Morgunblaðið - 23.12.2019, Page 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
SAMNINGAR VIÐ
ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG
Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is
Hægt er að bóka tjónaskoðun hj
LÁTTU OKKUR
UM MÁLIÐ
• BÍLARÉTTINGAR
• PLASTVIÐGERÐIR
• SPRAUTUN
á okkur á net n
• Fagleg þjónusta
• Vönduð vinnubrögð
• Frítt tjónamat
HSRETTING.IS
547 0330
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Llibre Vermell – Maríusöngvar frá
miðöldum nefnist þriðja platan sem
Umbra sendir frá sér. „Llibre Ver-
mell eða Rauða bókin, sem er frá 14.
öld, er eitt fárra handrita sem björg-
uðust úr Montserrat-klaustrinu í
Katalóníu eftir að hermann Napó-
leons jöfnuðu það við jörðu 1811,“
segir Lilja Dögg Gunnarsdóttir,
söngkona og flautuleikari Umbru,
þegar hún er spurð um uppruna tón-
listarinnar á nýju plötunni.
„Handritið veitir dýrmæta innsýn
í bæði trúarlega og veraldlega til-
veru pílagríma á 14. öld sem höfðu
viðdvöl í klausturbænum Montser-
rat, en söngvarnir voru ætlaðir þeim
til dægrastyttingar, enda er skýrt
tekið fram í inngangi handritsins að
þetta sé tónlist til að skemmta sér
við,“ segir Lilja Dögg og tekur fram
að óhætt sé að lýsa mörgum laganna
sem popptónlist síns tíma.
„Flest laganna eru með alþýðleg-
um brag og taktföst, svo líklegt má
telja að dansinn hafi dunað þegar
þau voru flutt,“ segir Lilja Dögg og
tekur fram að í bland séu einnig
sálmalög en leiða megi líkur að því
að flutningsmáti söngvanna hafi ver-
ið afar fjölbreyttur.
Því eldra því betra
„Við höfum sérhæft okkur í tón-
list fyrri tíma og má segja að móttó-
ið okkar sé því elda því betra,“ segir
Lilja Dögg kímin þegar tónlistarval
Umbru er borið undir hana. „Allt
eftir 1500 er nýtt efni fyrir okkur.
Við reynum að fara eins langt aftur
og við getum. Samtímis höfum við
líka verið að flytja glænýtt efni sér-
samið fyrir okkur. Tónlistin í Rauðu
bókinni er mjög opin til túlkunar,
útfærslu og sköpunar sem okkur
finnst spennandi,“ segir Lilja Dögg
og bendir á að í handritinu sé bara
að finna lagboða, þ.e. laglínur, sem
ekki séu útsettar með neinum hætti.
„Það gefur okkur gott rými til að
skapa,“ segir Lilja Dögg og rifjar
upp að hún hafi farið með sam-
starfskonum sínum í Umbru í vinnu-
búðir úti á landi til að útsetja tónlist-
ina. Umbru skipa auk Lilju Daggar
þær Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir
á fiðlu, Arngerður María Árnadóttir
á keltneska hörpu og orgel og Alex-
andra Kjeld á kontrabassa en allar
syngja þær líka á plötunni. Auk
þeirra tók Þórdís Gerður Jónsdóttir
sellóleikari þátt í sköpunarferlinu.
„Þetta er heljarinnar mikil vinna
enda þykkur vefur af útsetningum.
En þetta er bæði skapandi og
skemmtileg,“ segir Lilja Dögg og
bendir á að verkefninu hafi vaxið ás-
megin með útsetningunum.
„Smám saman stækkaði tónlistar-
hópurinn. Við fengum Kristófer
Rodriguez Svönuson slagverksleik-
ara til liðs við okkur og síðan Eggert
Pálsson slagverksleikara og loks
Marinu Albero sem spilar á psalteri-
um,“ segir Lilja Dögg og útskýrir að
psalterium sé ásláttarstrengja-
hljóðfæri sem búi yfir himneskum
hljómi sem henti vel inn í hljóðheim
Umbru. „Marina er frá Katalóníu og
gat hjálpað okkur með framburðinn,
því textarnir eru ýmist sungnir á
latínu eða katalónsku sem er ekki á
allra færi þó að þetta sé mjög
skemmtilegt tungumál. Marina er
eins og við með grunn í djasstónlist
þó að hún flytji síðan miðaldatónlist
úti um allan heim. Hún er stórkost-
legur spunameistari sem smell-
passar inn í okkar nálgun,“ segir
Lilja Dögg og bendir á að Þórdís sé
einnig mikill spunameistari.
„Loks fannst okkur tilvalið að fá
til liðs við okkur karlakór til að ým-
ist stækka litrófið í viðlögunum,
taka undir með okkur eða syngjast á
við okkur,“ segir Lilja Dögg og vísar
þar til sönghópsins Cantores
Islandiae sem Ágúst Ingi Ágústsson
stjórnar en auk hans syngja í kórn-
um þeir Atli Freyr Steinþórsson,
Gísli Jóhann Grétarsson, Gísli
Magna Sigríðarson, Hreiðar Ingi
Þorsteinsson og Þröstur Freyr
Gylfason. „Þeir hafa sérhæft sig í
miðaldasöng,“ segir Lilja Dögg og
tekur fram að það þurfi vissan nör-
disma til að sérhæfa sig í flutningi
miðaldatónlistar.
