Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Verið velkomin í verslun okkar Opið 16. -20. des. frá kl. 8:30-18:00 og 21. des. frá 11:00 -15:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Vatnaskil Það er síst ástæða til að gera lítið úr áhrifum þessa sambands [Wal- ters Benjamin og Ösju Lacis] á við- horf Benjamins til heimsins. Honum verður sjálfum tíðrætt um að honum finnist hann hafa tekið hamskiptum. Frá því að hann var á yngri árum var hann – í kjölfar Parísarferðar – tíður gestur í vændishúsum. Hann og Dora konan hans hafa um árabil lifað saman eins og systkini. Ást hans á Jule Cohn var ófullnægð, enda ekki gagnkvæm. Það er því ekki of djúpt í árinni tekið að halda því fram að samband hans við Lacis – konu sem Benjamin finnst mjög líkamlega aðlaðandi og virðir jafn- framt mikils sem andlegan félaga – sé fyrir honum eins konar kyn- ferðisleg vakning, nánast eins og nýtt holdlegt upphaf: fullnægð ást í orðsins fyllstu merkingu. Og auðvit- að ljúka samtölin við þennan sann- færða kommúnista og aðgerðasinna upp nýjum víddum og sjónarhornum fyrir Benjamin: afstaða Lacis til sambands kenninga og athafna, list- ar og stjórnmála, aðgerða og grein- ingar er í algjörri mótsögn við þau viðhorf sem Benjamin hefur aðhyllst til þessa. Rússneski aðgerðasinninn fær heldur engan veginn skilið hvernig nokkur maður getur eytt tíma sínum í þýskt barokkleikhús 17. aldar á meðan Evrópa rambar á barmi byltingar. Í hennar augum er það einmitt dæmigert fyrir þá borg- aralegu flóttaspeki sem Benjamin vændi starfsbræður sína á ráðstefn- unni í Napólí um. Kynnin af Lacis verða til þess að kommúnisminn sem kenning og raunhæfur mögu- leiki eignast fastan samstað í hugs- un Benjamins. Allar götur síðan á hann eftir að vinna að því að koma þessu nýja hugarflæði í fastan far- veg. Án árangurs, reyndar. Bráðlega sjást þessar tvær ókunnugu manneskjur á reglulegum gönguferðum með barnið um stíg- ana á eyjunni, þau gantast og skrafa saman, auk þess sem þau hafa vísast sýnt hvort öðru ótvíræð blíðuhót. Ferðir þeirra til borgarinnar við hinn enda víkurinnar verða líka sí- fellt tíðari, en bæði Benjamin og Lacis eru gjörsamlega bergnumin af Napólí, með ólíkum hætti þó. Um leið og Lacis finnur einkum fyrir miklum byltingarkrafti í hinu til- finningaþrungna daglega lífi í borg- inni finnst Benjamin hér vera æva- forn og táknræn öfl að verki. Á meðan Lacis horfir á slynga hlut- verkaskipan fólks á torginu sem fjölbreytt framúrstefnuleikhús er þetta mannlíf í augum Benjamins frjálsleg sviðsetning á táknrænum og dulúðugum leikverkum barokk- tímans. Það sem er í augum Lacis beinharður efnislegur veruleiki og gjörningalist er fyrir Benjamin ákveðnar huglægar aðstæður sem taka á sig skammlífar ytri myndir. Eins og títt er um fólk sem er ný- orðið ástfangið er þeim báðum mjög í mun að sjá heiminn með augum hins, að gera sjónarhorn hins að brennidepli eigin sjálfs. Til marks um þessa viðleitni er borgarlýsingin „Napólí“ sem þau skrifuðu saman sumarið 1924. Þetta er einstök heimild um það sem ger- ist þegar lífsskoðanir menningar- legs aðgerðarsinna sem aðhyllist framúrstefnu-kommúnisma samlag- ast tímalausri greiningu sérvitrings sem er hallur undir viðhorf hug- spekinnar. Þannig virðist það liggja nánast beint við að fyrirbærið gleypni, þ.e. ákveðin viðkvæmni sem er fær um að sætta gallharðar and- stæður, skuli vera eins konar leiðar- stef í þessari heimspekilegu borgar- lýsingu. Gleypni sem undirstaða hins sanna, m.