Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Hari Alþingi Frumvarpi um starfsloka- aldur var vísað til ríkisstjórnar. Lagafrumvarpi um hækkun starfs- lokaaldurs ríkisstarfsmanna var vís- að til ríkisstjórnarinnar á fundi Al- þingis á mánudaginn í síðustu viku. Frumvarpið, sem Þorsteinn Sæ- mundsson flutti, miðar að því að gera ríkisstarfsmönnum kleift að starfa hjá ríkinu til 73 ára aldurs í stað 70 ára eins og nú er. Stuðningur var við efni frum- varpsins í efnahags- og viðskipta- nefnd þingsins en nefndin taldi nauðsynlegt að fram færi heildstæð endurskoðun á lögum og reglum um starfslokaaldur í samráði við samtök opinberra starfsmanna og aðra sem hagsmuna hafa að gæta. Við þá skoðun verði m.a. metið hvort tilefni sé til að ákvæði um hámarksaldur verði afnumin og önnur viðmið um hæfi einstaklinga innleidd í þeirra stað. Nefndin beinir því til ráðuneyt- isins að samráð og önnur vinna við endurskoðun á framangreindum for- sendum hefjist þegar í byrjun ársins 2020 og að ráðherra leggi fram laga- frumvarp með tillögum að breyt- ingum á haustþingi. Samráð um starfslok  Frumvarpi vísað til ríkisstjórnarinnar 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 Við sendum landsmönnum hlýjar kveðjur 569 6900 09:00–16:00www.ils.is Með ósk um gleðileg jól og farsæld á komandi árum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það er alltaf gaman þegar ný íslensk borðspil koma á markaðinn og ekki verra þegar þau eru aðgengileg fyrir alla fjölskylduna eins og blekk- ingaspilið Lortur í lauginni eftir Ingva þór Georgsson. Spilið varð til á tiltölulega stuttum tíma en Ingvi ákvað í byrjun þessa árs að gera jákvæðar grundvallar- breytingar á lífi sínu og setti sér um leið nokkur háfleyg markmið. Eitt þeirra var að gefa annaðhvort út bók eða spil, og á endanum varð spilið fyr- ir valinu. „Þróunarvinnan hófst í febrúar og fór allt sumarið í það að prófa spilið með vinum og vanda- mönnum samhliða því að undirbúa framleiðslu og dreifingu,“ útskýrir Ingvi. Eflaust þekkja sumir lesendur vin- sæl blekkingaspil á borð við Varúlf og Mafíu en líkt og þau er best að spila Lort í lauginni þegar fimm eða fleiri taka þátt. Spilarar deila á milli sín hlutverkum í upphafi leiks og eru tveir eða þrír þeirra „vondir“ og til- gangur spilsins að finna út hver kúk- aði í laugina. Þátttakendur eru gestir í Egils- staðalaug, hver öðrum litríkari: „Allir loka augunum í upphafi spilsins, nema þeir vondu sem færa lortinn inn á spilaborðið svo lítið beri á. Þá taka við svk. atvikaspjöld sem leiða leikinn áfram og gera leitina að „lortinum í lauginni“ enn meira spennandi,“ út- skýrir Ingvi en þátttakendur þurfa meðal annars að reyna að lesa út úr látbragði og svörum hver annars, hver er að ljúga og hver að segja satt. Egilsstaðalaug varð fyrir valinu því Ingvi bjó á þeim slóðum á sínum yngri árum og segist hafa tekið þar sundsprett í margar þúsundir skipta, þó alltaf án þess að rekast á einn ein- asta kúk í lauginni. Leikurinn tekur um tuttugu mínútur sem er hæfilega langur tími þegar vinir eða ættingjar vilja gera sér glaðan dag. „Á notalegu kvöldi má taka eitt eða tvö spil sér til dægrastyttingar og þá spila bara Lort í lauginni eða blanda saman spil- um á heilu spilakvöldi,“ segir Ingvi en það var einmitt eitt af markmiðum hans í upphafi að gera ekki flókið og langdregið spil. Kemur vonandi út á sléttu Spilið er framleitt hjá sérhæfðri prentsmiðju í Kína og segir Ingvi að íslenskar prentsmiðjur hafi ýmist ekki svarað óskum hans um að fá til- boð, eða verðið verið svo hátt að aug- ljóst væri að mun hagkvæmara væri að gera spilið erlendis. Myndskreyt- ingu spilsins annaðist listamaður í Mexíkó sem Ingvi fann í gegnum verktakasíðuna Upwork. Hversu mikið á síðan græða á því að gefa út spil? Ingvi reiknar með að honum takist að koma út á sléttu, með smá heppni, en hann orðar það þannig að samkvæmt viðskiptaáætl- uninni geti hámarkstap hans af verk- efninu numið ígildi tvennra mán- aðarlauna. Hann safnaði áheitum á hópfjármögnunarsíðunni Karolina Fund og kom það verkefninu vel af stað. Ingvi segir ætlunina ekki hafa verið að hagnast nein ósköp en von- andi að verkefnið skili lítilsháttar hagnaði þegar upp er staðið. Að því sögðu þá má finna dæmi um spil sem hafa slegið í gegn, ýmist á Íslandi eða erlendis, og gert ágætis lukku. Fræg- ast er eflaust kanadíska spilið Trivial Pursuit sem selst hefur í meira en 100 milljón eintökum og gert höfunda spilsins sterkefnaða. „Fyrir mig eru peningarnir aukaatriði en þeim mun skemmtilegra að fara í gegnum þetta ferli,“ segir Ingvi sem vonast til að Lorts-verkefnið verði langhlaup frekar en sprett- hlaup. Ætlunin er að gefa spilið líka út á ensku, undir nafninu Pool Pooper. Verður gaman að fylgjast með hvernig gengur en mikil gróska er í vinsældum borðspila á heimsvísu og segir Ingvi að árlegur vöxtur borð- spilamarkaðarins sé á bilinu 10 til 20%. „Spilaflóran er að sama skapi orðin mjög fjölbreytt, spilabúðir hafa sprottið upp og margir hafa tamið sér að spila reglulega með vinum og ætt- ingjum. Það sem fólk hefur m.a. upp- götvað er að gott spil býður upp á ánægjulega samverustund, tækifæri til að leggja frá sér símann, kúpla sig út úr amstri hversdagsins og skapa ánægjulegar minningar.“ Spennandi leit að lortinum  Í nýju spili reyna leikmenn að finna út hver stalst til að kúka í Egilsstaðalaug Sígilt Ingvi Þór Georgsson segir spilamarkaðinn stækka ört enda margir sem hafi uppgötvað hve notalegt það er að eiga ánægjulega stund yfir góðu spili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.