Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 22

Fréttablaðið - 22.10.2015, Síða 22
„Það er ekki bara sá sem verður eftir við skilnað sem syrgir, heldur einn- ig sá sem fer. Ég hef verið prestur í yfir 25 ár og hef mjög oft orðið vör við þetta í starfi mínu. Fólk syrgir brostinn draum,“ segir Guðný Hall- grímsdóttir, prestur fatlaðra og höf- undur bókarinnar Skilnaður – en hvað svo? Sjálf skildi Guðný fyrir 15 árum eftir 18 ára sambúð. „Ég hef reynt þetta á eigin skinni og í starfi mínu í sálgæslu. Í meistaranámi mínu ákvað ég þess vegna að bera saman sorgarferli kvenna sem misstu maka við andlát og kvenna sem misstu maka við skilnað. Ég kannaði þetta hjá konum en það má alveg heim- færa þetta á karlana. Niðurstöðurn- ar urðu eins og ég bjóst við. Sorgar- ferlið var í algjörum samhljóm. Konurnar notuðu sömu orðin yfir vanlíðan sína og líkamleg einkenni voru sams konar. Viðbrögð sam- félagsins voru hins vegar gjörólík.“ Guðný bendir á að samfélagið viðurkenni sorg vegna dauða en átti sig ekki á sorg sem fylgir skilnaði. „Það sagði mér kona að sér hefði fundist sem allir þeir sem fylltu kirkjuna við útför mannsins hennar hefðu borið sorgina með henni. Við konu sem var að skilja var sagt að hún ætti að vera fegin að vera laus við karlinn.“ Viðurkenna þarf sorgina Markmiðið með ritun bókarinnar segir Guðný vera að koma til móts við þau sem gengið hafa í gegnum skilnað og viðurkenna sorg þeirra. „Það þarf að hjálpa þeim til að komast í gegnum þennan djúpa dal. Bókin er líka fyrir okkur hin sem þekkjum einhvern sem hefur skilið. Ég held að það sé ekki til sú fjölskylda í landinu sem hefur ekki upplifað skilnað einhvers ættingja eða vinar.“ Skilnaður þarf auðvitað ekki að vera það versta sem kemur fyrir, að mati Guðnýjar. „Við lærum af honum og vonandi verðum við betri manneskjur fyrir bragðið. En ég held að það vanti svolítið seiglu í nútímamanninn. Við gleymum því að réttindi og skyldur haldast Nauðsynlegt að vera meðvituð um sorg þeirra sem skilja Guðný Hallgrímsdóttir prestur hefur skrifað bók til að styðja þá sem skilja í átt til betra lífs. Skilnaður þarf ekki að vera það versta sem kemur fyrir fólk. Fólk þarf að vanda sig betur þegar það hefur ákveðið að skilja. Það sagði mér kona að sér hefði fundist sem allir þeir sem fylltu kirkjuna við útför mannsins hennar hefðu borið sorgina með henni. Við konu sem var að skilja var sagt að hún ætti að vera fegin að vera laus við karlinn. Komdu í heimsókn og gerðu góð kaup Opið: Virka daga kl. 10-18 Laugardaga kl. 11-16 VIÐ ERUM Í HLÍÐASMÁRA 1 Rúm og dýnur í miklu úrvali 20% af öllum Bugatti gjafavörum LAGERHREINSUN 70% AFSLÁTTURALLT AÐ Heilsurúm, heilsudýnur, sófaborð, hliðarborð, hvíldarstólar, hvíldarsófar, tungusófar, stakir sófar og stólar, dúnsængur, vatnskoddar, skammel (opnanleg með geymslu), kollar, heilsukoddar, sjónvarpsskenkar, rúmgaflar, náttborð og margt fleira. Tíu mínútna æfingakerfi þrisvar í viku bætti heilsu bæði barna og foreldra á sjö vikna tímabili. Kerfið var þróað við Háskólann í Kaup- mannahöfn og hefur verið prófað í yfir 60 skólum í Danmörku, að því er danska ríkisútvarpið greinir frá. Samkvæmt kerfinu á að ganga eða skokka í 15 sekúndur, hlaupa í 10 sekúndur og hlaupa spretthlaup í 5 sekúndur. Endurtaka á þetta nokkr- um sinnum en samtals á æfingin að taka 10 mínútur. Markmiðið með æfingakerfinu var að virkja börn sem almennt eru ekki hrifin af hlaupum. Árangurinn var góður. Börnin urðu duglegri að hlaupa, beinin styrktust og vöðva- massinn jókst. Vöðvamassi foreldr- anna jókst einnig, fituprósentan í líkama þeirra minnkaði og þol þeirra batnaði. Hluti æfingakerfisins hjá börnun- um var að kynna það fyrir foreldr- unum og draga þá upp úr sófanum og út að hlaupa. Haft er eftir prófessornum Jens Bangsbo að jákvæð hliðaráhrif æfingakerfisins hafi verið bætt sam- skipti barna og foreldra. – ibs Æfingar sem styrkja bæði börn og foreldra Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, segir samfélagið viðurkenna sorg vegna andláts maka en ekki átta sig á sorg sem fylgir skilnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA í hendur. Það er ekki við mann- eskjuna sjálfa að sakast, heldur umhverfið. Menn skipta út bíl og sófa og svo líka maka.“ Bitnar á þeim sem síst skyldi Presturinn kveðst hafa áhyggjur af tíðum skilnuðum á Íslandi. „Við megum auðvitað ekki gera lítið úr vanlíðan í hjónabandi en það er spurning hvort ekki sé hægt að gera eitthvað í málunum áður en allt er orðið brotið. Svo óska ég þess að fólk vandaði sig betur þegar það hefur ákveðið að skilja. Tilfinn- ingarnar eru oft svo rosalega miklar að það er ekki pláss fyrir skynsemi. Oftast bitnar það á þeim sem síst skyldi. Ég vildi að það væri til sér- stök kveðjuathöfn fyrir þá sem skilja. Að fólk kveðjist fallega þegar það tekur niður hringana, þakki fyrir það sem það átti og biðji fyrir því sem fram undan er.“ Ingibjörg Bára Sveinsdóttir ibs@frettabladid.is Tíu mínútna kerfið ganga 15 sekúndur hlaup 10 sekúndur spretthlaup 5 sekúndur Börn og fullorðnir í Latabæjarhlaupi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL fjölskyldan 2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t u D a g u r22 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.