Mikill meðbyr erlendis
„Við í Umbru höfum alltaf unnið
heilmikla rannsóknarvinnu í
tengslum við allar plötur okkar,“
segir Lilja Dögg en meðal fyrri
platna hópsins er Sólhvörf sem
hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin
2018 í flokki þjóðlagatónlistar. „Við
miðlum alltaf hluta af þeirri
rannsóknarvinnu í bæklingunum
sem fylgja plötunum okkar en gæt-
um hæglega gefið út heila bók í
hvert sinn,“ segir Lilja Dögg og seg-
ir hópinn lánsaman að hafa komist á
samning hjá Dimmu. „Okkur finnst
skipta máli að gefa tónlistina út í
áþreifanlegu formi, en ekki bara á
efnisveitum, enda hugsum við plöt-
una sem listaverk þar sem tónlistin
og sjónræn hönnun haldast í hend-
ur,“ segir Lilja Dögg og tekur fram
að systurnar Lilja og Ingibjörg
Birgisdætur sjái um myndefni og
hönnun.
Umbra fylgdi nýju plötunni eftir
með tónleikum fyrr í þessum mán-
uði en að sögn Lilju Daggar mun
efni plötunnar hljóma á fleiri tón-
leikum á nýju ári. „Það er brjálað að
gera hjá okkur því við verðum á ferð
og flugi á tónlistarhátíðum víða er-
lendis á næsta ári. Við finnum fyrir
miklum meðbyr erlendis,“ segir
Lilja Dögg og tekur fram að
snemma á næsta ári muni Umbra
einnig halda tónleika hérlendis.
„Hinn 26. janúar, á Myrkum mús-
íkdögum, flytjum við stórt og flott
óperuverk eftir Kristínu Þóru Har-
aldsdóttur sem heitir Blóðhófnir og
byggist á ljóðabálki Gerðar Kristn-
ýjar. Hinn 12. febrúar spilum við
síðan á Tríbrártónleikum í Salnum,“
segir Lilja Dögg og vísar á
facebooksíðu hópsins fyrir nánari
upplýsingar og tónleikafréttir.
Líklegt að dansinn hafi dunað
Umbra sendir frá sér Llibre Vermell – Maríusöngva frá miðöldum Tónlistarhópurinn verður
á ferð og flugi á nýju ári á tónlistarhátíðum erlendis Flytur Blóðhófni á Myrkum músíkdögum
Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir
Umbra Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir með fiðlu, Arngerður María Árnadóttir með keltneska hörpu, Lilja Dögg
Gunnarsdóttir, söngkona og flautuleikari, og Alexandra Kjeld með kontrabassa en allar syngja þær á plötunni.
Enska leikkonan Ruth Wilson sagði
starfi sínu lausu við bandarísku sjón-
varpsþættina The Affair vegna kyn-
lífsatriða sem hún þurfti að leika í,
að því er fram kemur á vef The
Hollywood Reporter. Fimm þátta-
raðir hafa verið gerðar og hófu þætt-
irnir göngu sína árið 2014. Hefur
Wilson m.a. hlotið Golden Globe-
verðlaunin fyrir leik sinn í þeim.
Kom það aðdáendum þáttanna því
nokkuð á óvart þegar hún hætti að
leika í þeim og mátti Wilson ekki
greina frá ástæðunni fyrir því vegna
samnings við framleiðanda þátt-
anna, Showtime.
Nú hafa innanbúðarmenn greint
frá því að Wilson hafi unnið við
fjandsamlegar aðstæður.
Wilson sagði starfi sínu við þætt-
ina lausu sumarið 2018 án skýringa.
Hún hélt í kynningarferð vegna
kvikmyndar sem hún var að leika í
nokkru síðar og var ítrekað spurð út
í uppsögnina. Gat hún ekki greint
frá ástæðunni en sagði hana ekki
laun eða önnur hlutverk sem henni
hefðu boðist. Hvatti hún blaðamenn
til að ræða við Söruh Treem, svokall-
aðan „showrunner“ þáttanna. Þegar
leitað var svara hjá öðrum sem unnu
við þættina kom í ljós að Wilson
hefði verið ósátt við tiltekin kynlífs-
atriði í þáttunum og hversu oft hún
þyrfti að vera nakin við tökur. Mun
hún hafa talið nekt óþarfa í sumum
atriða þáttanna og í einu tilfelli spurt
hvers vegna hún þyrfti að sýna
meira hold en karlkyns mótleikari
hennar. Þessar umkvartanir eru
sagðar hafa mætt litlum skilningi
hjá þeim sem voru við stjórnvölinn
og Wilson fengið á sig þann stimpil
að vera erfið í samstarfi. Treem
fyrrnefnd var ein þeirra sem skelltu
skollaeyrum við óánægju leikkon-
unnar. Einn heimildarmanna Holly-
wood Reporter segist margoft hafa
orðið vitni að því að Treem reyndi að
ginna leikara með fagurmælum til
þess að afklæðast, jafnvel þótt þeim
þætti það óþægilegt og hefðu ekki
samið um það. Fyrir vikið hafi and-
rúmsloftið við tökur oft verið „eitr-
að“, eins og því er lýst.
Treem neitar öllum ásökunum og
segist aldrei hafa þrýst á leikara að
gera eitthvað sem þeir ekki vildu
gera.
AFP
Ósátt Leikkonan Ruth Wilson.
Hætti vegna kynlífsatriða
og eitraðs andrúmslofts