Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 32

Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 32
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur sýningu á verkum sínum í Kaffitári, Bankastræti 8. Sýningin er opinn frá 7.30 til 18.00 og stendur til 10. janúar. Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkon- urnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir vinna saman undir nafn- inu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur til 22. desember og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Sýning á málverkum Aðalheiðar Val- geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn- inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið, tíminn og eilífðin.Sýningin í Hallgríms- kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall- grímskirkju og stendur til loka febrúar- mánaðar. Sýningin Heimkoman eða: heimurinn samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum. Sýning- in samanstendur af málverkum og ljós- myndum danska myndlistarmannsins Martin Bigum frá árunum 1997-2002. Sýning á jólamyndum teiknarans Brians Pilkingtons stendur yfir í Kaffistofu Hafnarborgar. Sýningin er opin alla daga og lýkur 22. desember. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá- myndir og skúlptúra sem unnin eru í anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs- stræti 23, Listagili á Akureyri. Sýningin stendur til 23. desember og er opin alla daga frá klukkan 14 til 18. Í Hafnarborg stendur yfir sýningin “Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning með þátttöku erlendra listamanna sem hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista- manna búsettra erlendis. Sýningin stendur til 22. febrúar. Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur, Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil, stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11.00 til 17.00 og henni lýkur 22. des- ember. Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi. Opið 10-23 virka daga og 12-18 um helgar. Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Sýndar verða myndskreytingar úr nýút- komnum barnabókum. Sýningunni lýkur 6. janúar 2003. Hildur Margrétardóttir myndlistarkona sýnir nokkur óhlutbundin málverk á Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan- úar. Sýningin Milli goðsagnar og veruleika er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í Amman og er ætlað að varpa ljósi á heim araba. Sýning á nokkrum verkum Guðmundar Hannessonar ljósmyndara stendur yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja- víkurminningar en myndirnar tók Guð- mundur um miðja síðustu öld í Reykja- vík. Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista- safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um og endurvekur draumsýnina um hið full- komna samfélag. Hún leggur fram hug- mynd að milljón manna borgarskipulagi í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfellsnesi. Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of my Vanity“ sem útleggst á íslensku „Helgi- dómur hégóma míns“ í Gallerí Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið svokallaða IVD (intensive vanity disorder) eða hégóm- aröskun en það heilkenni verður æ algeng- ara meðal þeirra sem temja sér lífsstíl Vest- urlandabúa. Myndlistamaðurinn Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson sýnir í Galleríi Sævars Karls. Kyrr birta – heilög birta er heitið á sýn- ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópavogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergsson. Stærsta sýning á íslenskri samtímalist stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn sem fæddir eru eftir 1950 og spannar sýningin árin 1980- 2000. Sýningin Hraun – ís – skógur er í Lista- safni Akureyrar. Sýningin er opin alla daga milli 12.00 og 17.00. Henni lýkur 15. des- ember. Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýningu sem Edward Fuglö heldur í Norræna hús- inu. Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokilis sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir eru velkomnir. Flökt – Ambulatory – Wandelgang er samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný- listasafninu. Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum Vatnsstígs 10. Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð- menningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er frá klukkan 11 til 17. Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýningu á íslensku landslagi unnið í gler í Gallerí Halla rakara, Strandgötu 39, gegnt Hafn- arborg. Sýning á bútasaumsverkum eftir 10 konur stendur nú yfir í Garðabergi, félags- miðstöð eldri borgara að Garðatorgi 7 í Garðabæ. Sýningarnar verða opnar alla daga nema sunnudaga frá kl. 13 til 17. Ýmsir listamenn halda sýningu í gallerí i8 Klapparstíg 33. Meðal annars eru verk eftir Eggert Pétursson, Rögnu Róberts- dóttur, Þór Vigfússon, Kristján Guð- mundsson, Sigurð Guðmundsson, Roni Horn, Hrein Friðfinnsson, Georg Guðna og Tony Cragg til sýnis og sölu. Opið er fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11-18 og laugardaga frá kl.13 til 17 eða eftir sam- komulagi. 32 16. desember 2002 MÁNUDAGUR *Umsögn Jóns Ólafs Sigurðssonar (Mbl. 6.12.´02) Laxness ljóð og fögur lög í flutningi hins velsyngjandi Álafosskórs* MÁLog MENNING Sölustaðir: NETTÓ Glæsileg vasaúr LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900 www.michelsen.biz Kíktu á úrvalið á SÝNINGAR Í gallerýi Halla rakara, Strandgötu 39, Hafnarfirði, gegnt Hafnarborg, sýnir Árný Birna Hilmarsdóttir landlagsmyndir unnar í gler. Hún tekur einnig þátt í al- þjóðlegu sýningunni Samtök Íslands í neðri sölum Hafnarborgar. Sýningin stendur til 22. desember. Myndlistamennirnir Bryndís Brynjars- dóttir, Elsa soffía Jónsdóttir, Hilmar Bjarnason og Þórdís Þorleiksdóttir sýna málverk, þvrívíð form og hljóðverk í Bankastræti 5 (fyrrum húsnæði Íslands- banka). Sýningin stendur til 23. desem- ber og er opin mánud.-laugard. kl. 13.00-18.00. Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu 18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar Geir sýnir málverk, teikningar og lág- myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin stendur út desember og verður opin frá kl. 14.00 til 18.00 alla daga nema sunnudaga. Einar Hákonarson og Óli G. Jóhanns- son sýna verk sín í Húsi málaranna við Eiðistorg. Í nýjum sýningarsal í Húsi mál- aranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar Þorláksson, Guðmundur Ármann, Jó- hanna Bogadóttir og Kjartan Guðjóns- son. Sýningin stendur til 23. desember og er opin frá 14.00 til 18.00 fimmtu- daga til sunnudaga. Sýning á frummyndum Brians Pilk- ingtons úr bókinni Jólin okkar stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin stendur til 22. desember. Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg skartgripaverslunarinnar Mariellu á Skólavörðustíg 12. Sýningin stendur til 5. janúar. Elva Hreiðarsdóttir sýnir grafíkverk í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5. Sýn- inguna nefnir Elva Grjót og sækir hún efnivið myndverka sinna til náttúrunnar eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna. Sýningin verður opin á verslunar- tíma og stendur til 18. desember. Í hers höndum er yfirskrift á sýningu sem stendur yfir í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýningin er opin alla daga klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar. Kaffi Mílanó: Raunveruleik- inn á striga MYNDLIST Nú stendur yfir sýning á tíu olíumálverkum Ingvars Þor- valdssonar á Kaffi Mílanó. Ingv- ar er fæddur og uppalinn á Húsavík, en hefur búið í Reykja- vík síðan 1972. „Ég hef verið að mála síðan 1972 og verið með milli 30 og 40 sýningar, mest úti á landi, til dæmis á Húsavík og Akureyri,“ segir málarinn. Ingv- ar segist vera sjálfmenntaður í listinni en sótti námskeið í Myndsýn hjá Einari Hákonar- syni og í Myndlistarskólanum á Freyjugötu. Ingvar er málara- meistari að mennt. „Það eru svona misstórir penslar í farteskinu,“ segir hann hlæj- andi. „Á þessari sýningu er ég að fást við raunveruleikann á stri- ga, út frá frekar þröngu sjónar- horni.“ Sýningin stendur út desem- ber. ■ MÁLVERK EFTIR INGVAR ÞORVALDSSON Ingvar sýnir nú verk sín á Kaffi Mílanó. Jólajatan í Grasagarðinum: Leikskólabörn njóta kyrrðarstundar JÓL Nú hefur verið sett upp jóla- jata í lystihúsinu í Grasagarði Reykjavíkur. Í samstarfi við KFUM og KFUK býður Grasa- garðurinn leikskólabörnum í Reykjavík að njóta aðventunnar í friðsælu og fallegu umhverfi. „Börnin koma í tveggja hæða strætisvagni KFUM og KFUK og hlusta á jólasögu. Þá er farið í lystihúsið og Jesúbarnið skoðað. Fyrir utan lystihúsið er jólatré sem börnin dansa í kringum og á eftir fá börnin heitt vatn í kakó og borða nestið sitt í garðskálan- um Börnin njóta þess á aðvent- unni að eiga friðsæla og ljúfa stund í fallegu umhverfi,“ segir Eva G. Þorvaldsdóttir, starfsmað- ur í Grasagarðinum. ■ HLUSTAÐ Á JÓLASÖGU Börnin hlusta hugfangin á söguna um litla barnið í Betlehem.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.