Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sjö karlar og þrjár konur koma til greina í kjörinu á íþróttamanni árs- ins 2019 hjá Samtökum íþrótta- fréttamanna. Atkvæðin hafa verið talin og ljóst hvaða íþróttafólk hafn- aði í efstu tíu sætunum en röð þeirra verður ekki opinberuð fyrr en að kvöldi laugardagsins 28. des- ember þegar SÍ og Íþrótta- og Ól- ympíusamband Íslands halda sitt árlega hóf og verðlauna íþróttafólk- ið. Sara Björk Gunnarsdóttir knatt- spyrnukona er núverandi handhafi titilsins og er í hópi þeirra tíu sem fengu flest atkvæði í ár. Um leið kjósa samtökin þjálfara ársins 2019 og lið ársins 2019 en nú er jafnframt skýrt frá því hverjir fengu flest atkvæði í þeim kosn- ingum, þrír efstu í hvoru kjöri fyrir sig. Þau tíu sem koma til greina eru eftirtalin:  Anton Sveinn McKee sund- maður varð fyrstur Íslendinga til að tryggja sér sæti á Ólympíu- leikunum 2020. Hann komst í átta manna úrslit í öllum þremur grein- um sínum á Evrópumótinu í 25 metra laug og setti sjö Íslandsmet á mótinu. Anton fékk þrenn gull- verðlaun á Smáþjóðaleikunum 2019. Anton er í fyrsta sinn meðal tíu efstu.  Arnar Davíð Jónsson keilu- maður sigraði á Evrópumótaröðinni 2019, fyrstur Íslendinga, og vann tvö mót á mótaröðinni. Honum var boðin þátttaka í úrslitum heimstúrs- ins og þar komst hann í úrslitaleik- inn og fékk silfurverðlaunin. Arnar er í fyrsta sinn meðal tíu efstu.  Aron Pálmarsson er í stóru hlutverki hjá spænska handknatt- leiksstórveldinu Barcelona og varð með því spænskur meistari og bik- armeistari 2019, ásamt því að vinna með liðinu heimsbikar félagsliða. Aron er kominn með íslenska lands- liðinu í lokakeppni EM 2020. Aron er í sjöunda sinn meðal tíu efstu og hann var kjörinn íþrótta- maður ársins 2012.  Glódís Perla Viggósdóttir er burðarás í sænska knattspyrnulið- inu Rosengård og varð sænskur meistari með því 2019 en hún hefur ekki misst úr eina mínútu með lið- inu í sænsku úrvalsdeildinni í hálft þriðja ár. Íslenska landsliðið er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í und- ankeppni EM 2021. Glódís er í fyrsta sinn meðal tíu efstu.  Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir frjálsíþróttakona bætti Íslandsmet kvenna í bæði 100 og 200 metra hlaupi og jafnaði Íslandsmetið í 60 metra hlaupi. Hún varð í fjórða sæti í 200 metra hlaupi á Evr- ópumóti U20 ára og var í íslenska landsliðinu sem vann sér sæti í 2. deild Evrópukeppninnar. Guðbjörg er í annað sinn meðal tíu efstu.  Guðmundur Ágúst Krist- jánsson kylfingur varð Íslands- meistari í höggleik 2019. Hann sigr- aði á þremur mótum á Nordic Golf mótaröðinni og vann sér þátt- tökurétt á Áskorendamótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu, ásamt því að komast á lokaúrtök- umótið fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur er í fyrsta sinn með- al tíu efstu.  Gylfi Þór Sigurðsson átti sitt besta tímabil í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu 2018-19 þegar hann skoraði 13 mörk og átti 6 stoðsend- ingar fyrir Everton í ensku úrvals- deildinni. Gylfi var áfram í lykilhlut- verki í landsliðinu sem er á leið í umspil fyrir EM 2020. Gylfi er í níunda sinn meðal tíu efstu og hann var kjörinn íþrótta- maður ársins 2013 og 2016.  