Fréttablaðið - 22.10.2015, Qupperneq 62
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskulegur bróðir, mágur
og frændi okkar,
Halldór Örn Árnason
Hátúni 10b,
lést á heimili sínu aðfaranótt
17. október.
Helga Lára Árnadóttir Guðmundur Gunnarsson
Árni Valur Árnason Ása Bjarnadóttir
Ósk Reykdal Árnadóttir
Ása Kristín Árnadóttir
Theresa Linda Árnadóttir Qemal Golike
Helgi Gunnar Árnason
Birgitta Kara Árnadóttir Nour Natan Ninir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jórmundur Kristinsson
Víðigerði 10,
Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 13. október. Útförin fór fram í
kyrrþey að ósk hins látna, þriðjudaginn 20. október.
Birna Sigríður Ágústsdóttir
Jórunn Jórmundsdóttir Jóhann Guðfinnsson
Rebekka Jórmundsdóttir Björn Steinar
Sigurjónsson
Kristinn Sigurður Jórmundsson Kristín Margrét
Matthíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Dagrún Gunnarsdóttir
lést á Hrafnistu í Reykjavík
sunnudaginn 18. október. Jarðarförin
fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Emil Theodór Guðjónsson
Sveinn Guðjónsson
Gunnar Guðjónsson
Anna Guðný Guðjónsdóttir
Bróðir okkar,
Sæmundur Þór Sæmundsson
lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann
17. október. Útförin fer fram
föstudaginn 23. október kl. 15.00
frá Fossvogskapellu.
Sigurveig Sæmundsdóttir
Oddur Sæmundsson
Jóna Sæmundsdóttir
Eiríkur Sæmundsson
Systir okkar, mágkona og frænka,
Guðrún Karlsdóttir
Furugerði 1, Reykjavík,
andaðist á Vífilsstöðum aðfaranótt
þriðjudagsins 20. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 26. október kl. 11.00.
Anna Karlsdóttir
Stefanía Björk Karlsdóttir Stefán Arnar Kárason
Fanney Sigurjónsdóttir
systkinabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haukur Torfason
frá Háafelli, Drangsnesi,
sem lést á Sjúkrahúsi Akraness
15. október, verður jarðsunginn frá
Drangsneskapellu laugardaginn
24. október kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hans er bent
á Björgunarsveitina Björg á Drangsnesi
reikn.nr. 0316-26-265, kt. 711090-2079.
Ása María Hauksdóttir Pétur Óskarsson
Guðbjörg Hauksdóttir Óskar Torfason
afa- og langafabörn.
Elskulegur faðir minn,
tengdafaðir, bróðir og afi,
Kristgeir Hákonarson
sjómaður,
sem lést á heimili sínu þann
11. október, verður jarðsunginn frá
Neskirkju föstudaginn 23. október kl. 13.00.
Berglind Kristgeirsdóttir Arnar Már Guðmundsson
Reynir Sæmundsson
Finnbjörg Konný Hákonardóttir
Steinunn Helga Hákonardóttir
Kristborg Hákonardóttir og barnabörn hins látna.
Ástkær móðir okkar og amma,
Guðrún Osvaldsdóttir
fulltrúi hjá Ríkisskattstjóra,
verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
23. október kl. 11.00.
Sigurður Ingi Sigurðsson
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir
Guðrún Helga Guðbjartsdóttir
Þórdís Gyða Guðbjartsdóttir
Herdís Rut Guðbjartsdóttir
„Efni óperunnar er ótrúlega skemmtilegt,
bæði músíkin og sagan, en þó með alvar-
legum undirtóni. Ég er búin að vera í hlát-
urskasti frá fyrstu æfingu,“ segir Sigríður
Ósk Kristjánsdóttir söngkona sem gengur
í hlutverk Rosinu í Rakaranum á næstu
tveimur sýningum. „Þetta er fyrsta burðar-
hlutverk mitt með Íslensku óperunni og
jafnframt það stærsta sem ég hef tekist á
við,“ segir hún. „Rosina er litríkur karakter.
Hún er fjörug, hnyttin og fljót að hugsa og
hlýtur að vera afar heillandi því Lindoro
greifi kemur um langan veg til að reyna
að krækja í hana, eftir að hafa séð henni
einu sinni bregða fyrir. Hún stelst upp á
þak á nóttunni því harðstjórinn sem hún
býr hjá vill aldrei hleypa henni út, hann
ætlar sér að giftast henni því hann veit að
hún fékk fúlgu í arf eftir foreldra sína. En
Lindoro greifi syngur falleg lög fyrir utan
gluggann hennar, það finnst henni æðis-
legt og er alveg sama þó að hann
sé fátækur.“
Þótt sagan gerist í Sevilla
á Spáni er sungið á
ítölsku – aðalmáli
óperunnar. Æfingar
hófust í lok ágúst.
„Við æfðum alla daga,
allan daginn. Áður var
ég auð vitað búin að
liggja yfir efninu því
helst þarf maður að
kunna allt þegar maður
mætir,“ segir Sigríður Ósk
sem söng í Töfraflautunni í
Hörpu. Auk þess hefur hún
sungið yfir tuttugu óperuhlutverk á
Englandi, meðal annars hjá English Natio-
nal Opera og Glyndebourne Opera.
Fleiru þarf Sigríður Ósk að
sinna en söngnum því hún
á eins og hálfs árs gamla
dóttur, Helenu Ingu,
og segir hana orðna
pínulitla Rosinu „Ég
hef auðvitað verið
að æfa heima og allt
í einu er hún farin
að gera alveg eins
og ég. Það er mjög
skemmtilegt. Það
er frábært að vera í
tveimur draumahlut-
verkum í einu, móðurhlut-
verkinu og hlutverki Rosinu.“
gun@frettabladid.is
Tvö draumahlutverk í einu
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópran syngur hlutverk Rosinu í Rakaranum á laugar-
daginn. Það er stærsta óperuhlutverk hennar til þessa, þó hún eigi yfir tuttugu að baki.
„Ég er búin að vera í hlátuskasti frá fyrstu æfingu,“ segir Sigríður Ósk um óperuna Rakarinn í Sevilla. FRÉttablaðið/GVa
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r38 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð I ð
tímamót