Fréttablaðið - 16.12.2002, Blaðsíða 4
4 16. desember 2002 MÁNUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Fá alþingismenn of
langt jólafrí?
Spurning dagsins í dag:
Á Byrgið að vera á fjárlögum hjá ríkinu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
23%Nei
77%
OF LANGT JÓLAFRÍ
Afgerandi meirihluti á Frett.is telur að
alþingismenn fái of langt jólafrí.
Já
ALÞINGI Þrátt fyrir að þingflokkur
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs telji innan við tíunda
hluta þingmanna fór rúmlega
fjórðungur af ræðutíma Alþingis
undir ræður þingmanna flokksins.
Fyrir hverja eina mínútu sem
tólf manna þingflokkur Framsókn-
arflokksins á í ræðutíma eiga sex
vinstri grænir þingmenn tvær
mínútur. Þá töluðu þingmenn
vinstri grænna í fjórar mínútur
fyrir hverja eina sem þingmenn
Frjálslynda flokksins töluðu þrátt
fyrir að vera aðeins þrefalt stærri
þingflokkur. Ræðutími Frjáls-
lyndra sem hluti af heildarræðu-
tíma þingmanna var þó tvöfalt
hærri en samsvarar þingmanna-
fjölda flokksins.
Ef deilt er í ræðutíma hvers
flokks með fjölda þingmanna kem-
ur í ljós að Sjálfstæðismenn töluðu
minnst, um það eina og hálfa
klukkustund, en vinstri grænir
mest, um það bil sjö og hálfa
klukkustund. Framsóknarþing-
menn töluðu að meðaltali í tæpa
tvo tíma og þingmenn Samfylking-
ar hálftíma lengur. Frjálslyndir
töluðu í rúman fimm og hálfan
tíma hver. ■
Meðalræðutími sjálfstæðismanna stystur allra:
Vinstri grænir
töluðu mest
RÆÐUTÍMI EFTIR
ÞINGFLOKKUM
Flokkur klst.:mín.
Framsóknarflokkur 23:30
Sjálfstæðisflokkur 34:20
Frjálslyndi flokkurinn 11:24
Samfylkingin 41:13
Vinstrihreyfingin 44:32
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Þó að Steingrímur sé ekki formaður stærsta flokksins á þingi fer mest fyrir
ræðuhöldum flokks hans.
PALESTÍNA Leiðtogi Palestínu-
manna, Yasser Arafat, hefur sak-
að Osama Bin Laden um að nýta
sér baráttu Palestínumanna gegn
Ísraelsmönnum sér í hag. Hann
sagði að al Kaída-samtökin væru
að fela sig bak við málstað Palest-
ínumanna til að ná fram sínum
vilja. Fyrr í mánuðinum lýsti for-
sætisráðherra Ísraels, Ariel Shar-
on, yfir því að liðsmenn al Kaída -
amtakanna stunduðu hryðjuverk
á Gaza-svæðinu. Þessu neitaði
Arafat og sakaði ísraelsku leyni-
þjónustuna um að ljúga því að
þeir hefðu fundið liðsmann al
Kaída á Gaza-svæðinu. Arafat
sagði enn fremur að Sharon vissi
vel að engin tengsl væru á milli
palestínskra uppreisnarmanna og
al Kaída-samtakanna, að Bin
Laden hafi aldrei hjálpað Palest-
ínumönnum og væri að vinna
gegn málstað þeirra. ■
Arafat gagnrýnir Bin Laden:
Bin Laden nýtir
sér málstaðinn
OSAMA BIN LANDEN
Bin Laden er gagnrýndur af Arafat fyrir að
nýta sér málstað Palestínumanna.
Georg Lárusson:
Árétting
INNFLYTJENDUR Í Fréttablaðinu 14.
desember 2002 birtist frétt undir
fyrirsögninni „Stefnuleysi í mál-
um innflytjenda“, sem byggir, að
því er virðist,
eingöngu á við-
tali við undirrit-
aðan, forstjóra
Útlendingaeftir-
litsins. Þar segir
blaðamaður með
eigin orðum að
enga stefnu
varðandi inn-
flutning fólks til
landsins sé að
finna. Ástæða er að taka það skýrt
fram að það eru ekki orð mín að
stefnuleysi ríki í málum innflytj-
enda. Rétt er hins vegar að árétta
það sem eftir mér er haft í frétt-
inni en þar segir: „Stefnan í út-
lendingamálum ræðst að mestu af
þörfinni fyrir vinnuafl á hverju
ári.“ ■
LÁRA MARGRÉT RAGNARSDÓTTIR
Á haustmánuðum varði hún nær helmingi
meiri tíma í ræðustóli Alþingis en allan
síðasta vetur.
Ræðuhöld þingmanna:
Skaut
átta aftur
fyrir sig
ALÞINGI Lára Margrét Ragnars-
dóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, varði meiri tíma í ræðu-
stóli Alþingis á haustþinginu sem
lauk á föstudag en hún gerði all-
an síðasta vetur. Þá mælti hún
minnst allra þingmanna.
Á síðasta heila þingi mældust
ræður Láru Margrétar alls 24
mínútur, það er tæpur helmingur
þess tíma sem næsti þingmaður
fyrir ofan hana talaði úr ræðu-
stóli Alþingis. Á þingfundum fyr-
ir áramót hefur Lára Margrét
flutt ræður í 35 mínútur og skot-
ið átta öðrum þingmönnum aftur
fyrir sig. ■
ÞRÍR MEÐ FIMM RÉTTA Í LOTTÓ
Þrír voru með fimm rétta í Lottó
og fékk hver þeirra rúmlega tíu
og hálfa milljón króna í sinn hlut
eftir að dregið var á laugardag.
Einn var með fjórar tölur réttar
og bónus og fékk sá rúmlega eina
milljón króna. Tölurnar sem
komu upp voru 9, 13, 16, 22 og 33.
Bónustalan var 1.
INNLENT
ALÞINGI Þingmenn Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs eru
sem fyrr þeir þingmenn sem gera
ítarlegasta grein fyrir sjónarmið-
um sínum í þingræðum á Alþingi.
Það er í það minnsta niðurstaðan
ef miðað er við þann tíma sem
hver og einn þingmaður varði í
ræðustóli Alþingis áður en hlé var
gert á fundum þingsins um ára-
mót.
Þingmenn flokksins eru í fjór-
um af fimm efstu sætunum yfir
þá þingmenn sem töluðu lengst.
Ögmundur Jónsson, þingflokks-
formaður vinstri grænna, talaði
allra manna mest. Hann var sam-
tals ellefu klukkustundir í ræðu-
stól Alþingis og einni mínútu bet-
ur. Næstur kom Steingrímur J.
Sigfússon, formaður hans. Hvor
þeirra um sig talaði meira en sam-
svarar samanlögðum ræðutíma
þeirra 18 þingmanna sem minnst
töluðu. Þess má reyndar geta að
hefði einhver ætlað að hlusta á all-
ar ræður Steingríms á síðasta
vetri í einum rykk hefði sá hinn
sami þurft tvo sólarhringa til
þess.
Guðjón A. Kristjánsson, þing-
flokksformaður frjálslyndra, er
eini þingmaðurinn sem kemst upp
á milli karlkyns þingmanna VG í
samanlögðum ræðutíma. Kven-
kyns þingmenn VG voru minna
fyrir að fara í ræðustól í haust en
flokksbræður þeirra. Þær voru þó
báðar ofarlega á lista, Kolbrún
Halldórsdóttir í níunda sæti og
Þuríður Backman í 16. sæti.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, er sá
stjórnarliði sem mest talaði, sam-
tals í fimm klukkustundir og
fimm mínútur. Geir H. Haarde
fjármálaráðherra talaði mest
Sjálfstæðismanna, í fjóra tíma og
21 mínútu.
Hvort sem það er því að kenna
að búið er að samþykkja hnefa-
leikafrumvarp Gunnars Birgis-
sonar eða einhverju öðru er hann
sá þingmaður sem flutti stystar
ræður á þinginu í haust. Stundar-
fjórðungur dugir til að hlusta á
þær. Gunnar og þingsystkin hans
úr Sjálfstæðisflokknum eru í fjór-
um efstu sætum yfir stystan
ræðutíma. Þar komast tíu stjórn-
arliðar á blað áður en fyrsti
stjórnarandstæðingurinn kemur
til sögunnar. Ræður Svanfríðar
Jónasdóttur, Samfylkingu, tóku 38
mínútur í flutningi og talaði eng-
inn stjórnarandstæðingur minna.
Það eru alls 19 þingmenn sem
eru með samanlagðan ræðutíma
upp á innan við klukkustund. Af
þeim eru þrír stjórnarandstæð-
ingar, hinir eru allir stjórnarliðar.
brynjolfur@frettabladid.is
Ögmundur sló
Steingrími við
Ögmundur Jónasson flutti lengstar þingræður allra þingmanna áður
en jólahlé var gert á störfum Alþingis. Hann og Steingrímur J.
Sigfússon töluðu hvor um sig á við þá 18 þingmenn sem minnst
töluðu úr ræðustól Alþingis.
GUNNAR BIRGISSON
Varði stundarfjórðungi í
ræðustól í haust.
ÖGMUNDUR JÓNASSON Í RÆÐUSTÓL
Veturinn 2001 til 2002 var formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ræðukóngur
Alþingis. Nú slær þingflokksformaðurinn honum við.
MEST RÆÐUHÖLD
ÞINGMANNA
Þingmaður klst.:mín.
Ögmundur Jónasson 11:01
Steingrímur J. Sigfússon 10:46
Guðjón A. Kristjánsson 8:51
Jón Bjarnason 8:49
Árni Steinar Jóhannsson 6:16
MINNST RÆÐUHÖLD
ÞINGMANNA
Þingmaður Mínútur
Gunnar Birgisson 15
Sigríður Ingvarsdóttir 16
Björn Bjarnason 19
Kjartan Ólafsson 19
Jónína Bjartmarz 22