Ársrit um starfsendurhæfingu - 2019, Blaðsíða 66
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON verksmiðjustjóri hjá Lindsay
búðinga, lyftiduft og Bezt á kryddið. Af
þessum fjórum hér eru því tveir frá VIRK,“
segir Sigurður þegar hann hefur boðið upp
á kaffisopa og við erum sest að spjalli afsíðis.
Fram kemur í máli Sigurðar að Royal-
búðingarnir hafi verið hluti af veislumat
Íslendinga í yfir sjötíu ár. Hann er Dalamaður
að uppruna, kjötiðnaðarmaður að mennt og
starfaði um langt árabil sem slíkur en sló
hins vegar til þegar honum bauðst að gerast
framleiðslustjóri hjá Lindsay fyrir tólf árum.
„Það hefur komið mjög vel út að fá þessa tvo
starfsmenn sem við erum nú með frá VIRK.
Vitanlega komu aðilar frá VIRK að ráðningu
þessara manna og lagðar voru áætlanir sem
gengið hafa upp. Sá fyrri, sem ég sagði
þér frá áðan, er nú sem sagt í fullu starfi,
ÞEIR SÁTU FJÓRIR
SAMSTARFSMENNIRNIR
OG VORU AÐ FÁ
SÉR BITA ÞEGAR
BLAÐAMAÐUR BIRTIST
TIL AÐ RÆÐA VIÐ
SIGURÐ KRISTJÁNSSON
VERKSMIÐJUSTJÓRA
HJÁ LINDSAY,
KLETTAGÖRÐUM 23.
LEGG ÁHERSLU Á AÐ
KOMA EINS FRAM VIÐ ALLA
S
ú deild sem Sigurður veitir forstöðu
er með tvo starfsmenn sem komið
hafa þangað til starfa eftir starfs-
endurhæfingu á vegum VIRK.
„Það bar þannig til að ég hitti vinafólk sem
á son sem var þá í endurhæfingu hjá VIRK.
Til tals kom að hann kynni að vanta vinnu
þegar hann væri tilbúinn til að koma út á
vinnumarkaðinn. Ég sagði þeim að mig
myndi sennilega vanta starfsmann fljótlega
og úr varð að pilturinn kom hingað til starfa,
fyrst í hlutastarfi á vinnusamningi þar sem
Tryggingastofnun ríkisins greiddi honum
laun á móti fyrirtækinu hér. Ráðgjafi frá
VIRK kom þessu í kring. Þetta hefur gengið
svo vel að nú er pilturinn kominn í fullt starf
hjá fyrirtækinu. Við erum fjórir starfsmenn í
þessari deild Lindsay sem framleiðir Royal-
66 virk.is