Fréttablaðið - 22.10.2015, Qupperneq 56
| SMÁAUGLÝSINGAR | 16
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL
Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi,
Skeiða-og Gnúpverjahreppi, Flóahreppi og Ásahreppi
Aðalskipulagsmál
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynntar lýsingar fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:
1. Breyting á aðalskipulagi Gaulverjabæjarhrepps 2003-2015, Flóahreppi, á Galtastaða (lnr. 198977). Móttökustöð ISAVIA
og frístundabyggð.
Lýsing skipulagsverkefnis vegna breytingar á aðalskipulagi sem nær til hluta lands Galtastaða (lnr. 198977) í Flóahreppi. Landið
er í eigu Isavia og er fyrirhugað að setja upp varamóttökuloftnet vegna flugfjarskipta flugumferðar auk þess sem einnig verður
gert ráð fyrir byggingu 1-3 frístundahúsa. Landið, sem í heild er um 80 ha að stærð, er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði
en með breytingu verður gert ráð fyrir 0,35 ha iðnaðarsvæði og 4,6 ha sem frístundabyggð.
2. Breyting á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016. Iðnaðarsvæði sunnan við Árnes.
Lýsing skipulagsverkefnis vegna breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepp á svæði sunnan við Árnes. Svæðið sem
breytingin nær til er 39 ha að stærð og er í skilgreint sem blanda íbúðar- og landbúnaðarsvæðis (smábýli) en fyrirhugað er að
breyta landnotkun í iðnaðarsvæði. Er þetta gert til samræmis við tillögu að breytingu að deiliskipulagi svæðisins sem er í
vinnslu.
Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
3. Breyting á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Brekku, Bláskógabyggð. Landbúnaðarsvæði breytist í svæði
fyrir frístundabyggð.
Kynnt er tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem felur í sér að um 7 ha svæði í landi brekku sem afmarkast af Vallá, Kóngsvegi
og landamörkum við Efri-Reyki breytist úr landbúnaðarsvæði í frístundabyggð.
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
4. Breyting á aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012, Bláskógabyggð, á spildu úr landi Einiholts.
Verslun- og þjónusta í stað landbúnaðarsvæðis/efnistökusvæðis.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar sem felur í sér að gert er ráð fyrir svæði fyrir verslun- og þjónustu á
spildu úr landi Einiholts á svæði milli Einiholtslækjar og þjóðvegar, sunnan við bæjartorfu Einiholts. Fyrirhugað er að byggja upp
gistiþjónustu fyrir ferðamenn. Tillaga að deiliskipulagi svæðisins er auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni.
Deiliskipulagsmál
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing fyrir eftirfarandi deiliskipulagsverkefni:
5. Deiliskipulag sem nær til lögbýlisins Ásborg í Ásahreppi auk tveggja spildna úr landi Áss 1.
Lögð fram til kynningar lýsing deiliskipulags sem nær til hluta lands lögbýlsins Ásborg auk tveggja spildna úr landi Áss 1.
Skipulagssvæðið er samtals um 60 ha að stærð og skiptist í þrjú aðskilin svæði sunnan og norðan við Ásveg nr. 275. Á hverri
spildu verður heimilt að byggja íbúðarhús, bílskúr/gestahús og skemmu/útihús. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem
landbúnaðarsvæði enda gert ráð fyrir landbúnaðartengdri starfsemi á spildunum.
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:
6. Deiliskipulag frístundahúsalóðar á spildu úr landi Hagavíkur við Þingvallavatn, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Tillaga að deiliskipulagi 5.000 fm frístundahúsalóðar úr landi Tjarnarvíkur sem er um 37 spilda úr landi Hagavíkur við Þingval-
lavatn þar sem heimilt verði að byggja frístundahús og aukahús. Hámarksnýtingarhlutfall er 0.03 (150 fm), þar af má aukahús að
hámarki vera 40 fm.
7. Deiliskipulag verslunar- og þjónustulóðar á spildu úr landi Einiholts 1, Bláskógabyggð.
Lagt fram tillaga að deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis á spildu úr landi Einiholts 1 sem liggur milli Einiholtslækjar og
Einiholtsvegar, suðvestan bæjartorfu Einiholts. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja 10 allt að 60 fm gistihús auk allt að
160 fm þjónustubyggingar. Breyting á aðalskipulagi svæðisins er auglýst samhliða.
8. Deiliskipulag fyrir Geysissvæðið í Haukadal, Bláskógabyggð. Hverasvæði og nánast umhverfi.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Geysissvæðisins sem byggir á vinningstillögu í „Hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun
Geyssisvæðisins í Haukadal“ sem haldin var 2013-2014. Megin svæði deiliskipulagsins verður hverasvæðið í kringum Geysi og
Strokk en áhrifasvæði tillögunnar nær þó aðeins út yfir aðliggjandi svæði.
9. Breyting á deiliskipulagi Reykholts í Bláskógabyggð. Breyting á tengingu Lyngbrautar við þjóðveg
Í breytingunni felst að hluti Lyngbrautar verði botnlangi út frá Biskupstungnabraut sem mun ná inn fyrir núverandi aðkomu að
lóðinni Lyngbraut 5. Aðkoma að lóðunum Lyngbraut 1, 2, 3 og 5 verða frá þessum botnlanga, en ekki verður lengur hægt að aka
um Lyngbraut að öðrum lóðum innan þéttbýlisins. Þá er einnig gert ráð fyrir að aðkoma að lóðinni Lyngbraut 5 frá Bjarkarbraut
verði felld niður. Breytingin er gerð til samræmis við breytingu á aðalskipulagi sama svæðis sem nýlega tók gildi.
10. Breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Mýrarkots í Grímsnes- og Grafningshreppi. Lækjarmýri, Álftamýri, Starmýri,
Langamýri, Kringlumýri, Tjarnarmýri og Langholt.
Tillaga sem felur í sér að stærð aukahúsa á frístundahúsalóðum Lækjarmýri, Álftamýri, Starmýri, Langamýri, Kringlumýri,
Tjarnarmýri og Langholt í landi Mýrarkots megi vera allt að 40 fm í stað 25 fm eins og núverandi skilmálar deiliskipulagsins
kveða á um.
11. Deiliskipulag fyrir Búrfellsvirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi ásamt umhverfisskýrslu.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Búrfellsvirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, ásamt umhverfisskýrslu. Í tillögunni er gert ráð fyrir
framkvæmdum við stækkun virkjunarinnar auk þess sem verið er að setja ramma utan um þau mannvirki sem þegar eru til
staðar á svæðinu. Skipulagssvæðið er um 1.500 ha og nær yfir núverandi stöðvarhús, starfsmanna- og þjónustuhús, hesthús,
golfvöll, tengivirki og Bjarnalón, sem er miðlunarlón virkjunarinnar. Skilgreindar eru námur og haugsvæði, núverandi og nýir
vegir, byggingareitir fyrir vinnubúðir,veitu og stöðvarmannvirki. Einnig er gert ráð fyrir lóð fyrir léttan iðnað, t.d. verkstæði,
smiðju eða gagnaver en sú framkvæmd er ekki háð stækkun virkjunar. Gert er ráð fyrir að vatn verði tekið úr inntakslóni
Búrfellsvirkjunar og leitt um aðrennslisskurð fram á brún Sámsstaðaklifs að stöðvarinntaki. Þaðan verða göng að neðan-
jarðarstöðvarhúsi og frárennslisgöng og frárennslisskurður frá stöðvarhúsi út í Fossá.
12. Deiliskipulag fyrir 22,7 ha spildu sem kallast Hrútur 2 úr landi Hrútshaga í Ásahreppi.
Lögð fram tillaga deiliskipulags fyrir 22,7 ha spildu úr landi Hrútshaga og liggur upp að Bugavegi. Ný spilda kallast Hrútur 2 og
er fyrirhugað að byggja þar íbúðarhús, gestahús og útihús á tveimur afmörkuðum byggingarreitum.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifsto-
futíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á vefslóðinni http://www.sbf.is.
Skipulagstillögur nr. 1 – 3 og nr. 5 eru í kynningu frá 23. október til 4. nóvember 2015 en tillögur nr. 4 og nr. 6 - 12 frá 23. október
til 4. desember 2015. Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 1 – 3 og nr. 5 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 4.
nóvember 2015 en 4. desember fyrir tillögur nr. 4 og nr. 6 - 12. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Pétur Ingi Haraldsson
Skipulagsfulltrúi
petur@sudurland.is
ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Nýr Landspítali við Hringbraut
Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel
Útboð nr. 20176
Umsjón og eftirlit með framkvæmdum
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Nýs Landspítala ohf.
(NLSH) óskar eftir tilboðum í umsjón, eftirlit og byggingarstjórn
með verkinu „Nýr Landspítali við Hringbraut – Götur, veitur,
lóð og sjúkrahótel“, framkvæmd samkvæmt útboði nr. 20116.
Verkefnið felst í að hafa umsjón og eftirlit, ásamt að gegna
hlutverki byggingarstjóra sbr. 28. gr. laga um mannvirki
nr. 160/2010, með útboðsverki nr. 20116, „Nýr Landspítali
við Hringbraut - Götur, veitur, lóð og sjúkrahótel“.
Verkkaupi metur umfang verkefnisins við umsjón, eftirlit og
byggingarstjórn vera 3000 klst. og skal tilboðið miða við það.
Verkframkvæmdin er hluti af heildarverkefni nýs Landspítala
við Hringbraut.
Verkhluti GVL:
Götur, veitur og lóð, þar með talið eru tengigangar milli
bygginga og hluti jarðvinnu fyrir sjúkrahótelið.
Verkhluti SJH:
Sjúkrahótel og hluti jarðvinnu. Það mun rísa norður af C-álmu
Kvennadeildar. Hótelið mun tengjast Barnaspítala / Kvenna-
deild um tengigang í kjallara. Í húsinu eru 75 hótelherbergi.
Nánari lýsing verkhluta er í nefndum útboðsgögnum fyrir
verkframkvæmd, útboð nr. 20116.
Verkinu öllu skal vera að fullu lokið í 1. júní 2017.
Áfangaskil eru 1. júní 2016 og 15. mars 2017.
Útboðsgögn verða til sölu á kr. 3500 hjá Ríkiskaupum, Borgar-
túni 7C, 105 Reykjavík frá og með fimmtudeginum 22. október
2015.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, þriðjudag 10. nóvember
2015 kl. 10:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
www.gardabaer.is
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur í samræmi við
1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr.
skipulagslaga nr.123/2010 samþykkt lýsingu
á gerð breytingar aðalskipulagi Garðabæjar
2004-2016 og á breytingu deiliskipulags
Kauptúns. Breytingin nær til lóðanna
Kauptún 1, 2 og 3.
Lýsingin er aðgengileg á heimasíðu
Garðabæjar og í þjónustuveri á meðan að
skipulagsferlið fer fram.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagstjóri
LÝSING Á BREYTINGU Á
AÐALSKIPULAGI
GARÐABÆJAR 2004-2016
OG Á BREYTINGU Á
DEILISKIPULAGS KAUPTÚNS
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is