ö.o. napólíska lífs: Hellar hafa verið höggnir í sjálft bergið þar sem það mætir strönd- inni. Eins og á myndum úr lífi ein- setumanna frá 14. öld getur að líta hurðir hér og þar í klettunum. Séu dyrnar opnar sést inn í stóra kjall- ara sem eru svefnskálar og vöru- geymslur í senn. Enn fremur sjást tröppur sem liggja niður að sjónum, að fiskimannakrám sem komið hefur verið fyrir í náttúrulegum hellum. Á kvöldin berst þaðan úr neðra dauf birta og lágvær tónlist. Byggingarlagið er jafn gljúpt og bergið sjálft. Í bæjarhúsum, súlna- göngum og tröppum renna húsa- kynni og athafnir saman í eitt. Alls staðar er haft ákveðið svigrúm svo að rýmið geti breyst í leikvang nýrra, ófyrirséðra aðstæðna. Menn forðast allt sem er fastmótað, óum- breytanlegt. Engar aðstæður líta út eins og þær eru, fullráðnar, ekkert fyrirbæri gerir kröfu til að vera „svona og ekki öðru vísi“. … Því ekkert er frágengið, engu lokið. Gleypnin er ekki aðeins afleið- ing þess hvað suðrænir handverks- menn eru kærulausir, heldur skýrist hún af ástríðufullu dálæti fólksins á spuna. Það verður alltaf að vera tækifæri og svigrúm fyrir spunann. Byggingar eru notaðar sem alþýðu- leikhús. Allir deila með sér fjölda leiksviða þar sem leikið er samtímis. Svalir, garðar, gluggar, stígar, tröppur. Þökin eru leiksvið og svalir í senn. Jafnvel þeir sem aumastir eru gera sér óljósa grein fyrir hvoru tveggja; annars vegar því að þrátt fyrir bágborið ástand eru þeir þátt- takendur í einstæðum götumyndum í Napólí, auk þess að njóta hins þokkafulla rósemdarlífs, vera hluti af víðri heildarmyndinni. Það sem fer fram á tröppunum lýtur háþró- aðri leikstjórn. Leikendurnir, sem aldrei koma alveg í ljós án þess þó að vera lokaðir inni í dauflitum, norrænum húsakössum, skjótast snöggt út úr húsunum, snúast á hæl og hverfa áður en þeir ryðjast síðan aftur fram á sviðið. Á því leikur enginn vafi að hér hefur Benjamin haldið um pennann. Það sjónarhorn sem ræður í text- anum er aftur á móti frá Lacis kom- ið. Hreinræktuð lífsgleði, takmarka- laus ofgnótt og glaðleg tilbreyting, allt þetta var óþekkt í fyrri skrifum Benjamins. Í þessari nýju lífssýn renna í sífellu saman andstæður sem virðast ósættanlegar: gott og illt, hið ytra og innra, vinna og leik- ur, dauði og líf, kenning og aðgerðir. „Töframenn- irnir“ fjórir Bókarkafli | Í bókinni Tími töframanna segir Wol- fram Eilenberger frá „töframönnunum“ fjórum, heimspekingunum Walter Benjamin, Ernst Cassirer, Martin Heidegger og Ludwig Wittgen- stein, og gefur innsýn í það hvernig ástir og ástríður fléttast saman við heimspeki þeirra. Arthúr Björgvin Bollason þýddi bókina, Háskóla- útgáfan gefur út. Töframenn Þýskir hugsuðir og listamenn, þar á meðal heimspekingurinn Walter Benjamin, leituðu sér athvarfs á eynni Kaprí sumarið 1924. Samkomustaður þeirra var Kafe zum Kater Hiddigeigei sem þýskt par rak. Walter Benjamin Asja Lâcis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.