Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 Gefðu slökun í jólagjöf Líkamslögun 25%afslátturaf gjafakortum Gjafakortin fást hjá likamslogun.is Nýbýlavegur 8 (í portinu) 200 Kópavogur | sími 777 6000 | likamslogun.is Dansk julegudstjeneste holdes i Domkirken tirsdag den 24. december kl. 15.00 ved pastor Ragnheiður Jónsdóttir. Alle velkomne. Danmarks ambassade. Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarka hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sú hefð ríkir á Patreksfirði í aðdrag- anda jóla að sjávarútvegsfyrirtækið Oddi hf., sem er stærsti vinnuveit- andinn á staðnum, býður bæjar- búum í skötuveislu í hádeginu á Þor- láksmessu. Þetta hefur mælst vel fyrir og undanfarin ár hafa nokkuð á annað hundrað manns mætt í veisl- una sem haldin er í félagsheimili bæjarins. „Þetta er skemmtileg stund og stemn- ingin góð. Fólki finnst líka ágætt að komast í skötu utan heimilis, enda fylgir henni sterk lykt sem varla er hægt að láta liggja í loft- inu í heimahúsum,“ segir Sigurður Viggósson, stjórnarformaður Odda hf., sem hefur verið driffjöðrin í und- irbúningi þessarar hátíðar. Lóðaskata á línuna Að borða kæsta skötu á Þorláks- messu hefur trúarlega merkingu úr kaþólskum sið. Sú var tíðin að sjálf- sagt þótti á aðventunni að sýna hóf í öllu en gera sér svo dagamun á jól- unum sjálfum. Vera dagana fyrir jól með lakara fiskmeti á borðum, svo sem skötuna sem veiddist ágætlega á Vestfjarðamiðum á þessum tíma árs. Þetta er hin einfalda ástæða þess að hefðin kemur að vestan. Auk þess þótti ekki við hæfi að borða kjöt 23. desember, það er á dánardegi hins heilaga Þorláks Skálholtsbisk- ups. „Lóðaskata, sem aðrir kalla tinda- bikkju, kemur alltaf í nokkrum mæli á línu Patreksfjarðarbáta. Félagar í Lionsklúbbnum hér fá fiskinn sem þeir kæsa og selja í fjáröflunarskyni. Við í Odda kaupum alltaf vænan skammt fyrir veisluna, sem fyrst var bara fyrir starfsfólk okkar. Svo fóru fleiri að láta sjá sig, svo sem fólk héðan af næstu fjörðum, og auðvitað vísum við engum frá,“ segir Sigurð- ur Viggósson. Bætir við að hann sé af kynslóð sem vandist því að skata væri oft á borðum. Dæmigerður mánudagsmatur ef svo má segja. Með breyttri matarmenningu þjóð- arinnar hafi skatan fallið úr móð – en komið sterk inn síðar meðal annars fyrir tilstilli veitingamanna í Reykja- vík og fleiri. Hlökkum til Þorláksmessu „Mér finnst þetta skemmtilegur siður og við hér í Odda hlökkum allt- af til Þorláksmessu,“ segir Sigurður Viggósson. Annar siður sem Odda- menn viðhafa fyrir jólin er síðan að þeir Sigurður og Skjöldur Pálmason framkvæmdastjóri heimsækja alla Patreksfirðinga 67 ára og eldri fyrir jólin og færa þeim 5 kíló af ýsu. „Gamla fólkið bíður eftir þessari jólagjöf og þakklætið sem við fáum þegar við komum með fiskinn gerir þetta eitt af skemmtilegust verk- unum sem ég sinni í mínu starfi,“ segir Skjöldur. Skemmtileg stund og stemning góð  Skötuveisla á Patreksfirði er haldin í dag  Oddi býður öllum bæjarbúum í mat  Hefð á Þorláks- messu  Sterka lyktin liggur í loftinu  Stjórnendur fyrirtækisins ganga í hús og gefa eldra fólki ýsu Ljósmyndir/Ari Hafliðason Skata Veislan í félagsheimilinu er jafnan fjölsótt. Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda, setur fisk á disk og rúgbrauð með smjöri fylgir með. Sigurður Viggósson Á veitingastaðnum Þremur frökkum í Þingholtunum í Reykjavík er vænst allt að 500 manns í skötu í dag. Fyrstu gestir koma laust fyrir hádegi og þeir síðustu þegar langt verður liðið á kvöld „Þetta er í raun fjögurra daga lota, fyrstu skötugestirnir komu á föstudaginn og hvert borð hér hefur verið setið um helgina. Há- punkturinn er svo Þorláksmessa,“ segir Stefán Úlfarsson veit- ingamaður í samtali við Morg- unblaðið. „Skatan sem við fáum er vel kæst og útlendingarnir sem hing- að koma segja að þeim sortni fyrir augum, svo sterk er lyktin. Fyrir þá sem treysta sér ekki alla leið bjóðum við líka upp á til dæmis saltfisk og einnig skötustöppu með smjöri, steinselju og hvítlauk. Slíkt hefur unga fólkið kunnað vel að meta.“ Lyktin er sterk UM 500 MANNS MÆTA Í SKÖTU Á ÞREMUR FRÖKKUM Í DAG Morgunblaðið/Eggert Matur Stefán Úlfarsson hefur haft í nógu að snúast síðustu daga. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.