Morgunblaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 48
Tónlistarhópurinn Cauda Collective
heldur tónleika í kvöld kl. 21 í Frí-
kirkjunni í Reykjavík. Flytjendur
verða Sigrún Harðardóttir á fiðlu,
Þóra Margrét Sveinsdóttir á víólu
og Þórdís Gerður Jónsdóttir á selló.
Flutt verða brot úr tíðasöngvum
Þorláks helga frá aldamótunum
1300 í nýjum útsetningum hópsins,
brot úr Goldberg-tilbrigðum Bachs
í útsetningu fyrir strengjatríó, Int-
ermezzo eftir Z. Kodaly og Pavane
eftir G. Fauré. Einnig verða flutt ís-
lensk þjóðlög og jólasöngvar.
Flytja brot úr tíða-
söngvum Þorláks
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 357. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Getur Manchester City enn
veitt Liverpool keppni um
enska meistaratitilinn og kom-
ið í veg fyrir að nýkrýndir heims-
meistarar félagsliða hreppi hann í
fyrsta skipti í þrjá áratugi á kom-
andi vori? Eftir sannfærandi sigur
City á Leicester, 3:1, á laugardaginn
er meistaralið Pep Guardiola ellefu
stigum á eftir Liverpool, sem hins
vegar á inni frestaðan útileik við
West Ham. »32
City ellefu stigum á
eftir í toppbaráttunni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Liverpool varð fyrsta enska liðið í
ellefu ár til að vinna heimsmeist-
arakeppni félagsliða í fótbolta
með því að sigra Fla-
mengo frá Brasilíu í
framlengdum úrslita-
leik í Doha í Katar, 1:0,
á laugardags-
kvöldið. Roberto
Firmino skoraði
sigurmarkið á
níundu mínútu
framlengingar.
Þar með hafa
ríkjandi Evrópu-
meistarar unnið
mótið sjö ár í röð,
eða frá því
Chelsea tapaði fyrir
Corinthians frá Bras-
ilíu árið 2012. »32
Liverpool tryggði sjö-
unda sigur Evrópu í röð
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Þorsteinn Eggertsson og Jó-
hanna Fjóla Ólafsdóttir eru að vinna
að tólf laga plötu, þar sem tíu lög
verða eftir Fjólu og tvö eftir Þor-
stein. Þetta er í fyrsta sinn sem lög
eftir hann eru hljóðrituð en hann hef-
ur samið sjö til átta hundruð texta við
lög eftir aðra. Platan er væntanleg á
markað skömmu eftir áramót.
Fjóla og Þorsteinn rugluðu saman
reytum fyrir um þrjátíu árum. Áður
bjó Fjóla lengi í Svíþjóð, samdi lög,
útsetti og söng með hljómsveit. Hún
segir að þau hafi lengi samið og sung-
ið saman heima í stofu og þegar þeim
hafi dottið í hug að gefa saman út
plötu hafi hugmyndin verið sú að lög-
in yrðu eftir hana og textarnir eftir
hann. „Ég vissi að Steini hafði samið
lög, vildi að hann ætti lög á plötunni
og hann tók því vel,“ segir hún.
Yfir fjögur hundruð dægurlaga-
textar eftir Þorstein hafa verið gefnir
út á hljómplötum. Hann segir að þau
Fjóla hafi oft samið saman lög og
þegar þeim hafi verið boðið að vera
með dagskrá í Hannesarholti hafi
þau þurft að taka saman efni. Það
hafi verið byrjunin á plötunni. „Það
hangir saman að semja söngtexta og
semja lag og ég hef samið lög frá því
um 1960 en enginn hefur beðið mig
um lag fyrr en Fjóla vildi koma því á
framfæri.“
Textarnir tilviljun
Þorsteinn söng með ýmsum hljóm-
sveitum eins og til dæmis með KK
sextettinum, Hljómsveit Guðmundar
Ingólfssonar og hljómsveit í Dan-
mörku þegar hann var þar í mynd-
listarnámi. Hann segist aldrei hafa
ætlað sér að verða söngtextahöf-
undur en eftir að Þórir Baldursson í
Savanna tríóinu hafi hvatt sig til þess
að semja texta hafi ekki verið aftur
snúið. „Eftir það fór fólk að biðja mig
um að semja texta og hefur gert alla
tíð síðan.“
Enginn einn sönglagatexti er í
uppáhaldi hjá Þorsteini. „Það er
breytilegt frá degi til dags og fer eft-
ir skapinu hverju sinni,“ segir hann.
Bætir við að Fjóla sé hrifnust af
textanum „Langt úti á hafi“ og þau
syngi hann við lag eftir sig á plöt-
unni. „Ég samdi textann um 1981 og
til stóð að hljómsveitin Upplyfting
flytti hann en útgefandinn, sem hafði
beðið mig að gera sjómannatexta og
fékk þennan, stirðnaði upp og sagð-
ist ekki gefa hann út – hann væri of
hommalegur!“
Á plötunni eru tíu textar eftir Þor-
stein, en Halldór Laxness og Jak-
obína Sigurðardóttir eiga sinn text-
ann hvort. Þorsteinn og Fjóla syngja
ýmist ein eða saman. Vilhjálmur
Guðjónsson í Stúdíó Vox tekur upp
lögin en hjónin gefa plötuna út. „Við
gefum hana út á nýju ári,“ segir Þor-
steinn.
Texta- og lagahöfundar Hjónin Þorsteinn Eggertsson og Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir eru að vinna að tólf laga plötu.
Loks lög eftir Þorstein
Eggertsson á plötu
Fjölhæfi textahöfundurinn opinberar nýja hlið á sér
Góð þjónusta
í tæpa öld
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á
flugvöll og aftur heim þegar
þú ferð til útlanda.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
5-8manneskjur
19.500 kr.
Verð aðra leið