Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 41
var á herskipum með ríkiserfingjum Svíþjóðar og Noregs til landsins. Arndís dvaldi á heimilinu þar sem stærstu goðsögur 20. aldar voru skapaðar en flýtti sér heim til Íslands af því að hún taldi sig fara á mis við eitthvað spennandi. Og reyndar hljómar dvölin í Oxford meira eins og dvöl í kyrrlátri Hobbita-holu miðað við þennan einstæða viðburð á Þing- völlum og senan hljómar vissulega eins og atriði úr Hringadróttinssögu: Álfamærin flýtir sér heim þegar kon- ungbornir flykkjast á helgasta stað eldfjallaeyjunnar til að fagna þúsund ára þinghaldi. Ég kynntist ekki Páli bróður þeirra en hann var skipstjóri á Skaft- fellingi sem gerði út frá Vest- mannaeyjum og sigldi með ísfisk til Bretlands á stríðsárunum. Áhöfnin var stöðugt á varðbergi enda var krökkt af tundurduflum í sjónum og þýskar flugvélar og kafbátar höfðu ítrekað framið fjöldamorð á íslensk- um sjómönnum. Skaftfellingur var skipið sem fyrst kom að línuveiðar- anum Fróða, sundurskotnum eftir fólskulega árás árið 1941 sem varð fimm manns að bana. Þýskar flug- vélar skutu jafnvel óvopnaða sjómenn sem komust á björgunarfleka. Í ágúst árið 1942 varð áhöfnin á Skaftfellingi vör við ógreinilega þúst sem maraði í hálfu kafi í sjónum og reyndist vera laskaður þýskur kaf- bátur. Skipverjar héngu utan á turn- inum og báturinn að því kominn að sökkva. Þeir voru sjö um borð í Skaft- fellingi, með eina byssu, og björguðu 52 bátsverjum af kafbátnum. Páll var yfirheyrður af breska hernum þegar hann skilaði Þjóðverjunum í hendur þeirra. Breska sjóliðið skildi ekkert í þessari fífldirfsku, að leyfa þeim ekki bara að sökkva. Fimmtíu og tveir her- menn hefðu átt auðvelt með að ná skipinu á sitt vald og sigla því til Þýskalands. Stundum hef ég velt fyrir mér hvort þetta hafi verið góðverk eða hvort sjómenn í Vestmannaeyjum hafi haft svo sterk gildi og svo sára reynslu af dauða og drukknun að hugmyndin um að gera ekkert til að hindra að ung- ir menn hyrfu í hafið hafi verið ómögu- leg í hugsun eða framkvæmd. Heimurinn er fullur af sögum og allt of margt sem hverfur inn í þokuna. Sérhver ævi er ævistarf og svo þarf hver og einn að lifa sína eigin sögu. Ég spurði Björn afa minn hvenær honum fyndust markverðustu breytingarnar hafa orðið í heiminum frá því hann fæddist. Hvenær breyttist heimurinn mest á þinn ævi? Afi sagði hiklaust: Á síðustu tíu ár- um. Afi hafði lifað tímana tvenna, fædd- ur á Bíldudal þar sem hann veiddi síld á frumstæðum gufuskipum, og sem læknir hafði hann ferðast um Vest- firði á hestbaki til að vitja sjúklinga áður en hann flaug út í heim og kast- aði sér inn í hringiðuna í New York. Hann komst í tæri við byltinguna í Ír- an og sjálfur Prómeþeifur lagðist undir hnífinn hjá honum. Afi hefur séð allt þetta en samt segir hann síð- ustu tíu ár. Þá á hann við tölvurnar, internetið, erfðavísindin, samfélags- miðlana, upplýsingatæknina – að geta skæpað barnabörnin. Og allt í einu finnst mér ég ekki hafa misst af neinu. Það væri kaldhæðnislegt að týna sér í gömlum sögum og gleyma um leið að veita sínum eigin samtíma athygli – og ekki síst framtíðinni. Ef við skoðum mælingar og gögn hefur afi rétt fyrir sér tölfræðilega. Í heimi þar sem breytingar eru veldis- vaxandi urðu á mörgum sviðum meiri breytingar á síðasta áratug heldur en alla tuttugustu öldina. Um aldamótin 2000 voru framleiddir um 58 milljón bílar árlega í heiminum, núna eru þeir 100 milljónir á ári. Sandflutn- ingar með vörubílum eru meiri en setflutningar í stórfljótum heimsins. Helmingurinn