Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Qupperneq 40
frá árinu 2000 með tilliti til breyttrar aldurs-
og kynjasamsetningar þjóðarinnar. Notast
er við fjöldatölur frá Tryggingastofnun í
janúar ár hvert sem gefa góða mynd af
þróun yfir tíma. Við úrvinnsluna var stuðst
við heilbrigðisrannsóknir á vegum Krabba-
meinsskrár Íslands á algengi og nýgengi
krabbameins og rannsókn Sigurðar
Thorlacius o.fl. á algengi örorku árin 1976-
19963. Í báðum rannsóknum er algengi og
nýgengi staðlað eftir aldri og kyni samkvæmt
viðurkenndum aðferðum faraldsfræðinnar.
Hvað er aldursstöðlun?
Eins og áður segir er aldursstöðlun algeng
aðferð til að draga úr raskandi áhrifum aldurs
við mat á heildaralgengi sjúkdóma. Aðferðin
er sérstaklega heppileg þegar bornir eru
saman hópar með ólíka aldursdreifingu,
t.d. í samanburði milli landa eða yfir tíma.
Í þessari umfjöllun er tekið tillit til breytinga
sem orðið hafa á aldursdreifingu karla og
kvenna á aldrinum 16-66 ára á Íslandi frá
árinu 2000. Aldursdreifingin árið 2000 var
notuð sem staðalþýði og þjóðinni skipt í 11
aldurslög (16-19, 20-24, 25-29, 30-34, 35-
39, 40-44, 45-49, 50-54, 55-59, 60-64 og
65-66) fyrir hvort kyn. Stuðull fyrir hvern
flokk var reiknaður með því að margfalda
algengi örorkunnar innan hvers aldurslags
með lagshlutfallinu og leggja síðan útkomu
allra laga saman til að fá heildaralgengi og
nýgengi.
Staðlað áhættuhlutfall (e. standardized risk
ratio) á nýgengi örorku var síðan reiknað
með því að deila stuðlinum 2000 upp í
stuðulinn fyrir árið 2018. Ef staðlaða áhættu-
hlutfallið er jafnt og 1 er nýgengi örorku það
sama árið 2018 og árið 2000, að teknu
tilliti til lýðfræðilegra breytinga. Ef staðlaða
áhættuhlutfallið er stærra en 1 var nýgengi
örorku tíðara árið 2000 en árið 2018 en
fátíðara ef áhættuhlutfallið er minna en 1.
Staðlað algengi 75% örorku-
mats eftir aldri og kyni
Á mynd 5 er samanburður á hráalgengi
75% örorkumats í samanburði við staðlað
algengi eftir kyni og aldri. Árið 2000 (sem
er viðmiðunarpunktur matsins) er hlutfall
einstaklinga með 75% örorkumat um 6% af
mannfjölda 16-66 ára en um 8% árið 2018
ef miðað er við hráalgengi. Þegar búið er að
taka tillit til aldurs og kyns lækkar hlutfallslegt
algengi 75% örorku af mannfjölda árið 2018
úr 8% í 7%.
Hvað þýðir þetta? Í hnotskurn má segja
að þó hráalgengi örorku hafi hækkað sem
hlutfall af mannfjölda frá árinu 2000 sé hluta
skýringarinnar að finna í breyttri aldurs- og
kynjasamsetningu þjóðarinnar, þ.e.a.s. ef
samsetning þjóðarinnar væri eins nú og árið
2000 væri heildaralgengi örorku lægra í dag
en ella.
Aldursstaðlað algengi örorku
fyrir karla og konur
Það er áhugavert að sjá þróunina á algengi
75% örorkumats eftir kyni fyrir valin ár
á tímabilinu 2000-2018 (mynd 6). Ekki
einungis eru konur talsvert líklegri en karlar
til að fá 75% örorkumat öll árin heldur fer
hlutfall þeirra hækkandi á meðan hlutfall
karla stendur í stað. Í ljósi þess að karlar eru
ólíklegri en konur til að fá örorkumat, þó þeir
séu fleiri, er næsta líklegt að þeir dragi úr
vægi heildaralgengis örorku.
Nýgengi 75% örorkumats hefur, eðli málsins
samkvæmt, annars konar dreifingu en
algengi. Algengi er uppsafnaður fjöldi, þ.e.
allir lifandi einstaklingar sem eru með 75%
15 ára og yngri
Aldursþróun yfir tíma
hlutfall (%) hvers aldurshóps af heildarmannfjölda
Mynd 3
Fjöldi karla á móti hverjum 1.000 konum
á ári 2000-2018
Mynd 4
1.100
1.080
1.060
1.040
1.020
1.000
980
960
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18
Hráalgengi 75% örorkumats í samanburði við staðlað algengi
eftir aldri og kyni
10%
8%
6%
4%
2%
0%
2000 2005 2008 2010 2012 2016 2017 2018
7%
7% 7% 7% 7%
7%8%
8% 9%
8%
Hráalgengi (crude rate) Staðlað algengi Mynd 5
16-25 ára 25-34 ára 35-54 ára 55-59 ára 60 ára og eldri
27%
22%
17%
12%
7%
2%
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18
40 virk.is