Fréttablaðið - 16.12.2002, Blaðsíða 32
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opinn frá
7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkon-
urnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir vinna saman undir nafn-
inu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær
flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur
til 22. desember og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju
í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk
unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn-
inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið,
tíminn og eilífðin.Sýningin í Hallgríms-
kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall-
grímskirkju og stendur til loka febrúar-
mánaðar.
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum. Sýning-
in samanstendur af málverkum og ljós-
myndum danska myndlistarmannsins
Martin Bigum frá árunum 1997-2002.
Sýning á jólamyndum teiknarans Brians
Pilkingtons stendur yfir í Kaffistofu
Hafnarborgar. Sýningin er opin alla
daga og lýkur 22. desember.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá-
myndir og skúlptúra sem unnin eru í
anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs-
stræti 23, Listagili á Akureyri. Sýningin
stendur til 23. desember og er opin alla
daga frá klukkan 14 til 18.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis. Sýningin
stendur til 22. febrúar.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11.00 til 17.00 og henni lýkur 22. des-
ember.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um og
endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi í
Borgarfirði og á norðanverðu Snæfellsnesi.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of
my Vanity“ sem útleggst á íslensku „Helgi-
dómur hégóma míns“ í Gallerí Hlemmi.
Leiðarstef sýningarinnar er hið svokallaða
IVD (intensive vanity disorder) eða hégóm-
aröskun en það heilkenni verður æ algeng-
ara meðal þeirra sem temja sér lífsstíl Vest-
urlandabúa.
Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirsdóttir
Jónsson sýnir í Galleríi Sævars Karls.
Kyrr birta – heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópavogs.
Sýningarstjóri er Guðbergur Bergsson.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru
verk eftir um 50 listamenn sem fæddir eru
eftir 1950 og spannar sýningin árin 1980-
2000.
Sýningin Hraun – ís – skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla daga
milli 12.00 og 17.00. Henni lýkur 15. des-
ember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýningu
sem Edward Fuglö heldur í Norræna hús-
inu.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokilis
sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir
eru velkomnir.
Flökt – Ambulatory – Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný-
listasafninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá
klukkan 11 til 17.
Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýningu
á íslensku landslagi unnið í gler í Gallerí
Halla rakara, Strandgötu 39, gegnt Hafn-
arborg.
Sýning á bútasaumsverkum eftir 10
konur stendur nú yfir í Garðabergi, félags-
miðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í
Garðabæ. Sýningarnar verða opnar alla
daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17.
Ýmsir listamenn halda sýningu í gallerí i8
Klapparstíg 33. Meðal annars eru verk
eftir Eggert Pétursson, Rögnu Róberts-
dóttur, Þór Vigfússon, Kristján Guð-
mundsson, Sigurð Guðmundsson, Roni
Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg Guðna
og Tony Cragg til sýnis og sölu. Opið er
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11-18 og
laugardaga frá kl.13 til 17 eða eftir sam-
komulagi.
32 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
*Umsögn Jóns Ólafs Sigurðssonar (Mbl. 6.12.´02)
Laxness ljóð
og fögur lög
í flutningi hins velsyngjandi
Álafosskórs*
MÁLog MENNING
Sölustaðir:
NETTÓ
Glæsileg
vasaúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
SÝNINGAR
Í gallerýi Halla rakara, Strandgötu 39,
Hafnarfirði, gegnt Hafnarborg, sýnir Árný
Birna Hilmarsdóttir landlagsmyndir
unnar í gler. Hún tekur einnig þátt í al-
þjóðlegu sýningunni Samtök Íslands í
neðri sölum Hafnarborgar. Sýningin
stendur til 22. desember.
Myndlistamennirnir Bryndís Brynjars-
dóttir, Elsa soffía Jónsdóttir, Hilmar
Bjarnason og Þórdís Þorleiksdóttir
sýna málverk, þvrívíð form og hljóðverk í
Bankastræti 5 (fyrrum húsnæði Íslands-
banka). Sýningin stendur til 23. desem-
ber og er opin mánud.-laugard. kl.
13.00-18.00.
Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir
sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu
18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem
unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar
Geir sýnir málverk, teikningar og lág-
myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin
stendur út desember og verður opin frá
kl. 14.00 til 18.00 alla daga nema
sunnudaga.
Einar Hákonarson og Óli G. Jóhanns-
son sýna verk sín í Húsi málaranna við
Eiðistorg. Í nýjum sýningarsal í Húsi mál-
aranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar
Þorláksson, Guðmundur Ármann, Jó-
hanna Bogadóttir og Kjartan Guðjóns-
son. Sýningin stendur til 23. desember
og er opin frá 14.00 til 18.00 fimmtu-
daga til sunnudaga.
Sýning á frummyndum Brians Pilk-
ingtons úr bókinni Jólin okkar stendur
yfir í Hafnarborg. Sýningin stendur til 22.
desember.
Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg
skartgripaverslunarinnar Mariellu á
Skólavörðustíg 12. Sýningin stendur til
5. janúar.
Elva Hreiðarsdóttir sýnir grafíkverk í
Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5. Sýn-
inguna nefnir Elva Grjót og sækir hún
efnivið myndverka sinna til náttúrunnar
eins og nafn sýningarinnar gefur til
kynna. Sýningin verður opin á verslunar-
tíma og stendur til 18. desember.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Kaffi Mílanó:
Raunveruleik-
inn á striga
MYNDLIST Nú stendur yfir sýning á
tíu olíumálverkum Ingvars Þor-
valdssonar á Kaffi Mílanó. Ingv-
ar er fæddur og uppalinn á
Húsavík, en hefur búið í Reykja-
vík síðan 1972. „Ég hef verið að
mála síðan 1972 og verið með
milli 30 og 40 sýningar, mest úti
á landi, til dæmis á Húsavík og
Akureyri,“ segir málarinn. Ingv-
ar segist vera sjálfmenntaður í
listinni en sótti námskeið í
Myndsýn hjá Einari Hákonar-
syni og í Myndlistarskólanum á
Freyjugötu. Ingvar er málara-
meistari að mennt. „Það eru
svona misstórir penslar í
farteskinu,“ segir hann hlæj-
andi. „Á þessari sýningu er ég að
fást við raunveruleikann á stri-
ga, út frá frekar þröngu sjónar-
horni.“
Sýningin stendur út desem-
ber. ■
MÁLVERK EFTIR
INGVAR ÞORVALDSSON
Ingvar sýnir nú verk sín á Kaffi Mílanó.
Jólajatan í Grasagarðinum:
Leikskólabörn njóta
kyrrðarstundar
JÓL Nú hefur verið sett upp jóla-
jata í lystihúsinu í Grasagarði
Reykjavíkur. Í samstarfi við
KFUM og KFUK býður Grasa-
garðurinn leikskólabörnum í
Reykjavík að njóta aðventunnar í
friðsælu og fallegu umhverfi.
„Börnin koma í tveggja hæða
strætisvagni KFUM og KFUK og
hlusta á jólasögu. Þá er farið í
lystihúsið og Jesúbarnið skoðað.
Fyrir utan lystihúsið er jólatré
sem börnin dansa í kringum og á
eftir fá börnin heitt vatn í kakó
og borða nestið sitt í garðskálan-
um Börnin njóta þess á aðvent-
unni að eiga friðsæla og ljúfa
stund í fallegu umhverfi,“ segir
Eva G. Þorvaldsdóttir, starfsmað-
ur í Grasagarðinum. ■
HLUSTAÐ Á JÓLASÖGU
Börnin hlusta hugfangin á söguna um litla
barnið í Betlehem.