Júlían J.K. Jóhannsson bætti eigið heimsmet í réttstöðulyftu í +120 kg flokki í kraftlyftingum á heimsmeistaramótinu í Dubai. Hann fékk bronsverðlaunin í sam- anlögðum árangri á sama móti. Júlían sigraði í réttstöðulyftu á Evrópumeistaramótinu og hlaut silfurverðlaunin í samanlögðu á mótinu. Hann er í þriðja sæti heimslistans í sínum þyngdar- flokki. Júlían er í þriðja sinn meðal tíu efstu en hann varð annar í fyrra.  Martin Hermannsson körfu- knattleiksmaður er í stóru hlutverki hjá Alba Berlín í Þýskalandi sem leikur í vetur í Euroleague, sterk- ustu keppni Evrópu, og hann lék með liðinu úrslitaleiki um Evrópu- bikar félagsliða og þýska meistara- titilinn. Martin er í þriðja sinn meðal tíu efstu.  Sara Björk Gunnarsdóttir knattspyrnukona hjá Wolfsburg og fyrirliði íslenska landsliðsins varð þýskur meistari og bikarmeistari með liði sínu og er komin með því í átta liða úrslit Meistaradeildar Evr- ópu 2019-20. Íslenska landsliðið er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í undankeppni EM 2021. Sara er í áttunda sinn meðal tíu efstu og var kjörin íþróttamaður ársins 2018. Þjálfararnir þrír  Alfreð Gíslason lauk glæsi- legum ellefu ára ferli sem þjálfari þýska handknattleiksliðsins Kiel með því að vinna EHF-Evrópubik- arinn og þýsku bikarkeppnina með liðinu.  Óskar Hrafn Þorvaldsson náði afar óvæntum árangri með karlalið Gróttu í knattspyrnu sem vann sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti og varð meistari 1. deildar.  Patrekur Jóhannesson þjálfaði karlalið Selfoss í handknattleik sem varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti vorið 2019. Liðin þrjú  Karlalið Selfoss í handknattleik varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti árið 2019.  Kvennalið Vals í handknattleik varð Íslands-, bikar- og deild- armeistari árið 2019.  Kvennalið Vals í körfuknattleik varð Íslands- bikar- og deild- armeistari árið 2019. Tíu efstu í kjörinu árið 2019  Samtök íþróttafréttamanna kjósa íþróttamann ársins í 64. sinn og opinbera úrslitin næsta laugardagskvöld  Gylfi, Sara og Aron oftast meðal tíu efstu  Fjórir nýliðar á listanum í ár Ljósmynd/Simone Castrovillari Sund Anton Sveinn McKee úr Sund- félagi Hafnarfjarðar. Ljósmynd/seth@golf.is Golf Guðmundur Ágúst Krist- jánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Morgunblaðið/Hari Knattspyrna Sara Björk Gunn- arsdóttir, leikmaður Wolfsburg. Morgunblaðið/Hari Körfubolti Martin Hermannsson, leikmaður Alba Berlín í Þýskalandi. Ljósmynd/Kraft.is Kraftlyftingar Júlían J.K. Jóhanns- son úr Ármanni. Morgunblaðið/Eggert Knattspyrna Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton á Englandi. Ljósmynd/KLÍ Keila Arnar Davíð Jónsson úr Keilufélagi Reykjavíkur. Ljósmynd/THW Kiel Kiel Alfreð Gíslason varð EHF- meistari og bikarmeistari. Ljósmynd/blikar.is Grótta Óskar Hrafn Þorvaldsson vann 1. deildina í knattspyrnu. Morgunblaðið/Hari Selfoss Patrekur Jóhannesson vann Íslandsmeistaratitilinn. Ljósmynd/Barcelona Handbolti Aron Pálmarsson, leik- maður Barcelona á Spáni. Morgunblaðið/Eggert Knattspyrna Glódís Perla Viggós- dóttir, leikmaður Rosengård. Ljósmynd/Guðmundur Karl Selfoss Íslandsmeistarar í handknattleik karla. Ljósmynd/ÍSÍ Frjálsíþróttir Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir úr ÍR. Morgunblaðið/Eggert Valur Þrefaldir meistarar í körfubolta kvenna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Valur Þrefaldir meistarar í handbolta kvenna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.