Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við kynntumst í leikskólaþegar við vorum þriggjaára og urðum strax bestuvinkonur. Við vorum orðn- ar fimm ára þegar við komumst að því að við erum frænkur. Við erum líka báðar fæddar í sama mánuðinum, 11. og 21. september, og erum því báðar meyjur, í sama stjörnumerkinu. Við æfum líka saman körfubolta hjá Ár- manni og erum saman í kór, Graduale Liberi í Langholtskirkju,“ segja þær nöfnurnar María Elín og María Björt sem eru sérlega samrýndar þó þær gangi ekki í sama grunnskóla, en þær búa í sama hverfi í Reykjavík, í Voga- og Langholtshverfinu. María Elín er í Vogaskóla en María Birta í Lang- holtsskóla, báðar í þriðja bekk. „Ég er stundum kölluð María mey í skólanum,“ segir María Elín sem bauð Maríu Birtu heim til sín að hjálpa til við að skreyta piparkökur fyrir jólin. Þær voru komnar í gríð- arlega mikið jólaskap þegar blaða- mann bar að garði, sönglandi jólalög og búnar að setja upp jólasveinahúf- ur. „Það hefur verið alveg nóg að gera hjá okkur í jólaundirbúningnum, við höfum verið að búa til jólagjafir, föndra jólaskraut og allskonar og jólaskreyta mjög mikið.“ Stúfur er í miklu uppáhaldi Þegar Maríurnar tvær eru spurðar að því hvort einhver af gömlu jólasveinunum sé í uppáhaldi hjá þeim, svara þær báðar að bragði: Stúfur! „Af því hann er svo lítill og hann heldur að við séum stórar og gefur okkur stórar gjafir í skóinn. Ég fékk bókina Orri óstöðvandi frá Stúfi núna,“ segir María Elín og María Birta segir að sig langi mjög mikið í þá bók, enda eru þær báðar miklir lestrarhestar. „Við eigum margar uppáhaldsbækur, Verstu börn í heimi er til dæmis frábær bók, Grimmi tannlæknirinn og Mamma klikk eru líka skemmtilegar og Pabbi prófessor og Siggi sítróna. Lína langsokkur og Emil í Kattholti eru líka í miklu uppá- haldi hjá okkur.“ Einu sinni hitti María Elín Bjúgnakræki þegar hún var lítil, en varð ekki um sel af því hann talaði svo hátt. Þær segjast hafa skrifað bréf til jólasveinanna og Stúfur litaði eitt sinn myndina sem María Björt hafði teikn- að á bréfið til hans. En hafa þær reynt að halda sér vakandi á nóttunni til að reyna að sjá þegar jólasveinarnir koma og lauma einhverju í skóinn hjá þeim? „Við vitum alveg að jólasvein- arnir vilja ekki láta krakka sjá sig, þess vegna laumast þeir til okkar á nóttunni og við ætlum ekki að reyna að sjá þá, því annars gefa þeir okkur aldrei aftur í skóinn.“ María Elín seg- ist trúa að til sé ein jólabjalla sem ferðast um allan heim með öðrum bjöllum. „Þetta er mjög einstök bjalla frá jólasveininum og ef maður heyrir í henni, mjög lágan bjölluhljóm, þá veit maður að það er jólasveinninn. Ef maður heyrir í henni þá hefur maður verið mjög góður á jólunum og elskar jólin. Ég er enn að reyna að finna þessa bjöllu og hlusta eftir bjöllu- hljóminum í henni,“ segir hún spennt. Jólin ekki bara fyrir gjafir Þær vinkonurnar og frænkurnar hafa lært heilmikið um Jesú, Maríu nöfnu sína og Jósep, og um hvað jólin snúast. „Við erum búnar að taka þátt í tveimur helgileikjum og vitum alveg af hverju við höldum jól, það er af því að þá fæddist Jesúbarnið,“ segja þær hátíðlega. „Mér finnst dýrmætast að halda jólin með fjölskyldunni minni, af því jólin eru ekki bara fyrir gjaf- irnar, jólin eru fyrir kærleik, gleði og hamingju og að vera saman,“ segir María Elín og nafna hennar tekur undir það og bætir við að það sé líka mjög hátíðlegt að syngja í kórnum í Langholtskirkju um jólin. „Við erum búnar að halda tvenna tónleika og syngjum líka annan í jól- um.“ Þegar þær eru spurðar að því hvort einhver jólamatur sé í uppá- haldi hjá þeim hafa þær enga sér- staka skoðun á því en María Björt heldur mest upp á hangikjötið. „Ég gubba ef ég borða hestakjöt eða svínakjöt, en mér finnst allur annar jólamatur góður,“ segir María Elín sem er lunkin við að púsla smáum og erfiðum púsluspilum, hún fær tuttugu púslbita á hverjum degi í jóladagatali og púslar þannig smám saman jóla- sveinamynd sem samanstendur af hvorki meira né minna en þúsund bit- um. „Ég geri þetta alveg ein, og pabbi passaði að setja púslbitana í rétta röð í pokana á réttum degi svo myndin stækki smátt og smátt en sé ekki í bútum út um allt.“ Jólalegt Sannarlega er gaman að dunda sér við góðgætið. Maríur tvær pæla í jólunum „Við vitum alveg að jóla- sveinarnir vilja ekki láta krakka sjá sig, þess vegna laumast þeir til okkar á nóttunni og við ætlum ekki að reyna að sjá þá, því annars gefa þeir okk- ur aldrei aftur í skóinn,“ segja María og María sem eru jólaspenntar. Morgunblaðið/Eggert Piparkökuskreytingar María Björt og María Elín njóta þess að vera saman í jólaundirbúningnum. Jólastrákur Páll Ingvar, litli bróðir Maríu Elína, vildi fá að vera á mynd. Vönduð vinnubrögð Þær lögðu sig fram við skreytinguna. Púslið stóra 1.000 bitar og María Elín er alvön slíku. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 3.290,- 140 gramma hreindýrahamborgari með piparsósu, trönuberja/melónusultu ruccola, rauðlauk og sætum frönskum kartöflum. HREINDÝRA BORGARINN er kominn! NÝTT Í DESEMBER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.