Morgunblaðið - 23.12.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
Stundum villgleymast í
umræðunni hér
hve jöfnuður er
mikill á Íslandi
og hve kjör eru
almennt góð og
fara hratt batn-
andi. Mikilvægt
er, um leið og
reynt er að
laga það sem upp á vantar, að minn-
ast þess hvernig staðan er og hve
miklum árangri Ísland hefur náð.
Hagstofan birti á dögunum upp-lýsingar um samanburð á svo-
kölluðum Gini-stuðli fyrir Ísland
önnur ríki Evrópu. Gini-stuðullinn
mælir ójöfnuð og á þennan mæli-
kvarða er Ísland í þriðja neðsta sæti,
þ.e. Ísland státar af þriðja minnsta
ójöfnuðinum í Evrópu. Þetta er tölu-
vert á skjön við þá umræðu sem
stundum skýtur upp kollinnum hér
á landi og gengur út á að öllu sé
mjög misskipt hér.
Og fyrst minnst er á tölur Hag-stofunnar er fróðlegt að skoða
þróun launavísitölunnar, sem birt
var fyrir helgi.
Hækkun launa hefur verið meðólíkindum mikil hér ár landi á
nýliðnum árum. Það sem af er þessu
ári hefur hefur launavísitalan
hækkað um tæp 5% á milli ára. Í
fyrra hækkaði hún um 6,5% á milli
ára, um 6,8% árið 2017, um 11,4%
árið 2016 og um 7,2% árið 2015.
Hækkunin var á svipuðum nótum
næstu ár á undan.
Í þessu sambandi þarf einnig aðhuga að því að hækkunin hefur á
síðustu árum verið mest á lægstu
launin. Þessi þróun, samhliða lágri
verðbólgu, þætti óhugsandi í öðrum
löndum, en hér er stundum látið
eins og þetta sé allsendis ófullnægj-
andi.
Íslenskt
jólaævintýri?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Veitingamenn í miðbæ Reykjavíkur
lentu margir hverjir í vanda á laug-
ardag þegar heita vatnið fór af vest-
urhluta borgarinnar. Ein af aðalæð-
um hitaveitunnar fór í sundur á móts
við Valsheimilið á Hlíðarenda í eft-
irmiðdaginn og hófst þá þegar við-
gerð sem lauk um klukkan eitt að-
faranótt sunnudagsins. Á meðan á
því stóð kólnaði í húsum, fólk komst
ekki í bað, sundlaugum var lokað og
á veitingastöðum var ekki hægt að
þvo upp, til dæmis matardiska með
storkinni feitibráð sem hellt hafði
verið út á skötuna. Á sumum stöðum
voru stórir pottar dregnir fram og
vatnið úr þeim notað í uppvaskið.
„Lögnin þarna við Bústaðaveginn
var sett niður fyrir rúmum 30 árum
en yfirleitt eiga svona rör að duga í
70 ár. Svona bilanir geta einfaldlega
alltaf komið upp, þó að þessi sé ein sú
mesta sem upp hefur komið í hita-
veitukerfi okkar í mjög langan tíma,“
sagði Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
upplýsingafulltrúi Veitna, í samtali
við Morgunblaðið.
Eftir að bilunin kom upp var
vatnslaust frá Snorrabraut vestur að
Seltjarnarnesi, en það bæjarfélag er
með eigin hitaveitu. Þegar svo leið á
laugardaginn náði skortur til allra
byggða vestan Kringlumýrarbraut-
ar. „Við settum allan kraft í viðgerð-
ina og náðum að ljúka þessu fljótt,“
segir Ólöf Snæhólm. sbs@mbl.is
Feiti storknaði á matardiskunum
Heitavatnslaust um hávetur Æð fór í sundur í Öskjuhlíð Víða var vandi
Morgunblaðið/Eggert
Kuldi Bilun á lögninni var alvarleg
en viðgerð tók nokkra klukkutíma.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þing-
flokksformaður Vinstri grænna, seg-
ir að ekki sé tímabært að meta for-
sendur fyrir því hvort hugmyndir
Bjarna Benediktssonar fjármálaráð-
herra um frekari skattalækkanir á
næstu árum séu raunhæfar. Taka
þurfi afstöðu til slíkra tillagna þegar
þær liggja fyrir. Sagt var frá hug-
myndum Bjarna í Morgunblaðinu á
laugardaginn.
„Við höfum fyrst og fremst talað
fyrir lækkun á tryggingagjaldinu og
bankaskattinum eins og til stóð alveg
frá því að VG var í samstarfi við
Samfylkinguna í ríkisstjórn. Annað
hefur ekki verið ámálgað og við
munum þurfa að taka á slíkum til-
lögum þegar þar að kemur,“ segir
Bjarkey.
Eins og fram kom í máli fjármála-
ráðherra byggist sýn hans á skatta-
lækkanir á því að vaxtabyrði hafi
lækkað og muni lækka enn frekar á
næstu árum. Þegar ríkissjóður fari
að njóta hagstæðari lánakjara innan
fárra ára gefist færi til skattalækk-
ana.
Bjarkey telur að eins og sakir
standa sé ekki svigrúm til frekari
skattalækkana en gripið hefur verið
til nú þegar. „Við stöndum ágætlega
og það sem gert hefur verið til þessa
tel ég að skipti máli fyrir lægstu
tekjuhópana. Ef miðað er við næsta
ár þá þurfum við bara að sjá hvernig
gengur að komast upp úr lægðinni
og ef miðað er við spár þá sýnist mér
það ganga ágætlega og margt bendir
til þess að efnahagskerfið taki við sér
jafnvel fyrr en gert hafði verið ráð
fyrir. Maður verður að vona að það
raungerist en ég tel að við þurfum á
því að halda sem við höfum úr að
spila í ríkissjóði til þess að standa
undir þeirri innviðauppbyggingu sem
augljóslega þarf að fara í,“ sagði hún.
vidargudjons@gmail.com
Ekki tímabært að
meta sýn Bjarna
Nýta þarf fé í innviðauppbyggingu
Morgunblaðið/Eggert
Bjarkey Áhersla VG er á lækkun
tryggingagjalds og bankaskatts.
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14, Þorláksmessu kl. 10-20
Misty
Haldari 10.900,-
Buxur 3.850,-
Jólagjöfin fæst
hjá okkur