Fréttablaðið - 22.10.2015, Qupperneq 43
Dyson- handryksugurnar fást í þremur gerðum og eru allar margfalt af l-
meiri en hefðbundnar hand-
ryksugur. „Það eru engar sam-
bærilegar vélar á markaðnum,“
segir Þráinn Farestveit, versl-
unarstjóri Einars Farestveit og
Co hf. Þær eru búnar handhægu
skafti og koma með mismörgum
loftpípum en fjöldi þeirra segir
til um hversu aflmiklar þær eru.
Þá er ending rafhlaðanna mun
betri en í öðrum handryksug-
um.
„Dyson V6 er hefðbundin,
Dyson V6 Absolute er aflmeiri
og Dyson V6 Animal sú alkröf-
tugasta en hún er hugsuð fyrir
fólk með dýr,“ útskýrir Þráinn
Þær eru búnar Lithium-ion raf-
hlöðutækni og endist hleðslan
í allt að 25 mínútur. Þá hreins-
ar ryksugugurnar allt að 99,97%
af öllu ryki sem er niður að 0,3
mikrógrömmum. Þeim fylgir
líka sérstök veggfesting sem er
hægt að koma fyrir inni í skáp
eða annars staðar og auðveld-
ar allan frágang, en hún er jafn-
framt hleðslustöð. Ryksugunum
fylgja sömuleiðis ýmsir auka-
hlutir sem auðvelda þrifin enn
frekar. Rykið er svo losað í sorp
með einum smelli og engra poka
er þörf.“
Að sögn Þráins eru ryksug-
urnar afar meðfærilegar. „Þar
sem ekki þarf að stinga þeim í
samband er auðvelt að fara með
þær á milli hæða en langt skaft-
ið gerir það að verkum að hægt
er að bera sig svipað að og þegar
ryksugað er með hefðbundinni
ryksugu. Þá er armurinn neðst
við sópinn mjög hreyfanleg-
ur þannig að auðvelt er að ryk-
suga bæði ofan af húsgögnum
og undir þeim. Stífur nylon-
bursti fjarlægir óhreinindi vel úr
teppum og fiber-þræðir í burst-
anum hjálpa til við að þrífa smá-
ryk á gólfi.“
Ryksugurnar henta að sögn
Þráins bæði á heimilum og í
hverskyns atvinnuhúsnæði.
„Þær eru sömuleiðis frábær-
ar til notkunar við þrif á bílum,
hjólhýsum og öðru slíku.“ Þrá-
inn segir að James Dyson, sem
ryksugurnar eru kenndar við, sé
þekktur fyrir nýstárlega nálgun
í raftækjaframleiðslu. „Hann
setti fyrstu pokalausu ryksug-
una á markað árið 1983 og frá
þeim degi hefur hann framleitt
þær í algerum sérflokki. Hann
gekk með hugmyndina manna
á milli en fékk engan hljóm-
grunn. Hann hóf því eigin
framleiðslu. Menn hafa
síðan reynt að feta í fótspor
hans en Dyson-handryk-
sugurnar standa enn
langt framar öðrum.“
Standa framar öðrum
Dyson-handryksugurnar eru margfalt aflmeiri en hefðbundnar handryksugur en þær hreinsa 99,97 prósent af öllum ögnum sem
inn í þær fara. Ryksugurnar eru þráðlausar, pokalausar og afar meðfærilegar. Þráinn Farestveit segir engar betri.
„Það eru engar sambærilegar vélar á markaðnum,“ segir Þráinn Farestveit. MYND/GVA
FIMMTUDAGUR 22. okTóbeR 2015 3Kynning − auglýsing Ryksugur