Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 24
Áætlað er að það þurfi að flytja
inn vinnuafl fyrir að minnsta kosti
5.000 störf á næstu fjórum árum.
Þetta kemur fram í Þjóðhagsspá
greiningardeildar Arion banka,
sem ber yfirskriftina Á fullu stími –
forðumst skerin. Hrafn Steinarsson,
sérfræðingur hjá greiningardeild
inni, sagði á fundinum að þörf fyrir
innflutning vinnuafls hefði aukist
og þess væru þegar farin að sjást
merki.
Hrafn benti á að aukinn ferða
mannastraumur til landsins yki
eftirspurn eftir vinnuafli. „Við erum
að sjá töluverðan vöxt í atvinnu
greinum tengdum ferðaþjónustu,“
sagði Hrafn. Hann benti á að
vöxturinn í ferðaþjónustutengd
um greinum væri töluvert meiri
en annars staðar. Sá vöxtur gæti
skapað spennu á vinnumarkaði á
næstu árum.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
samstarfskona Hrafns hjá grein
ingar deildinni, sagði að búast mætti
við fleiri útlendingum hingað í
vinnu á næstunni. „Frá 2012 höfum
við flutt inn vinnuafl og miðað við
stöðuna gerum við ekki ráð fyrir
öðru en að við höldum því áfram,“
sagði Anna Hrefna. Hún benti á að
samkvæmt könnunum gerðu mun
fleiri ráð fyrir því í september en í
maí að þeir myndu fjölga starfsfólki
á næstu sex mánuðum.
Í máli Önnu Hrefnu kom fram
að búist er við meiri hagvexti
núna heldur en gert var ráð fyrir í
júní. Mikill hagvöxtur var á öðrum
fjórðungi og Anna Hrefna segir að
vísbendingar séu um hið sama á
þriðja fjórðungi. Greiningardeild
Arion banka gerir því ráð fyrir að
hagvöxtur í ár verði 5,4 prósent
og verði þá mesti hagvöxtur frá
árinu 2007. Svo er gert ráð fyrir
að vöxturinn minnki jafnt og þétt
til ársins 2018, en þá er gert ráð
fyrir að hann verði 2,5 prósent.
Greiningardeildin gerir ráð fyrir
að hagvöxturinn í ár og á næsta
ári verði aðallega borinn uppi af
einkaneyslu og fjárfestingu.
Fjárfestingar í hótelum og kísil
verum eiga mikinn þátt í atvinnu
vegafjárfestingu, en einnig inn
flutningur skipa og flugvéla. Anna
Hrefna segist vonast til þess að
íbúðafjárfesting fari að taka við
sér vegna stöðunnar á markaði.
„Það kom á óvart hvað tölurnar á
fyrstu tveimur fjórðungum ársins
í íbúðafjárfestingu voru slakar.
Hugsanlega er einhver sam
keppni við hótel þar um vinnuafl,
fjármagn og aðföng,“ segir Anna
Hrefna. Einnig kunni að vera að
slæmt veðurfar á fyrsta fjórðungi
hafi haft áhrif.
Þurfum útlendinga í 5.000 störf
Íslendingar hafa þurft erlent vinnuafl frá árinu 2012 og munu þurfa það áfram. Hagvöxtur verður yfir
5 prósent í ár, en mun svo minnka. Hugsanlegt að mikil fjárfesting í hótelum dragi úr íbúðafjárfestingu.
Í ár
5,4%
2016
4,1%
2017
3,1%
2018
2,5%
Spá um hagvöxt á Íslandi*
*Skv. Þjóðhagsspá
greiningardeildar
Arion banka
Greiningardeild Arion banka telur að aukinn ferðamannastraumur verði ein helsta driffjöður vaxtar í útflutningi á
komandi árum. Þó er gert ráð fyrir að framlag utanríkisviðskipta verði lítillega neikvætt á næstu tveimur árum þar
sem gert er ráð fyrir talsverðum vexti í innflutningi. Talið er að viðskiptajöfnuður verði engu að síður jákvæður á
spátímabilinu, að gefnu föstu gengi.
Viðskipti með bréf bílaframleið
andans Ferrari hófust með látum
í gær á hlutabréfamarkaðnum í
New York.
Hlutabréfaverðið hækkaði um
15,4% frá útboði og nam 60 doll
urum, jafnvirði 7.500 íslenskra
króna. Verðið lækkaði lítillega yfir
daginn en hélst mjög hátt. Ferrari,
sem er í eigu Fiat Chrysler, seldi
9% af hlutabréfum sínum á þriðju
daginn til viðskipta á almennum
markaði fyrir 893 milljónir
dollara, jafnvirði 112 milljarða
íslenskra króna.
Því kostaði hver hlutur 52
dollara, eða 6.500 krónur. Hluta
fjáreigendur Fiat Chrysler eiga
eftirstandandi hlutinn í Ferrari
en forstjóri fyrirtækisins, Sergio
Marchionne, ákvað í fyrra að
aðskilja Ferrari frá Fiat. – sg
Ferrari fer á
markað með
látum
Starbucks og Fiat Chrysler verður
gert að endurgreiða 22 millj
ónir punda, jafnvirði 4,3 milljarða
íslenskra króna, í ógreidda skatta í
Evrópu.
Ástæða þess er að skattaafslættir,
eða skattaskjól, sem fyrirtækin
nýttu sér í Hollandi og Lúxemborg,
hafa verið dæmd ólögleg. Starbucks
hyggst kæra ákvörðunina.
Forstjóri evrópska samkeppnis
eftirlitsins, Margrethe Vestager,
segir að skattaskjól séu ekki í sam
ræmi við lög Evrópusambandsins,
þau séu ólögleg. Hún segir að öll
fyrirtæki, stór eða smá, alþjóðleg eða
starfandi í einu landi, eigi að greiða
sanngjarnan skatt. – sg
Skulda á fimmta
milljarð í skatt
Búist er við mikilli fjárfestingu í hótelum á næstu árum. Sú fjárfesting kann að hafa
áhrif á íbúðafjárfestingu. FréttaBlaðið/GVa
Á sýningu sem fer fram í RAI-ráðstefnuhöllinni í Amsterdam í Hollandi þessa dagana er lögð áhersla á samgöngur og flutningaleiðir. Þar voru líka nýjustu bílar til sýnis. FréttaBlaðið/EPa
Myndar ofurtrukk
Frá 2012 höfum við flutt inn
vinnuafl og miðað við stöðuna
gerum við ekki ráð fyrir öðru en að við
höldum því áfram.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
sérfræðingur greiningardeildar Arion banka
Viðskipti
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r24 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð