Morgunblaðið - 23.12.2019, Qupperneq 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2019
Hluti af pistli um úrvalsdeild karla
þar sem fjallað er um Íslandsmeist-
ara KR.
Hlógu alla leið á Grund
Þegar Íslandsmót karla hófst í lok
apríl 2019 virtust flestir á því að
mesta spennan væri ekki fólgin í því
hvaða lið yrði Ís-
landsmeistari
heldur hverjir
kæmu næstir á
eftir Vals-
mönnum.
KR-ingar voru
þar oft nefndir til
sögunnar, ekki
síst vegna þess að
þeir enduðu tíma-
bilið 2018 mjög vel og voru nánast
ósigrandi allan veturinn.
En margt fór öðruvísi en ætlað
var. Valsmenn voru aldrei nálægt
toppi deildarinnar en þar komu KR-
ingar sér fyrir í júnímánuði, juku
forskotið í júlí og ágúst og fögnuðu
sínum 27. Íslandsmeistaratitli strax í
20. umferð deildarinnar. Héldu svo
bara áfram að breikka bilið og þegar
upp var staðið enduðu þeir fjórtán
stigum á undan næsta liði, Breiða-
bliki.
Eitt af því sem talið var vinna
gegn KR-ingum var aldur leik-
manna liðsins. Einhvers staðar voru
þeir kallaðir Elliheimilið Grund og
því fögnuðu „gömlu“ mennirnir Ósk-
ar Örn Hauksson og Pálmi Rafn
Pálmason með því að láta mynda sig
með Íslandsbikarinn fyrir framan
umrætt elliheimili eftir að mótinu
lauk. Þetta aldurstal var dálítið orð-
um aukið. Vissulega voru fjórir af
þeim ellefu sem mest spiluðu komnir
yfir þrítugt en aðrir fimm fastamenn
voru á aldrinum 27-29 ára og svo var
í byrjunarliðinu 18 ára strákur sem
var kjörinn efnilegasti leikmaður
deildarinnar, Finnur Tómas Pálma-
son.
Enda er aldur afstæður á margan
hátt, eins og kannski sást á því að
grannar KR-inga á Seltjarnarnesi,
Gróttumenn, voru með alla sína leik-
menn 25 ára og yngri en unnu samt
1. deildina.
Rúnar Kristinsson sannaði enn og
aftur hæfni sína sem þjálfari. Hann
var með lið í mótun 2018, framfar-
irnar þá voru augljósar, og upp-
skeran var Íslandsmeistaratitillinn
þar sem ekkert lið í deildinni sýndi
stöðugleika á borð við þann sem
Vesturbæingar bjuggu yfir. Þeir
töpuðu ekki leik gegn þeim liðum
sem töldust þeirra keppinautar því
einu ósigrarnir voru gegn Grindavík
og HK sem enduðu í ellefta og
níunda sæti. Heimavöllurinn fékk
hið skemmtilega nafn Meistaravellir
fyrir þetta Íslandsmót og stóð undir
nafni sem óvinnandi vígi. Níu sigrar
og tvö jafntefli – 29 stig.
Óskar Örn Hauksson hefur lengi
verið einn af bestu leikmönnum
deildarinnar en á sínu 35. aldursári
og því sextánda í röð í deildinni
sýndi hann allar sínar bestu hliðar.
Hafi einhver einn leikmaður verð-
skuldað að taka við Íslandsbikarnum
var það Njarðvíkingurinn knái. Rún-
ar kom á óvart þegar hann fékk Arn-
þór Inga Kristinsson á miðjuna og
gerði Kennie Chopart að hægri bak-
verði. Markvarslan var talin mögu-
legt vandamál fyrir mót en Rúnar
svaraði því með yfirlýsingu um að
Beitir Ólafsson væri besti markvörð-
ur deildarinnar. Einhverjir voru
búnir að afskrifa Arnór Svein Að-
alsteinsson sem síðan myndaði besta
miðvarðapar deildarinnar með hin-
um unga Finni Tómasi. Ekki
skemmdi fyrir að Kristinn Jónsson
átti sitt besta tímabil í mörg ár og
samvinna hans og Óskars á vinstri
vængnum hjá KR var mögnuð. KR
var einfaldlega með gríðarlega öfl-
uga liðsheild og næga breidd til að
fylla í skörðin þegar meiðsli og bönn
komu til sögunnar. Einstaklega
verðugir Íslandsmeistarar.
Íslandsmeistarar á Meistaravelli
Bókarkafli | Árleg fótboltasamantekt Víðis Sig-
urðssonar er komin út og heitir Íslensk knatt-
spyrna 2019. Í bókinni er sagt frá keppni ársins í
öllum deildum karla og kvenna, öllum liðum og
leikmönnum, bikarkeppni karla og kvenna, öllum
landsleikjum í máli og myndum, öllum Evrópu-
leikjum og svo má telja.
Morgunblaðið/Hari
Á Meistaravelli Leikmenn og stuðningsmenn KR bíða kátir eftir að taka við Íslandsbikarnum í Frostaskjóli.
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag og sunnudag kl. 13-17, Þorláksmessu kl. 11-19, lokað aðfangadag.Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
S
Versluninni lokað
30% afsláttur af öllum vörum