Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 2
2 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.
Rekstur á nýrri heilsugæslustöð verður boðinn út í
fyrsta sinn á Íslandi í dag. Um er að ræða nýja
heilsugæslustöð í Salahverfi í Kópavogi.
Nei, þetta er aðeins tilraun og ég geri
greinarmun á einkavæðingu og einka-
rekstri. Þetta form gerir ráð fyrir að sjúk-
lingar fái sömu þjónustu fyrir sama verð
og á öðrum heilsugæslustöðvum.
SPURNING DAGSINS
Er þetta fyrsta skrefið í
átt að einkavæðingu
heilbrigðisþjónustunnar?
EVRÓPUMÁL Leiðtogafundi Evrópu-
sambandsins í síðustu viku lauk
með sögulegum hætti á föstudags-
kvöldið þegar 10 ríkjum var form-
lega boðin aðild að sambandinu.
Löndin sem um ræðir eru Pólland,
Ungverjaland, Tékkland, Slóv-
akía, Slóvenía, Eistland, Lettland,
Litháen, Malta og Kýpur. Áætlað
er að þau muni ganga í sambandið
1. maí 2004. Ef innganga þessara
ríkja verður að veruleika mun að-
ildarlöndum ESB fjölga úr 15 í 25
og yrði það umfangsmesta stækk-
un sambandsins til þessa. Eftir er
að samþykkja inngönguna í þjóð-
aratkvæðagreiðslu í hverju landi
fyrir sig. Á fundinum var einnig
samþykkt að taka aðildarumsókn
Tyrklands til endurskoðunar árið
2004 og stefnt var á að bjóða Rúm-
eníu og Búlgaríu inngöngu árið
2007.
Markmið leiðtogafundarins
var fyrst og fremst að ganga frá
samningum um fjárhagslega skil-
mála fyrir inngöngu landanna 10
enda er efnahagur flestra ríkj-
anna mjög bágborinn. Samþykkt
var að veita ríkjunum fjárhags-
lega aðstoð um sem nemur 40,8
milljörðum evra á þremur árum
og mun styrkurinn einkum renna
til landbúnaðar- og samgöngu-
mála. Þó að íbúatala ESB-ríkjanna
hækki um 20% mun verg þjóðar-
framleiðsla sambandslandanna
aðeins aukast um 5% við stækk-
unina. Því er ljóst að stækkunin
mun hafa umtalsverðar efnahags-
legar afleiðingar fyrir nær öll
sambandslöndin og einnig önnur
vestræn ríki.
Ljóst er að innganga nýju ríkj-
anna mun hafa umtalsverð áhrif
á utanríkisviðskipti Íslendinga
en fleiri ríki hafa einnig hags-
muna að gæta. Noregur er að
mörgu leyti í svipaðri stöðu og Ís-
lendingar og þar á bæ hafa vakn-
að ýmsar spurningar í kjölfar
niðurstöðu leiðtogafundarins.
Forsætisráðherrann Kjell Magne
Bondevik hefur verið harður
andstæðingur ESB-aðildar fram
að þessu en sér nú fram á að
þjóðaratkvæðagreiðslur um mál-
ið muni fara fram í Noregi árið
2005 og 2010. Mörgum lands-
mönnum hans finnst hann þó
helst til varfærinn og óttast að
Noregur muni einangrast í Evr-
ópusamstarfinu ef ekki verður
tekið afdráttarlaust skref í átt að
aðild innan skamms. ■
Evrópusambandið
opnar dyr til austurs
Sögulegur áfangi náðist þegar leiðtogar ESB-landanna samþykktu
aðild 10 nýrra ríkja sem tekur gildi 1. maí 2004. Ríkin eru flest í Austur-
Evrópu og hafa ráðamenn látið þau orð falla að nú séu síðustu leifar
járntjaldsins endanlega fallnar.
LEIÐTOGAFUNDUR ESB Í KAUPMANNAHÖFN
Að loknum leiðtogafundinum föðmuðust ráðamenn og lyftu glösum til að fagna merkum
áfanga í sögu Evrópusambandsins. Á myndinni sjást forsætisráðherra Ungverjalands, Peter
Medgyessy, og Jacques Chirac Frakklandsforseti.
ÓLAFUR DAVÍÐSSON
Þar sem ekki tekst að ganga frá sölunni
fyrir jól tefst vinna fram yfir áramót.
Sala Búnaðarbankans:
Dregst
fram yfir
áramót
EINKAVÆÐING Ekkert verður af því
að gengið verði endanlega frá
sölu á hlut ríkisins í Búnaðar-
bankanum fyrir áramót. Stefnt
hafði verið að því að ljúka söl-
unni fyrir vikulokin en nú er ljóst
að það tekst ekki.
„Það eru mjög margir aðilar
sem koma að þessu, þess vegna
tekur þetta lengri tíma,“ segir
Ólafur Davíðsson, formaður
einkavæðingarnefndar. Hann
segir að menn hafi gert sér grein
fyrir því að þar sem ekki tækist
að ganga frá sölunni fyrir jól
myndi það taka einhvern tíma að
koma ferlinu í höfn eftir áramót.
„Við stefnum að því að verða
komin á leiðarenda ekki síðar en
21. janúar.“
Ólafur segir að frestunin á
undirskrift sölusamnings hafi
ekki áhrif að ráði á greiðslur fyr-
ir hlut ríkisins í bankanum. „Það
lá alltaf fyrir að greiðslurnar
myndu ekki koma fyrr en á næsta
ári þótt gengið yrði frá samning-
um núna.“ ■
STJÓRNMÁL „Mér fannst
takast mjög vel til þrátt
fyrir að ýmis ljón væru í
veginum,“ segir Sigríður
Anna Þórðardóttir, for-
maður utanríkismála-
nefndar Alþingis, um
samninginn um stækkun
Evrópusambandsins til
austurs. „Pólverjar settu
hælana niður ef maður
getur sagt svo. Þeirra
sjónarmið voru mjög
skiljanleg. Þetta er fjöl-
menn þjóð sem byggir á landbún-
aði, það var mjög ánægjulegt að
það tækist að leysa ágreininginn
um landbúnaðarmál.“
Sigríður Anna segir að stækk-
un Evrópusambandsins og Atl-
antshafsbandalagsins sé
hluti af þróun lýðræðis og
friðar í Evrópu. „Ég get
sagt að þarna séu menn
að reka endahnútinn á
þau ósköp öll sem fylgdu í
kjölfar seinni heimsstyrj-
aldar.“
„Það eru líka mikil
tækifæri fólgin í þessu
fyrir okkur Íslendinga,“
segir Sigríður. „Þó þessir
markaðir hafi ekki verið
mikilvægir fyrir okkur til
þessa er ljóst að þessi lönd verða í
framtíðinni mjög mikilvæg fyrir
okkur. Þess vegna skiptir svo
miklu máli þegar við förum í við-
ræður um stækkun EES að við
höldum vel á okkar spilum.“ ■
BANDARÍKIN Leyniþjónusta Banda-
ríkjanna, CIA, hefur fengið leyfi
til þess að drepa um tylft hryðju-
verkamanna. Leyfið er gefið út
af forseta Bandaríkjanna,
George W. Bush, og listinn kem-
ur frá Hvíta húsinu. Starfsmað-
ur Hvíta hússins sagði að
hryðjuverkamennirnir á þessum
lista væru einungis þeir „verstu
af þeim verstu“, en þar má með-
al annars finna formann al
Kaída samtakanna, Osama Bin
Laden, og samstarfsmann hans í
samtökunum, Ayman al-
Zawahri. Þetta leyfi afturkallar
bann á aftökum á vegum CIA
sem hefur verið í gildi í rúm 25
ár, eða síðan Gerald Ford, fyrr-
um forseti Bandaríkjanna setti
það árið 1976. Að sögn tals-
manna Hvíta hússins er aftöku-
leyfið enn einn liðurinn í stríði
Bandaríkjanna gegn hryðju-
verkum. ■
Bush gefur út aftökuleyfi:
Þekktir hryðjuverka-
menn á aftökulista
GEORGE BUSH
Bush hefur gefið út aftökuleyfi á nokkra af
helstu hryðjuverkaleiðtogum í heimi.
