Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 Hinn 31. október sl. sendi ég Þingvalla- nefnd erindi um stefnumörkun hennar varðandi Þjóðgarðinn og áframhald á fjölda- köfun á vegum fyrir- tækja í gjánni Silfru í hjarta garðsins. Var það í annað sinn á einu ári sem ég beindi áskorun til nefndar- innar um það efni. Svar fékk ég loks 29. nóvember sl. frá formanni nefndarinnar, Ara Trausta Guð- mundssyni, fyrir hennar hönd. Þar eð hér er um stórmál að ræða sem varðar framtíð Þingvalla tel ég rétt að biðja Morgunblaðið að birta það sem okkur fór á milli, en ekkert er um það að finna á heimasíðu þjóð- garðsins eða í fundargerðum Þing- vallanefndar. Bréf mitt til Þingvallanefndar „Tilefni þess að ég nú skrifa Þingvallanefnd er umræða um köf- un í gjánni Silfru í Þjóðgarðinum á Þingvöllum í framhaldi af at- hugasemd Jónasar Haraldssonar til UNESCO vegna Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Sem einn af þremur fulltrúum Al- þingis átti undirritaður sæti í Þing- vallanefnd í 12 ár, þ.e. á tímabilinu 1980-1992. Þar átti ég hlut að fyrstu stefnumörkun Þingvallanefndar í skipulagsmálum sem samþykkt var og gefin út í maí 1988. Síðan hef ég sem áhugamaður fylgst með mál- efnum þjóðgarðsins og sent ítrekað ábendingar og tillögur til Þingvalla- nefndar. Síðast sendi ég nefndinni 10. október 2018 athugasemdir við tillögu um stefnumörkun fyrir þjóð- garðinn til ársins 2038 sem þá lá fyrir til kynningar. Þar kom m.a. fram sú skoðun mín að leggja beri af köfun í gjánni Silfru í hjarta þjóðgarðsins, en þess í stað verði komið upp aðstöðu til skoðunar og lifandi leiðsagnar á Þingvallavatni í Rauðukusunesi ut- an þinghelginnar nálægt suður- mörkum þjóðgarðsins. Um þetta sagði orðrétt í erindi mínu til nefnd- arinnar: „Í Rauðukusunesi (Kárastaðanesi) ná- lægt suðurmörkum þjóðgarðsins er ákjós- anlegur staður til að koma upp aðstöðu til skoðunar og lifandi leiðsagnar á Þingvalla- vatni. Þar ganga inn í nesið vatnsfylltar gjár sem hentað geta til köfunar og ágæt sýn er þaðan út yf- ir vatnið. Þarna er kjörið að koma upp og þróa aðstöðu til kynningar á vatninu, ekki síst fyrir skólaæsku, en einnig fyrir áhugamenn um köf- un og fyrir vöktunar- og rannsókn- araðila. Auðvelt er að koma þar upp bátanaustum og viðeigandi aðstöðu til siglinga á vélarlausum bátum. Um leið og þarna verði byggð upp aðstaða, m.a. til köfunar, ber að leggja af köfun í Silfru í hjarta þjóðgarðsins, en 56 þúsund manns fóru í gjána á árinu 2017. Þessi starfsemi samræmist á engan hátt eðlilegum rekstri, sbr. það sem seg- ir í „5.9. Stjórnun“ þar sem stendur (s. 19): „Starfsemi á vegum einka- aðila innan þjóðgarðsins fellur að skýrum ramma sem viðheldur nátt- úrulegu og vistvænu yfirbragði með virðingu fyrir helgi staðarins. Slíkri þjónustu er valinn staður í sam- ræmi við stefnu um landnotkun og almennt í hæfilegri fjarlægð frá þinghelginni.