Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 18
Samfélag Rúmlega fjögur hundruð
börn á aldrinum12 til 18 ára í alvar-
legum hegðunar- og/eða vímuefna-
vanda hafa byrjað í svokallaðri
fjölkerfameðferð (MST) á vegum
Barnaverndarstofu. Um þrjú hundruð
og fimmtíu þeirra hafa lokið með-
ferðinni og flest með góðum árangri.
Fer fram á heimili barnsins
„Ein helsta ástæða þess að Barna-
verndarstofa ákvað að innleiða með-
ferðina hér á landi árið 2008 var að
gera meðferð hegðunar- og vímu-
efnavanda unglinga í nærumhverfi
aðgengilega og draga úr þörf fyrir
vistun utan heimilis,“ segir Halldór
Hauksson, sálfræðingur og sviðsstjóri
meðferðar- og fóstursviðs hjá Barna-
verndarstofu. Hann segir MST miða
að því að efla bjargráð foreldra og í
nærumhverfi, draga úr vandanum og
auka styrkleika svo barnið þurfi ekki
neyðarvistun. Meðferðin fer fram á
heimili barnsins. Þerapisti hittir for-
eldra (og stundum barn) á heimili
þeirra eftir samkomulagi og þá hafa
foreldrar aðgengi að honum í síma
allan sólarhringinn. Meðferðin tekur
um fjóra til fimm mánuði.
Árangur á öllum sviðum
Í nýrri skýrslu til velferðarráðuneytis
um árangur MST var skoðaður hópur
218 barna þar sem 18 mánuðir voru
liðnir frá lokum meðferðar. Við
upphaf meðferðar voru tólf af rúm-
lega tvö hundruð börnum í skóla
eða vinnu. Við lok meðferðar voru
82% þeirra komin í skóla eða vinnu,
eða 178 börn. Börn sem beittu ekki
ofbeldi eða hótunum um slíkt voru
67 við upphaf meðferðar en 198 í lok
meðferðar. Þá notuðu 90% barnanna
ekki vímuefni og misnotuðu ekki
áfengi eftir meðferðina. Einnig dró
umtalsvert úr lögregluafskiptum.
Staðan við lok meðferðar er metin
út frá upplýsingum frá lögreglu, skóla,
foreldrum og starfsmönnum Barna-
verndarstofu sem tengjast ekki MST.
Á fjórða hundrað börnum í
bráðavanda komið til bjargar
Tekist hefur að afstýra bráðum hegðunar- og/eða vímuefnavanda fjölda barna með svokallaðri
MST-meðferð Barnaverndarstofu. Flest barnanna ná eftir fjögurra mánaða meðferð að stunda
skóla eða vinnu og láta af vímuefnaneyslu og afbrotum. Innlögnum á stofnanir hefur fækkað.
Er í skóla eða
vinnu
Kemst ekki í kast
við lögin
Notar ekki vímuefni og
misnotar ekki áfengi
Beitir ekki ofbeldi eða
hótunum um ofbeldi
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Vistunum á stofnunum fækkar
Halldór segir að undanfarin ár hafi
meirihluti þeirra barna sem fá með-
ferð vegna alvarlegs hegðunar- og
vímuefnavanda fengið MST-með-
ferð á heimilum sínum án þess að
vera vistuð utan heimilis. „Það er
stefna Barnaverndarstofu að bæta
aðgengi að viðeigandi meðferð og
fækka vistunum barna utan heim-
ilis,“ segir hann og bendir á að það sé
í samræmi við Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna að eingöngu skuli
vista barn á stofnun ef það er talin
viðeigandi meðferð.
Nú dvelja eingöngu þau börn
á Stuðlum og öðrum meðferðar-
heimilum sem eru í mjög mikilli
áhættu og geta ekki nýtt sér með-
ferð í heimaumhverfi. Fyrstu árin
spannaði þjónustusvæðið um 100
km fjarlægð frá Reykjavík en frá og
með febrúar á þessu ári stendur með-
ferðin til boða á landinu öllu.
Nýtt meðferðarheimili
Velferðarráðuneytið hefur nýlega
fjallað um tillögur Barnaverndar-
stofu um breytingar á stofnanameð-
ferð og falið stofnuninni að hefja
undirbúning að stofnun nýs með-
ferðarheimilis svo það megi fjölga í
hópi barna sem nýta kosti þess að
vera í tengslum við fjölskyldu. „Í
meðferð barna og unglinga skiptir
mestu máli að styrkja fjölskylduna,
það er best gert í nærumhverfi
barnsins, hvort sem það er í MST eða
á stofnun. “
Hvað er MST?
l mST
Fjölkerfameðferð (Multisyst
emic therapy) er meðferðarúr
ræði á vegum Barnaverndar
stofu fyrir fjölskyldur barna
á aldrinum 12 til 18 ára sem
glíma við alvarlegan hegðunar
og/eða vímuefnavanda.
l meðferðarTími
Meðferð tekur 4 til 5 mánuði.
l fjöldi
Um 400 fjölskyldur hafa lokið
meðferðinni en 80 prósent
ljúka henni að jafnaði.
l BiðTími
Biðtími er stuttur og um 35 til
40 fjölskyldur fá þjónustu á
hverjum tíma.
l ÁSTæður
MST er talin viðeigandi með
ferð þegar vandi barns kemur
fram í vímuefnanotkun eða
misnotkun áfengis, afskiptum
lögreglu, afbrotum eða refsi-
verðri hegðun. líkamlegu
ofbeldi eða hótunum um
ofbeldi gegn öðrum á heimili, í
nærumhverfi eða í skóla. Skrópi
í skóla eða verulegum skóla-
erfiðleikum.
l markmið
MST miðar að því að efla bjarg
ráð foreldra og í nærumhverfi,
draga úr vandanum og auka
styrkleika svo barnið færist
ekki á jaðar samfélagsins eða
þurfi neyðarvistun.
l STaðSeTning
Meðferðin fer fram á heimili
barnsins.
6%
barnanna
voru í skóla eða vinnu
við upphaf með
ferðar. Í lokin voru
82% þeirra komin í
skóla eða vinnu.
90%
barnanna
beittu ekki ofbeldi
eða hótunum um
ofbeldi við lok MST
meðferðar.
90%
barnanna
notuðu ekki vímu
efni og misnotuðu
ekki áfengi við lok
MSTmeðferðar.
✿ Árangur af mST-meðferð 218 barna
Við upphaf meðferðar Við lok meðferðar
12
178
96
191
100
196
67
198
Í nýrri skýrslu
til velferðar-
ráðuneytis um
árangur MST var
skoðaður hópur
218 barna þar
sem 18 mánuðir
voru liðnir frá
lokum með-
ferðar.
Í meðferð barna og
unglinga skiptir
mestu máli að styrkja
fjölskylduna, það er best gert
í nærumhverfi barnsins,
hvort sem það
er í MST eða á
stofnun.
Halldór Hauksson
sálfræðingur
2 2 . o k T ó B e r 2 0 1 5 f i m m T u d a g u r18 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð