Morgunblaðið - 23.12.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Hlutfall unga er almennt mjög lágt
í rjúpnaveiðinni í haust, samkvæmt
aldursgreiningum dr. Ólafs Karls
Nielsen, vistfræðings hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands. Eina svæðið
sem stendur upp úr með þokkalegt
ungahlutfall eru Vestfirðir. Þar er
hlutfall unga í veiðinni 74%.
Ólafur var í gær búinn að fá til
aldursgreininga 2.395 vængi frá
veiðitímanum 2019 og gerir ráð fyr-
ir að fá um það bil 1.000 vængi til
viðbótar.
Veiðimenn eru hvattir til að
senda annan væng veiddra rjúpna
til Náttúrufræðistofnunar Íslands,
Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garða-
bæ. Einnig má skila vængjum í af-
greiðslu eða setja í póstkassa við
aðalinngang. Upplýsingar um veiði-
mann og veiðistað þurfa að fylgja.
gudni@mbl.is
Hlutfall unga í
rjúpnaveiðinni lágt
Mikilvægt að fá vængi til greininga
Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands
Landshluti Fullorðnir Ungfuglar Samtals
% ung-
fuglar
Ungar á
kvenfugl
Vesturland 72 157 229 69% 4,4
Vestfi rðir 180 523 703 74% 5,8
Norðvesturland 184 308 492 63% 3,3
Norðausturland 145 296 441 67% 4,1
Austurland 107 188 295 64% 3,5
Suðurland 106 129 235 55% 2,4
Samtals 794 1.601 2.395 67% 4,0
Aldursgreining veiddra rjúpna í des. 2019
Eftir að alls 2.395
fuglar hafa verið
aldursgreindir
Allt um sjávarútveg
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ljós voru sett á leiði Steinunnar
Sveinsdóttur frá Sjöundá í Hóla-
vallakirkjugarði í gærmorgun.
Sveinn Valgeirsson dómkirkju-
prestur tók þátt í athöfninni og
signdi yfir gröfina. Með því má
segja að útskúfun hinnar dæmdu
konu sé endanlega lokið en prestar
Dómkirkjunnar höfnuðu því að
koma að því þegar jarðneskar leif-
ar Steinunnar voru fluttar úr dys-
inni á Skólavörðuholti fyrir rúm-
um 100 árum og komið fyrir í
ómerktri gröf í Kirkjugarði
Reykjavíkur.
Saga Steinunnar Sveinsdóttur er
mörgum kunn enda hafa verið
skrifaðar skáldsögur og leikrit um
morðin á Sjöundá á Rauðasandi.
Atburðarásin hófst með því að
Steinunn og Bjarni Bjarnason
felldu hugi saman og voru ákveðin
í að ná saman hvað sem það kost-
aði. Bæði bjuggu með fjölskyldum
sínum á Sjöundá. Létu þau til skar-
ar skríða vorið 1802. Þau játuðu að
hafa myrt maka sína og voru
dæmd til lífláts með öxi. Þau biðu
fullnustu dómsins í fangelsinu í
Reykjavík, Stjórnarráðshúsinu
sem síðar varð. Þegar ekki fékkst
böðull og þau fengu ekki náðun
átti að flytja þau til Noregs til líf-
láts. Nokkrum dögum áður en
skipið fór lést Steinunn í tukthús-
inu en Bjarni var fluttur til Kristi-
ansand og hálshöggvinn og líkið
huslað þar í nágrenninu.
Lík Steinunnar var dysjað á
Skólavörðuholti, við gömlu þjóð-
leiðina frá Reykjavík til Hafnar-
fjarðar. Vegfarendur köstuðu
gjarnan steinum að dysinni, eins og
þá var venja. Verkamenn sem voru
að taka grjót fyrir hafnargerðina í
janúar 1915 sáu í kistu og skipaði
Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður þeim að hætta grjótnáminu.
Hann tók kistuna til rannsóknar og
var ákveðið að flytja jarðneskar
leifar Steinunnar og koma í vígða
mold. Henni var komið fyrir í suð-
vesturhorni kirkjugarðsins, sem þá
var, en hann hefur verið stækk-
aður. Gröfin var lengi ómerkt og
greftrunin var ekki færð í bækur
kirkjugarðsins.
Þótt þá hafi verið meira en öld
liðin frá því Steinunn var dæmd og
dysjuð utangarðs, eins og þá var
venja með sakamenn og þá sem
fyrirfóru sér, voru dómkirkju-
prestarnir ekki tilbúnir að taka
þátt í athöfninni. Ólafur Ólafsson
fríkirkjuprestur var fenginn til
þess að annast hana.