SIGRÍÐUR ANNA
Var í forsvari
þingnefndar í
Póllandi fyrir nokkru.
Stækkun Evrópusambandsins til austurs:
Endapunktur
kalda stríðsins
KÁLFAR
Þessir kálfar komust á legg. Dæmi eru um
að upp undir þriðjungur kálfa á ákveðnum
bæjum fæðist andvana.
Mikil vanhöld kálfa:
Kálfadauði
útbreiddur
LANDBÚNAÐUR Nautabændur og
starfsmenn samtaka þeirra lýsa
margir áhyggjum af fjölda þeirra
kálfa sem fæðast andvana eða deyja
fljótlega eftir fæðingu.
Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands kúa-
bænda, segir að hlutfall þeirra kálfa
sem fæðast andvana sé orðið of hátt
og full ástæða sé til að grípa inn í
áður en vandamálið eykst enn frek-
ar. „Við erum að reyna að leysa mál-
ið. Það er afar brýnt orðið í dag, og
brýnna í dag heldur en var í fyrra,
að allir bændur hugsi um kynbæt-
urnar.“
Snorri segir kúastofninn hafa
minnkað á undanförnum árum og
ástæða sé til að huga vel að sæðing-
um þeirra. Kálfadauðinn hefur að
hluta verið rakinn til skyldleika-
ræktunar þó ekki sé full sátt um þá
skýringu. „Þetta er sá stofn sem við
höfum,“ segir Snorri og telur að
með erlendu erfðaefni hefði mátt
eyða þessum hluta vandans á
skömmum tíma.
Samkvæmt rannsókn Baldurs
Helga Benjamínssonar, ráðunauts
hjá Bændasamtökunum, fæðast um
það bil 10% kálfa andvana. Þetta er
svipað í Bandaríkjunum en nokkuð
hærra en á Norðurlöndum. Hann
segist ekki hafa orðið var við aukn-
ingu á átta ára tímabili sem rann-
sókn hans tók til en sagði fulla
ástæðu til að gera átak til að draga
úr kálfadauða. Skyldleikaræktun
hafi marktæk áhrif á kálfavanhöld
en sé ekki eini þátturinn sem skipti
máli. ■
Árekstrahrina í Hafnarfirði:
Harðir
árekstrar en
engin meiðsl
LÖGREGLUMÁL Fjórir harðir árekstrar
urðu í Hafnarfirði seinni partinn í
gær. Aftanákeyrsla varð á Fjarðar-
hrauni um fjögurleytið. Skömmu
síðar lentu tveir bílar saman á mót-
um Fjarðarhrauns og Flatahrauns á
fimmta tímanum. Fáum mínútum
síðar varð árekstur á mótum Flata-
hrauns og Arnarhrauns. Draga
þurfti báða bílana af vettvangi.
Harður árekstur varð á mótum
Lækjargötu og Reykjanesbrautar
rétt eftir klukkan fimm.
Engin meiðsli urðu á fólki. ■
AUKIÐ EFTIRLIT LÖGREGLU Mikil
umferð var í kringum verslanir í
Kópavogi í gær. Að sögn lögregl-
unnar gekk allt þó vel fyrir sig.
Lögreglan hefur haft aukið eftir-
lit í kringum Smáralind síðustu
daga þegar opnunartími verslana
hefur verið lengdur.
ÓVENJU MARGIR STÚTAR Á AUST-
URLANDI Fjórir ökumenn voru
stöðvaðir á Austurlandi grunaðir
um ölvun við akstur um helgina.
Þrír ökumenn voru teknir á Eg-
ilsstöðum og einn á Seyðisfirði.
Að sögn lögreglunnar er það
sjaldgæft að svo margir séu tekn-
ir grunaðir um ölvun við akstur.
LANGT YFIR HÁMARKSHRAÐA
Ökumaður var tekinn á 128 kíló-
metra hraða á Reykjanesbraut
um helgina, 38 kílómetrum yfir
leyfilegan hámarkshraða. Lög-
reglan í Reykjanesbæ hefur ver-
ið með hert eftirlit í jólamánuðin-
um og fylgist sérstaklega með
ölvunarakstri.
LÖGREGLUFRÉTTIR