“ Lífríki Þingvallavatns er einstakt á heimsvísu. Þar hafa þróast fjórar gerðir af bleikju auk þess sem þar er að finna einstakan urriðastofn, frægan fyrir langlífi og stærð. Grá- bleikja er einstakt afbrigði dverg- vaxinnar bleikju sem er að finna í gjánum í þjóðgarðinum. Þingvalla- vatn er sérstaklega frjótt og gróð- ursælt þótt það sé mjög kalt. Um þriðji hluti botnsins er þakinn gróðri og magn þörunga er mikið. Lággróður nær út á 10 m dýpi en hágróður myndar stór gróðurbelti á 10-30 m dýpi. Alls hafa fundist um 150 tegundir þörunga og háplantna og 50 tegundir smádýra frá fjöru- borði og út á mikið dýpi. Vegur liggur frá þjóðvegi hjá Kárastöðum niður í Rauðukusunes. Frá ofanverðu nesinu er auðveld gönguleið norður í þinghelgina um Hallinn skammt ofan við vatnið og núverandi sumarbústaði. Á þeirri leið er auðvelt að skyggnast niður í Hrútagjá, Lambagjá og Hestagjá sem taka þar við til suðurs ein af annarri í framhaldi af Almannagjá. Með því að koma upp aðstöðu í Rauðukusunesi til kynningar og skoðunar á Þingvallavatni fæst æskileg dreifing á álagi og umferð gesta um þjóðgarðinn og ný sýn opnast til svæðis sem hefur að mestu verið hornreka til þessa í þjóðgarðinum.“ Frá Þingvallanefnd bárust mér engin svör vegna athugasemda minna, en nefndin samþykkti nýja stefnumörkun fyrir þjóðgarðinn á fundi sínum 12. desember 2018. Þar segir um núverandi stöðu: „Mjög eftirsótt er að kafa í gjánni Silfru. Nokkur fyrirtæki bjóða köfun, bæði í og undir yf- irborði vatnsins. Þessi fyrirtæki hafa haft bráðabirgðaaðstöðu fyrir tækjabíla í dæld norðan Silfru. Ver- ið er að greina burðarþol Silfru og móta leiðir til að stýra álagi á hana.“ (s. 21) Af þessum orðum í stefnumörk- uninni verður ekki annað ráðið en að halda eigi áfram köfun í gjánni Silfru. Þessu hefur nú Jónas Har- aldsson lögfræðingur mótmælt, m.a. í erindi til UNESCO, með vís- an til náttúruverndar, og tek ég eindregið undir sjónarmið hans. Annars staðar segir í stefnu- mörkun Þingvallanefndar: „Áhersla verði lögð á að kynna lífríki vatns- ins fyrir gestum á áhugaverðan hátt.“ (s. 48) Á öðrum stað segir: „Útivistarmöguleikar í Rauðukus- unesi verði þróaðir frekar.“ (s. 44) Hvort tveggja getur rúmað þær til- vitnuðu hugmyndir hér að ofan um aðstöðu í Rauðukusunesi sem ég fyrst nefndi í hugmyndasamkeppni um þjóðgarðinn haustið 2011 og ítrekaði í erindi mínu til nefndar- innar fyrir ári. Ég vil með þessu ítreka ofan- greind sjónarmið um leið og ég skora á Þingvallanefnd að hverfa frá því að heimila áframhaldandi köfun í gjánni Silfru. Með vinsemd og virðingu, Hjörleifur Guttorms- son. Afrit í enskri þýðingu til UNESCO, París.“ Svar Ara Trausta f.h. Þingvallanefndar Kæri Hjörleifur. Fyrst af öllu bið ég þig afsökunar á að nefndin hafi ekki svarað fyrr bréfi þínu frá 31. okt. 2019. Því valda annir og sér- staklega mínar, en ég fékk það verkefni að svara fyrir hönd nefnd- arinnar. Hvað alla stefnumörkun Þjóð- garðsins á Þingvöllum og Þingvalla- nefndar áhrærir vil ég upplýsa að unnið hefur verið vandlega með all- ar ábendingar sem bárust, einnig af hálfu þeirra sem vinna stefnuna í skipulagsmálum. Nefndin telur þær meginákvarðanir réttar sem teknar voru til dæmis um staðsetningu mannvirkja í samræmi við rök- studda stefnu í umhverfis- og verndarmálum þjóðgarðsins. Þegar verndar- og nýtingaráætlunin var samþykkt gerðist það samhljóða. Atvinnustefna hefur verið unnin í samræmi við verndar- og nýting- arstefnu þjóðgarðsins; íhaldssöm myndu margir segja, en engu að síður í samræmi við þverpólitískt álit nefndarmanna og faglega um- fjöllun sérfræðinga. Ég vona að þú sért nefndinni sammála um hana svo langt sem það nær, þ.e. að slepptri starfseminni í Silfru. Nefndina og þig greinir á um nýtingu á Silfru (og væntanlega líka Davíðsgjá). Sá ágreiningur snýst um það hvort núverandi starfsemi þar (í samræmi við nýgerða þol- markagreiningu) „falli að skýrum ramma sem viðheldur náttúrulegu og vistvænu yfirbragði með virð- ingu fyrir helgi staðarins“ (sbr. bréf þitt). Nefndin hefur einmitt metið þá virkni sem fylgir köfunarleyfum í Silfru í ljósi þessara, og raunar, fleiri atriða. Fyrst af öllu hefur Þingvalla- nefnd ekki aftekið með öllu að at- vinnustarfsemi kunni að verða leyfð í sigdalnum milli Almannagjár og Hrafnagjár eða innan „landhelgi“ þjóðgarðsins á Þingvallavatni svo meginsvæði sé afmarkað, einkum tímabundin starfsemi. Að svo komnu er þó aðeins um starfsemina í Silfru að ræða, sem ekki er á veg- um stofnunarinnar sjálfrar. Af meg- instefnu þjóðgarðsins má svo ráða að sú stefna að hafa umtalsverð ný mannvirki öll vestan Almannagjár mun merkja að mannvirki með verulegri fyrirferð, og reist vegna atvinnustarfsemi, verða vart stað- sett í þinghelginni eða nágrenni hennar. Smáhýsi, bílastæði og járn- stigi í Silfru teljast ekki, að mati nefndarinnar, spilla ásýnd Þing- valla. Að auki er stefnt að því að sumt af núverandi aðstöðu kafara og fyrirtækja þeirra vegna verði fært upp fyrir gjá þegar ný þjón- ustuaðstaða verður hönnuð, byggð og tekin í notkun nærri Langastíg. Flutningur viðskiptavina köfunar- fyrirtækjanna að Silfru mun þá fara fram með rafskutlum/rafrútum frá þeim stað, líkt og aðrir meginfólks- flutningar að helstu stöðum í þjóð- garðinum. Nefndin telur yfirbragð núverandi fyrirkomulags ásætt- anlegt en fagnar því sérstaklega að fyrir liggur að það falli betur inn í heildarásýnd þinghelginnar þegar fram líða stundir. Almennt tekur nefndin undir þau sjónarmið að ýmiss konar afþreying og náttúru- eða menningarskoðun eigi að rúmast innan þjóðgarða, og þá að sjálfsögðu í samræmi við eðli þeirra og stærð. Á Þingvöllum get- ur afþreying falist í skipulögðum gönguferðum, sýningum, tónleikum, hjólreiða- eða hestaferðum á sér- leiðum, bátsferðum og takmarkaðri köfun, svo það helsta sé nefnt. Ný svæði munu opnast í þessu skyni, jafnt á Rauðukusunesi sem á land- svæði suðaustan vatns, til dæmis hjá Arnarfelli. Þar geta komið við sögu ýmist opinberar stofnanir, þjóðgarðurinn eða einkaaðilar, í samræmi við atvinnustefnuna. Köfun í Silfru er ein tegund nátt- úruskoðunar og er eitt og annað að finna í skjölum þjóðgarðsins um viðhorf þar að lútandi: Í stefnu- mörkun Þjóðgarðsins á Þingvöllum er fjallað um afþreyingu og dvöl innan hans í kafla 5.3 og þar er vik- ið að umgjörð atvinnustarfsemi í þjóðgarðinum. Í kafla um Framtíð- arsýn stendur þetta: „Aðstaða til móttöku þeirra ólíku hópa sem sækja þjóðgarðinn á Þingvöllum heim er góð allt árið um kring og miðar að því að skapa gott aðgengi og ánægjulega upplifun gesta en tryggja jafnframt varðveislu og góða umgengni um náttúru- og menningarminjar. Gengið er út frá því í allri uppbyggingu og fyr- irkomulagi varðandi móttöku gesta að meginmarkmiðið er að miðla menningar- og náttúrufarslegri sér- stöðu Þingvalla. Þingvellir hafa yfirbragð kyrrðar og helgi og upp- bygging mannvirkja fellur vel að umhverfinu. Innan þjóðgarðsins er hægt að njóta náttúru, upplifa sögu, fræðast og stunda útivist á lifandi og skemmtilegan hátt og gestir fara almennt fróðari eftir dvöl sína í þjóðgarðinum.“ Og enn fremur: „Gestir eiga þess kost að kynnast lífríki vatnsins og umhverfinu þar.“ Með því að heimila köfun í Silfru og Davíðsgjá er almenningi veitt að- gengi að vatninu. Þar geta gestir upplifað náttúru Þingvallavatns með sérstæðum hætti en auðvitað er unnt að gera það á annan veg, t.d. með sérbúnum bátum, ef því væri að skipta. Þeir hópar sem fara í skipulagða ferð í Silfru fá allir upplýsingar og fræðslu um þjóð- garðinn, grunnvatnsstrauma og líf- ríki Þingvallavatns. Þolmarkagreining EFLU og samstarfsaðilans, sérfræðingsins Nathans Reigners, gefur tilefni til að ætla að áhrif djúpköfunar og snorkls hafi ekki umtalsverð áhrif á vatnagróður eða dýralíf í Silfru. Á það skal jafnframt minnt og undir- strikað að eftirlitsáætluninni sem fylgir er ætlað að skera úr um hvort greiningin standist eðlilega rýni eður ei. Komi í ljós að frum- greining EFLU reynist gölluð er unnt að bregðast við og minnka álag á Silfru með breytingum á köf- unarleyfum eða jafnvel ganga enn lengra. Skemmdir á gróðurlendi við Silfru eru arfleifð fyrr tíðar og merkt ástandi þegar lítt var ráðið við snarvaxandi álag gesta. Nú er tekist á við gróðurskemmdir með æ betri árangri. Ég hvatti Jónas Haraldsson til þess, í samvinnu við Þingvallanefnd, að leita formlega til UNESCO með sínar skoðanir. Það hefur hann gert, eins og þú minnist á, og okkur hefur borist bréf með fyrirspurnum frá UNESCO. Þeim verður svarað mjög ítarlega og er efni svarbréfs- ins nú langt komið í samráði við til þess bæra aðila. Þá er að bíða eftir viðbrögðum UNESCO og bregðast enn á ný við þeim. Ég get fullvissað þig um að farið verður eftir þeim tilmælum um Silfru, ef einhver verða, sem kunna að berast þjóð- garðinum og Þingvallanefnd frá UNESCO í tilefni af umkvörtunum Jónasar Haraldssonar. Virðingarfyllst, Ari Trausti Guð- mundsson, form. Þingvallanefndar. Með þökk fyrir birtinguna, Hjörleifur Guttormsson. Erindi til Þingvallanefndar um Silfru og viðbrögð við athugasemdum Eftir Hjörleif Guttormsson » Þar eð hér er um stórmál að ræða sem varðar framtíð Þingvalla tel ég rétt að biðja Morgunblaðið að birta það sem okkur fór á milli. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.