Fréttablaðið - 22.10.2015, Side 38

Fréttablaðið - 22.10.2015, Side 38
Fólk| tíska Ástralska leikkonan Cate Blanchett er flott í tauinu og vekur athygli hvar sem hún fer fyrir svalan stíl. Á Vogue.com var hún til að mynda valin ein af „tíu best klæddu stjörnunum“ bæði þessa vikuna og í vikunni sem leið. Cate þykir afspyrnu fögur, með há kinnbein, leiftrandi augnaráð og mjólkurhvíta húð. Hún er óhrædd við að klæðast sterkum litum og munstruðum flíkum en sést einnig oft í klassískum buxnadrögtum og hvítri skyrtu. Cate á glæsilegum ferli að fagna á hvíta tjaldinu en hún hefur leikið í hátt í fimmtíu kvikmyndum auk þess sem hún hefur leikið í og talsett sjón- varpsefni. Þá leikur hún einnig á sviði. Hennar fyrsta kvikmyndahlutverk var í myndinni Paradise Road árið 1997 en þá hafði hún vakið athygli fyrir leik sinn á sviði í Sydney. Cate er fjögurra barna móðir, gift handritshöfundinum Andrew Upton og býr fjölskyldan í Ástralíu. Vel klædda Cate sValur stíll Leikkonan Cate Blanchett var ein af tíu best klæddu stjörnun- um tvær vikur í röð að mati Vogue.com. Hún þykir hafa eitursvalan stíl. í dragsíðu Á dreglinum Cate kann að heilla áhorfendur. rósamunstur Glæsileg í blómaskreyttum kjól. stælpæja Cate Blanchett sveiflast um götur Manhattan 8. október. klæðaburðurinn vakti athygli Vogue.com. klassísk Cate sést iðulega í klassískum buxnadrögtum. NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022 8 rétta hlaðborð í hádeginu TILBOÐ KR. 1.590.- OPIÐ KL. 11:00-14:00 Hlaðborðið er alla virka daga. ekki um helgar. kinahofid.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 Vertu einstök – eins og þú ert stærðir 38-52 my styleStærðir 38-52 Netverslun á tiskuhus.is Nýjar vörur í hverri viku BESTA TÓNLISTIN FRÁ 1960 1985 ÞESSI GÖMLU GÓÐU Á EINUM STAÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.