Morgunblaðið - 23.12.2019, Side 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
»Nýjasta kvikmyndin í Stjörnustríðs-syrpunni,
The Rise of Skywalker, var frumsýnd í síðustu
viku og þá meðal annars í London þar sem stjörnur
myndarinnar mættu prúðbúnar og aðdáendur í
gervum hinna ýmsu persóna myndanna.
Aðdáendur Stjörnustríðs flykktust á frumsýningu nýjustu myndarinnar í London
AFP
Furðuverur Aðdáendur mættu í ýmsum gervum og hér má sjá unga konu í gervi Aayla Secura, vopnaða geislasverði, nema hvað?
Stjarna Daisy Ridley og rauðir stormsveitarmenn á rauða dreglinum. Illmenni Svarthöfði og kónar hans mættu á frumsýningu.
Vefurinn Metacritic hefur birt
lista yfir bestu hljómplötur ársins
og er plata Nick Cave and the
Bad Seeds, Ghosteen, í fyrsta
sæti.
Listinn er fenginn með því að
skoða meðaltalseinkunn gagnrýn-
enda og er platan með þá hæstu,
96 stig af 100 mögulegum.
Cave hefur í tvígang átt bestu
plötu ársins á Metacritic á síðast-
liðnum fjórum árum og hefur að-
eins einn listamaður, Kandrick
Lamar, náð þeim árangri frá því
Metacritic-síðan var stofnuð fyrir
19 árum.
Í öðru sæti er plata Weyes Blo-
od, Titanic Rising, með ein-
kunnina 91 af 100 og í því þriðja
plata Little Simz, Grey Area, með
91 stig einnig. Í fjórða sæti er Ís-
landsvinurinn Michael Kiwanuka
með plötuna Kiwanuka sem hlýtur
89 stig. Í fimmta sæti er plata Ja-
milu Woods, LEGACY! LEGACY!
og í því sjötta plata Angel Olsen,
All Mirrors.
Í sjöunda sæti er plata Solange,
When I Get Home og í áttunda er
plata Aldous Harding, Designer
og níunda plata FKA twigs,
Magdalene. Tíunda sætið vermir
svo plata Brittany Howard, Jaime,
með 88 stig af 100 mögulegum.
Best Plata Nick Cave og félaga hans í the
Bad Seeds, Ghosteen, hlaut flest stig á
árinu samkvæmt úttekt Metacritic.
Ghosteen besta
plata ársins
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambíó.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI