Morgunblaðið - 23.12.2019, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
Óskum öllum okkar viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
National Gallery í London, ríkislistasafn Breta, hefur
fest kaup á meistaraverki ítalska barokkmeistarans
Orazio Gentileschi (1563-1639), Móses fundinn í sefi
Nílar. Verkið hefur verið í safninu í tvo áratugi en nú
er eigandinn hugðist selja það ákvað safnið að kaupa.
Stjórnendur fundu til lunga fjárins en leituðu einnig til
almennings sem greiddi um tvær milljónir punda af
verðinu, um 320 milljónir króna, en verkið kostaði þrjá
og hálfan milljarð. Gentileschi starfaði í um 12 ár við
bresku hirðina, er Karl I var við völd, og málaði verkið
á þeim tíma. Í safninu var börnum stillt upp við verkið
og þökkuðu þau löndum sínum fyrir stuðninginn.
Ljósmynd/National Gallery
Bretar söfnuðu fyrir meistaraverki
Í Svanafólkinu hefur KristínÓmarsdóttir dregið upp nöt-urlega, grimma en jafnframtískrandi íróníska mynd af
óræðum samtíma eða nálægri fram-
tíð í sannkallaðri furðusögu. Í borg
þar sem nákvæmt eftirlit er haft með
öllum og allt á að vera niðurnjörvað –
en þó koma í ljós undarleg fyrirbæri
sem hið opinbera á erfitt með að
skýra og skilja.
Síðasta skáldsaga Kristínar, Flæk-
ingurinn (2015), er ein áhugaverðasta
íslenska skáldsaga síðasta áratugar.
Hún gerist einnig í borginni en er af
allt öðrum toga, fjallar um líf ut-
angarðsmanns í raunsæislegu sam-
félaginu.
Hér segir af Elísabetu Evu sem
starfar í innsta kjarna eftirlitsins, hjá
leynilegri sérdeild innanríkis-
ráðuneytisins, sinnir þar ómerki-
legum rannsóknum sem eru þó tekn-
ar mjög alvarlega og sýna þau
ofurtök sem hið opinbera hefur á öll-
um þáttum lífsins. Þótt Elísabet
starfi í kjarna hins opinbera er hún
hálfgerður einstæðingur; foreldr-
arnir voru málfræðingar sem hurfu á
málþingi í útlöndum og bróðirinn er
leiðsögumaður á jökli. Þau ímynda
sér að þau eigi systur sem þau leita að
og hún að þeim.
Í þessum eftirlitsheimi er ætlast til
þess að allt sé í fullkomnu jafnvægi en
það raskast í upphafi sögu þegar El-
ísabet kynnist svanafólkinu í borgar-
jaðrinum, verum sem eru svanir að
neðan en mennskar að ofan, tala og
hegða sér sem menn, og virðast hafa
ákveðið að birtast Elísabetu og fá
hana til að hjálpa
sér við að fá við-
urkenningu í sam-
félagi manna.
„Það er undar-
legt að vera ½
manneskja og
sakna hins helm-
ingsins, vera ½
álft og sakna hins
helmingsins. Það
gefur tilefni til flókins tilfinningalífs,“
útskýrði leiðtoginn. (37) Og í sögunni
eru dregnar upp skýrar andstæður
milli svanafólksins, sem er meðal
annars eins konar fulltrúar náttúru
sem maðurinn hefur reynt að brjóta
undir sig, og svo fulltrúa kúgunarafl-
anna í samfélaginu, sem Elísabet til-
heyrir. Það er hópur þar sem yfir-
borðsmennskan ríkir og engu er að
treysta – eins og Elísabet fær að
kynnast þegar yfirmaðurinn, sem er
stundum trúnaðarvinur hennar,
ræðst á grimmilegan hátt gegn henni.
En grimmdin er líka mikil meðal
álftanna, sem einnig beita Elísabetu
ofbeldi og skjól virðist hvergi að finna
– nema kannski í tungumálinu og
orðavaðli, sem höfundurinn leyfir að
flæða á kostulegan og á stundum
uppskrúfaðan og sundurlausan hátt.
Enginn skrifar eins og Kristín Óm-
arsdóttir. Frá upphafi ferilsins hefur
hún beitt í verkum sínum heillandi
hugmyndaflugi sem daðrar við fáran-
leika en finnur alltaf óvænta jarð-
tengingu. Í Svanafólkinu eru margir
framúrskarandi kaflar, ekki síst sem
tengjast svanafólkinu sjálfu. Í lýs-
ingum á lífi Elísabetar, kerfinu og
nánast vélrænu samstarfsfólkinu
missir sagan þó á stundum dampinn.
Höfundurinn leikur sér með tungu-
málið á áhugaverðan og frumlegan
hátt en framvindan höktir á stundum.
Morgunblaðið/Ómar
Kristín Í sögunni „eru margir fram-
úrskarandi kaflar,“ skrifar rýnir.
Tilefni til flókins tilfinningalífs
Skáldsaga
Svanafólkið bbbmn
Eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Partus, 2019. Innbundin, 233 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Íþriðju bók sinni, Ys og þysútaf öllu!, skrifar grunn-skólakennarinn Hjalti Hall-dórsson um vinina Kjartan,
Guðrúnu og Bolla sem fara í
skólaferðalag að Laugum í Sæl-
ingsdal. Vinirnir leggja af stað í
ferðalagið fullir eftirvæntingar, en
fljótlega eftir komuna að Laugum
fara allar áætlanir vinanna þriggja
um dvölina í
skólabúðunum út
um þúfur.
Guðrún er
nefnilega skotin í
Kjartani, Bolli er
skotinn í Guð-
rúnu og Kjartan
hefur að geyma
leyndarmál sem
hann á eftir að segja vinum sínum.
Inn í söguþráðinn fléttast svo
kennararnir Höskuldur og Auður
og vinirnir Ingibjörg og Óli sem
ganga í annan grunnskóla.
Innblástur frá Laxdælu
Nöfn sögupersónanna eru tæpast
tilviljun, en ljóst er að Hjalti sæk-
ir mikinn innblástur til Laxdælu í
sögunni. Guðrúnu dreymir jafnvel
drauma um gull- og silfurhringi
sem minna að mörgu leyti á
drauma nöfnu hennar Ósvífurs-
dóttur í Laxdælu. Á heimleiðinni
segist Guðrún svo hafa komið
verst fram við bestu vini sína, sem
er afar áberandi og skemmtileg
tilvísun í Laxdælu. Þessar teng-
ingar við Íslendingasöguna frægu
eru ákaflega vel heppnaðar og
skemmtilegar og gera bókina að
hinni fínustu lesningu fyrir full-
orðna.
Bókin er skrifuð frá sjónarhorni
aðalpersónanna og Hjalta tekst
vel upp með þessum frásagnar-
hætti. Texti bókarinnar er auðles-
inn og einfaldur fyrir unga les-
endur. Efnistök bókarinnar höfða
eflaust best til jafnaldra persón-
anna sem eru að ljúka miðstigi
grunnskólans, en bókin vekur
einnig skemmtilegar minningar
fyrir þá sem hafa einhverju sinni
verið í sömu sporum og vinirnir
þrír. Ys og þys útaf öllu! er frum-
leg og skemmtileg saga um vin-
áttu, afbrýðisemi, hrekki og nýjar
tilfinningar sem stundum er smá
erfitt að skilja. Bókin er hin fín-
asta skemmtun og tilvalin í jóla-
pakkann fyrir unga lestrarhesta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frumleg Bók Hjalta er frumleg og skemmtileg saga um vináttu, afbrýði-
semi, hrekki og nýjar tilfinningar sem stundum er smá erfitt að skilja.
Vinir í gegnum
súrt og sætt
Ungmennabók
Ys og þys útaf öllu!
bbbmn
Eftir Hjalta Halldórsson.
Bókabeitan, 2019. 125 blaðsíður.
LILJA HRUND AVA
LÚÐVÍKSDÓTTIR
BÆKUR