af öllu plasti sem hefur verið framleitt í heiminum varð til eftir aldamótin 2000. Á síðustu tíu árum voru átta heit- ustu ár frá upphafi mælinga og frá aldamótum hafa íslensku jöklarnir hopað meira en þeir hopuðu sam- anlagt hundrað ár þar á undan. Það er ástæða til að taka eftir samtím- anum. Mesti breytingatíminn er núna. Morgunblaðið/Árni Sæberg MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019 Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 KERTI úr hreinu bývaxi Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Fallegir ljósakrossar • Ljósakrossar á leiði og duftreiti • Stór glær akrýlkross með glóandi köntum fyrir leiði • Minni krossar fyrir duftreiti • Engin þörf á innstungu • Íslensk hönnun og framleiðsla • Rafhlöður lifa yfir jólin (seldar sér) • Möguleiki á mynd og texta Systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prinsum Sipp, Sippsippanipp og Sippsipp- anippsippsúrumsipp bbbbn Eftir Blæ Guðmundsdóttur. Bókabeitan, 2019. Innb., 48 bls. Þetta er fyrsta bók Blævar, myndskreytis og grafísks hönn- uðar, og er ákaflega vel heppnað verk í alla staði. Sagan, sem gamalt ævintýri, fjallar um Sipp og syst- ur hennar og vonbiðla þeirra, Skrat og bræður hans, en þau eru öll kon- ungborin. Þau lenda í ýmsum ævintýrum eins og gengur og gerist í slíkum frá- sögnum en nútíminn hefur sett mark sitt hana. Ramminn er form- úla ævintýranna; prinsar og prins- essur, sem er bjargað úr háska og endar með hamingjusömu hjóna- bandi. Hins vegar er snúið upp á kynja- hlutverkin. Systurnar eru lögga, vísindamaður og líkamsræktar- frömuður. Þær hafa engan tíma fyrir ástina og hlusta ekki á föður sinn sem skannar stefnumóta- síðurnar í von um að koma þeim saman við hinn eina rétta. Sagan er skemmtileg og ættu all- ar kynslóðir að hafa gaman af lestr- inum enda er þar líka grín fyrir for- eldra. Þetta verk er augnakonfekt. Myndskreytingin er stórskemmti- leg og skopleg, síðurnar eru brotn- ar upp með blaðsíðum sem hægt er að gægjast á bak við. Það er gaman að geta boðið börnum upp á lestur slíkrar bókar þar sem framúrskar- andi myndskreyting rammar inn líflega frásögn. Krefjandi tilfinningar Saga um þakklæti bbbbn Eftir Evu Einarsdóttur og Lóu H. Hjálmarsdóttur. Bókabeitan, 2019. Innb., 24 bls. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar sagan um þakklæti. Sögu- hetjan Saga er heldur stúrin þegar hún er sótt í leikskólann og reynir móðir hennar að benda henni á leið- ir sem hjálpa henni að takast sjálf á við erfiðar tilfinningar. Samskipti mæðgnanna eru skóla- bókardæmi um hvernig æskilegt er að haga sér sem foreldri þegar afkvæmið sýnir tilfinningar sem uppalendum þykja oft á tíðum krefjandi og vita kannski ekki alltaf hvernig á að fást við. Allir þurfa að takast á við litróf tilfinninganna og heppilegast er að byrgja brunninn. Boðskapur sög- unnar er fyrir allar kynslóðir og þörf áminning til okkar um að leggja rækt við þakklæti. Því ef það er eitthvað sem vísindin hafa sýnt fram á að stuðli að hamingju þá er það þakklæti. Lóa Hlín myndskreytir verkið og gerir það framúrskarandi vel. Litir og form lýsast þegar líður á bókina í takt við tilfinningar söguhetj- unnar. Myndirnar fá gott pláss og njóta sín vel í þessu umbroti. Ætli það sé ekki við hæfi að segja: Takk höfundar. Snúið upp á kynjahlutverkin Yfirlit yfir nýútkomnar barnabækur Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Prins Skemmtileg myndskreyting úr Sipp, Sippsipp- anipp og Sippsippsúrumsip eftir Blæ Guðmundsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.