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynntar lýsingar fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar: 1. Breyting á aðalskipulagi Gaulverjabæjarhrepps 2003-2015, Flóahreppi, á Galtastaða (lnr. 198977). Móttökustöð ISAVIA og frístundabyggð. Lýsing skipulagsverkefnis vegna breytingar á aðalskipulagi sem nær til hluta lands Galtastaða (lnr. 198977) í Flóahreppi. Landið er í eigu Isavia og er fyrirhugað að setja upp varamóttökuloftnet vegna flugfjarskipta flugumferðar auk þess sem einnig verður gert ráð fyrir byggingu 1-3 frístundahúsa. Landið, sem í heild er um 80 ha að stærð, er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði en með breytingu verður gert ráð fyrir 0,35 ha iðnaðarsvæði og 4,6 ha sem frístundabyggð. 2. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Iðnaðarsvæði sunnan við Árnes. Lýsing skipulagsverkefnis vegna breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepp á svæði sunnan við Árnes. Svæðið sem breytingin nær til er 39 ha að stærð og er í skilgreint sem blanda íbúðar- og landbúnaðarsvæðis (smábýli) en fyrirhugað er að breyta landnotkun í iðnaðarsvæði. Er þetta gert til samræmis við tillögu að breytingu að deiliskipulagi svæðisins sem er í vinnslu. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 3. Breyting á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Brekku, Bláskógabyggð. Landbúnaðarsvæði breytist í svæði fyrir frístundabyggð. Kynnt er tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem felur í sér að um 7 ha svæði í landi brekku sem afmarkast af Vallá, Kóngsvegi og landamörkum við Efri-Reyki breytist úr landbúnaðarsvæði í frístundabyggð. Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 4. Breyting á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012, Bláskógabyggð, á spildu úr landi Einiholts. Verslun- og þjónusta í stað landbúnaðarsvæðis/efnistökusvæðis. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar sem felur í sér að gert er ráð fyrir svæði fyrir verslun- og þjónustu á spildu úr landi Einiholts á svæði milli Einiholtslækjar og þjóðvegar, sunnan við bæjartorfu Einiholts. Fyrirhugað er að byggja upp gistiþjónustu fyrir ferðamenn. Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni. Deiliskipulagsmál Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni: 5. Deiliskipulag sem nær til lögbýlisins Ásborg í Ásahreppi auk tveggja spildna úr landi Áss 1. Lögð fram til kynningar lýsing deiliskipulags sem nær til hluta lands lögbýlsins Ásborg auk tveggja spildna úr landi Áss 1. Skipulagssvæðið er samtals um 60 ha að stærð og skiptist í þrjú aðskilin svæði sunnan og norðan við Ásveg nr. 275. Á hverri spildu verður heimilt að byggja íbúðarhús, bílskúr/gestahús og skemmu/útihús. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði enda gert ráð fyrir landbúnaðartengdri starfsemi á spildunum. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 6. Deiliskipulag frístundahúsalóðar á spildu úr landi Hagavíkur við Þingvallavatn, Grímsnes- og Grafningshreppi. Tillaga að deiliskipulagi 5.000 fm frístundahúsalóðar úr landi Tjarnarvíkur sem er um 37 spilda úr landi Hagavíkur við Þingval- lavatn þar sem heimilt verði að byggja frístundahús og aukahús. Hámarksnýtingarhlutfall er 0.03 (150 fm), þar af má aukahús að hámarki vera 40 fm. 7. Deiliskipulag verslunar- og þjónustulóðar á spildu úr landi Einiholts 1, Bláskógabyggð. Lagt fram tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis á spildu úr landi Einiholts 1 sem liggur milli Einiholtslækjar og Einiholtsvegar, suðvestan bæjartorfu Einiholts. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja 10 allt að 60 fm gistihús auk allt að 160 fm þjónustubyggingar. Breyting á aðalskipulagi svæðisins er auglýst samhliða. 8. Deiliskipulag fyrir Geysissvæðið í Haukadal, Bláskógabyggð. Hverasvæði og nánast umhverfi. Tillaga að deiliskipulagi fyrir Geysissvæðisins sem byggir á vinningstillögu í „Hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geyssisvæðisins í Haukadal“ sem haldin var 2013-2014. Megin svæði deiliskipulagsins verður hverasvæðið í kringum Geysi og Strokk en áhrifasvæði tillögunnar nær þó aðeins út yfir aðliggjandi svæði. 9. Breyting á deiliskipulagi Reykholts í Bláskógabyggð. Breyting á tengingu Lyngbrautar við þjóðveg Í breytingunni felst að hluti Lyngbrautar verði botnlangi út frá Biskupstungnabraut sem mun ná inn fyrir núverandi aðkomu að lóðinni Lyngbraut 5. Aðkoma að lóðunum Lyngbraut 1, 2, 3 og 5 verða frá þessum botnlanga, en ekki verður lengur hægt að aka um Lyngbraut að öðrum lóðum innan þéttbýlisins. Þá er einnig gert ráð fyrir að aðkoma að lóðinni Lyngbraut 5 frá Bjarkarbraut verði felld niður. Breytingin er gerð til samræmis við breytingu á aðalskipulagi sama svæðis sem nýlega tók gildi. 10. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Mýrarkots í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lækjarmýri, Álftamýri, Starmýri, Langamýri, Kringlumýri, Tjarnarmýri og Langholt. Tillaga sem felur í sér að stærð aukahúsa á frístundahúsalóðum Lækjarmýri, Álftamýri, Starmýri, Langamýri, Kringlumýri, Tjarnarmýri og Langholt í landi Mýrarkots megi vera allt að 40 fm í stað 25 fm eins og núverandi skilmálar deiliskipulagsins kveða á um. 11. Deiliskipulag fyrir Búrfellsvirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi ásamt umhverfisskýrslu. Tillaga að deiliskipulagi fyrir Búrfellsvirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, ásamt umhverfisskýrslu. Í tillögunni er gert ráð fyrir framkvæmdum við stækkun virkjunarinnar auk þess sem verið er að setja ramma utan um þau mannvirki sem þegar eru til staðar á svæðinu. Skipulagssvæðið er um 1.500 ha og nær yfir núverandi stöðvarhús, starfsmanna- og þjónustuhús, hesthús, golfvöll, tengivirki og Bjarnalón, sem er miðlunarlón virkjunarinnar. Skilgreindar eru námur og haugsvæði, núverandi og nýir vegir, byggingareitir fyrir vinnubúðir,veitu og stöðvarmannvirki. Einnig er gert ráð fyrir lóð fyrir léttan iðnað, t.d. verkstæði, smiðju eða gagnaver en sú framkvæmd er ekki háð stækkun virkjunar. Gert er ráð fyrir að vatn verði tekið úr inntakslóni Búrfellsvirkjunar og leitt um aðrennslisskurð fram á brún Sámsstaðaklifs að stöðvarinntaki. Þaðan verða göng að neðan- jarðarstöðvarhúsi og frárennslisgöng og frárennslisskurður frá stöðvarhúsi út í Fossá. 12. Deiliskipulag fyrir 22,7 ha spildu sem kallast Hrútur 2 úr landi Hrútshaga í Ásahreppi. Lögð fram tillaga deiliskipulags fyrir 22,7 ha spildu úr landi Hrútshaga og liggur upp að Bugavegi. Ný spilda kallast Hrútur 2 og er fyrirhugað að byggja þar íbúðarhús, gestahús og útihús á tveimur afmörkuðum byggingarreitum. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifsto- futíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.sbf.is. Skipulagstillögur nr. 1 – 3 og nr. 5 eru í kynningu frá 23. október til 4. nóvember 2015 en tillögur nr. 4 og nr. 6 - 12 frá 23. október til 4. desember 2015. Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 1 – 3 og nr. 5 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 4. nóvember 2015 en 4. desember fyrir tillögur nr. 4 og nr. 6 - 12. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi petur@sudurland.is ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Nýr Landspítali við Hringbraut Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel Útboð nr. 20176 Umsjón og eftirlit með framkvæmdum Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Nýs Landspítala ohf. (NLSH) óskar eftir tilboðum í umsjón, eftirlit og byggingarstjórn með verkinu „Nýr Landspítali við Hringbraut – Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel“, framkvæmd samkvæmt útboði nr. 20116. Verkefnið felst í að hafa umsjón og eftirlit, ásamt að gegna hlutverki byggingarstjóra sbr. 28. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, með útboðsverki nr. 20116, „Nýr Landspítali við Hringbraut - Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel“. Verkkaupi metur umfang verkefnisins við umsjón, eftirlit og byggingarstjórn vera 3000 klst. og skal tilboðið miða við það. Verkframkvæmdin er hluti af heildarverkefni nýs Landspítala við Hringbraut. Verkhluti GVL: Götur, veitur og lóð, þar með talið eru tengigangar milli bygginga og hluti jarðvinnu fyrir sjúkrahótelið. Verkhluti SJH: Sjúkrahótel og hluti jarðvinnu. Það mun rísa norður af C-álmu Kvennadeildar. Hótelið mun tengjast Barnaspítala / Kvenna- deild um tengigang í kjallara. Í húsinu eru 75 hótelherbergi. Nánari lýsing verkhluta er í nefndum útboðsgögnum fyrir verkframkvæmd, útboð nr. 20116. Verkinu öllu skal vera að fullu lokið í 1. júní 2017. Áfangaskil eru 1. júní 2016 og 15. mars 2017. Útboðsgögn verða til sölu á kr. 3500 hjá Ríkiskaupum, Borgar- túni 7C, 105 Reykjavík frá og með fimmtudeginum 22. október 2015. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, þriðjudag 10. nóvember 2015 kl. 10:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. www.gardabaer.is Bæjarstjórn Garðabæjar hefur í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr.123/2010 samþykkt lýsingu á gerð breytingar aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 og á breytingu deiliskipulags Kauptúns. Breytingin nær til lóðanna Kauptún 1, 2 og 3. Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar og í þjónustuveri á meðan að skipulagsferlið fer fram. Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagstjóri LÝSING Á BREYTINGU Á AÐALSKIPULAGI GARÐABÆJAR 2004-2016 OG Á BREYTINGU Á DEILISKIPULAGS KAUPTÚNS Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.