„Ljósin sýna ákveðna ræktar-
semi og að hún hafi ekki gleymst,“
sagði Sveinn Valgeirsson dóm-
kirkjuprestur eftir ljósaathöfnina í
Hólavallakirkjugarði í gær. Hann
segir að í blessun sinni felist ákveð-
in fyrirbæn. „Þetta er ágæt áminn-
ing um að þeir sem mennirnir
dæma eru ekki endilega dæmdir
annars staðar. Þrátt fyrir allt var
hún Guðsbarn, eins og allir aðrir.“
Fyrir tæpum áratug létu afkom-
endur Steinunnar merkja leiði
hennar með krossi og minningar-
marki. Jóhann Kristjánsson,
áhugamaður um sögu Steinunnar
og atburðanna á Sjöundá, og
nokkrir vinir hans hafa nú í annað
skipti sett jólaljós á leiðið. Hann
segist gera það af virðingu við
þessa konu sem svo lengi hefur
verið útskúfuð en sem betur fer
lækni tíminn öll sár að lokum.
Blessun tveimur öldum eftir andlát
Jólaljós sett við
gröf Steinunnar
frá Sjöundá
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Við leiðið Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur, Jóhann Kristjánsson,
Sigurður Ingvarsson og Gauti Höskuldsson í Hólavallagarði.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Heildarlaun hjá félagsmönnum
stéttarfélagsins Einingar-Iðju hafa
hækkað um rúm fimm prósent frá
því í október í fyrra og eru með-
altalslaun rúmlega 523 þúsund
krónur á mánuði.
Þetta kemur fram í launakönnun
stéttarfélagsins sem Gallup fram-
kvæmdi.
Björn Snæbjörnsson, formaður
félagsins, segir að hækkunin sýni að
lífskjarasamningurinn sem Eining-
Iðja skrifaði undir, ásamt fleiri
stéttarfélögum, sé að skila þeim
kjarabótum sem kveðið var á um í
samningnum.
Þrátt fyrir það er ánægja með
samninginn lítil og einungis tak-
markaður hluti félagsmanna virðist
þekkja hann. Sömuleiðis kemur
fram í könnuninni að 43,3% svar-
enda hafi frestað eða hætt við það
að fara til tannlæknis af fjárhags-
ástæðum á síðustu 12 mánuðum.
Einnig hefur hátt hlutfall frestað
læknisheimsóknum og lyfjakaupum.
„Það er ekki eðlilegt og það er
það sem kemur verst út úr þessari
könnun. Líka það að 11% hafi
áhyggjur af smálánum. Við vitum
það að þessi laun eru ekki til þess
að hrópa húrra fyrir og það eru
margir sem eiga mjög erfitt,“ segir
Björn.
14% þekkja samninginn
Um 20% þeirra sem svöruðu
könnuninni voru ánægðir eða frekar
ánægðir með lífskjarasamninginn.
Einungis 14% svarenda sögðust
þekkja lífskjarasamninginn mjög
vel eða frekar vel. Björn segir að
það komi sér á óvart en Eining-Iðja
hafi kynnt samninginn vel fyrir sín-
um félagsmönnum og muni halda
áfram að gera það. Eftir því sem
svarendur þekktu samninginn bet-
ur, þeim mun ánægðari voru þeir
með hann.
„Þó að þetta hafi verið kynnt vel í
upphafi þá er ýmislegt í þessum
samningi svolítið flókið. Til dæmis
hagvaxtaraukinn, vinnutímastytt-
ingar og fleira.“
Einungis 16,2% eru mjög eða
frekar ánægð með aðkomu stjórn-
valda að lífskjarasamningnum.
„Menn treysta því kannski ekki
alveg að þetta sé eitthvað í hendi.
Menn vilja sjá það í framkvæmd,“
segir Björn.
Hann fagnar niðurstöðum könn-
unarinnar sem snúa að þjónustu
Einingar-Iðju en 78,1% svarenda
voru ánægðir með hana.
Margir eiga mjög erfitt
Meðallaun hjá Einingu-Iðju eru um 520 þúsund samkvæmt launakönnun
Margir félagsmenn fresta eða hætta við læknisheimsóknir og lyfjakaup
Morgunblaðið/Hari
Kjör Kjarabætur hafa fylgt lífs-
kjarasamningnum frá því í mars.
Jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveit-
arinnar í Reykjavík var lokað um
klukkan fjögur í gær en þá seldi
sveitin sitt síðasta tré.
„Þetta er algjört lúxusvanda-
mál,“ segir Hjalti Björnsson, for-
maður sveitarinnar. „Við höfum
alltaf reynt að eiga tré alveg fram
á aðfangadag enda með marga
fastakúnna sem koma til okkar
rétt fyrir jól, sérstaklega á Þor-
láksmessu.“ Nú hafi salan hins
vegar komið þeim í opna skjöldu.
„Við njótum auðvitað velvildar
fólks sem vill styrkja okkur, og
eftir að við lokuðum streymdi enn
að fjöldi fólks sem vildi kaupa
tré,“ segir Hjalti. Alls seldi Flug-
björgunarsveitin yfir 2.000 tré,
mestmegnis íslenska stafafuru,
blágreni og rauðgreni, en einnig
normannsþin innfluttan frá Dan-
mörku. „Það er ljóst að við mun-
um tryggja okkur fleiri tré næst,“
segir Hjalti og bætir við að vin-
sældir íslensku trjánna aukist
stöðugt.
Seldu síðasta jóla-
tréð síðdegis í gær