Fréttablaðið - 22.10.2015, Page 82
Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR, hefur vakið mikla athygli að undan-förnu fyrir vasklega fram-göngu í rappinu. GKR er með afar sérstakan stíl og er varla
hægt að líkja honum við nokkurn annan.
Þessi sérstaða hans hefur vakið forvitni og
hefur hann komið fram með helstu röpp-
urum landsins.
Í dag kemur út nýtt myndband frá GKR,
við lag sem ber titilinn Morgunmatur.
„Lagið fjallar í raun á nýstárlegan hátt um
það að elta draumana sína. Í grunninn
fjallar það um að vakna á morgnana og þurfa
að takast á við verkefni sem maður er ekki
spenntur fyrir.“
GKR fékk Bjarna Felix Bjarnason til þess
að vinna með sér í myndbandinu, en Bjarni
tók upp Borgríki 1 og 2. „Við tókum upp
víða. Meðal annars í eldhúsinu heima hjá
mömmu, í Laugardalslaug eftir vinnu og á
fleiri skemmtilegum stöðum. Ég sá svo um
eftirvinnsluna sjálfur,“ segir Gaukur sem
leikstýrir myndbandinu einnig. Hann hefur
verið duglegur að senda frá sér myndbönd
sem hann hefur gert sjálfur. Þetta er fimmta
myndbandið sem GKR sendir frá sér.
kjartanatli@frettabladid.is
„Ég er stoltur af því að vinna
með Bjarna Felix Bjarnasyni,“
segir rapparinn GKR, sem fékk
einn helsta kvikmyndatöku-
mann landsins til þess að vinna
með sér. Myndbandið sem þeir
unnu saman er við lag sem ber
titilinn Morgunmatur.
GKR
myndband
nýtt
með
SPARIÐ 30%
Á þessum 6 búningum og
risastórri kónguló
ÞÚ FÆRÐ ALLT SEM ÞARF FYRIR
HREKKJAVÖKUNA
IT DOESN’T GET BIGGER THAN THIS!
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
0
2
.1
1.
2
0
15
.
F
yr
ir
va
ra
r
e
ru
g
e
rð
ir
v
e
g
n
a
m
ö
g
u
le
g
ra
p
re
n
tv
ill
n
a.
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 5 F I M M t U D A G U r58 L í F I ð ∙ F r É t t A b L A ð I ð