Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 8
8 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL
3ATVINNUMÁL „Hér er mikið og
vaxandi atvinnuleysi og við höf-
um varað við þessari þróun,“ seg-
ir Sigurður Bessason, formaður
Eflingar – stéttarfélags, um þann
fjölda dvalarleyfa sem gefin eru
út til útlendinga
sem koma til
starfa á Íslandi.
Fjöldi þeirra út-
lendinga sem kom-
ið hafa komið til
landsins til starfa,
í flestum tilvikum
við láglaunastörf,
hefur fjórfaldast
frá árinu 1995.
Flestir hafa komið
til starfa í fisk-
vinnslu víða um land. Þar eru Pól-
verjar í meirihluta. Samkvæmt
bráðabirgðatölum Útlendingaeft-
irlitsins hefur 17 útlendingum
verið veitt dvalarleyfi daglega á
Íslandi það sem af er árinu.
Sigurður segir að félag hans
hafi varað við því að þegar sam-
dráttartímar rynnu upp þá kæmi
það niður á félagsmönnum hve
mörgum útlendingum hefði verið
veitt dvalarleyfi. Nú væri sam-
dráttur á vinnumarkaði orðinn að
veruleika eins og sjá mætti af því
að um þrjú þúsund manns væru
atvinnulausir á landinu öllu. Í nóv-
ember voru 4.077 manns að með-
altali á atvinnuleysisskrá. Innan
Eflingar eru sjö hundruð manns
atvinnulausir.
„Við erum ósáttir við stefnu-
leysi yfirvalda varðandi innflutn-
ing á erlendu vinnuafli. Hve
mörgum er hleypt inn í landið
mótast fyrst og fremst af því
hvort einhver atvinnurekandi úti í
bæ kallar eftir vinnuafli en ekki
hvert ástandið er á vinnumark-
aði,“ segir Sigurður.
Hann segir að félagið sé regl-
um samkvæmt beðið um álit þeg-
ar umsóknir væru um að flytja
inn starfsfólk. Síðan væri undir
hælinn lagt hvort farið væri eftir
því sem félagið legði til.
„Við gefum í mörgum tilvikum
neikvætt svar en ég tel mig hafa
vissu fyrir því að í ýmsum tilvik-
um hafi umsóknir verið afgreidd-
ar jákvætt í gegnum Vinnumála-
stofnun. Það er ekki tekið mark á
því sem við vísum til sem er ann-
ars vegar atvinnuástandið og hins
vegar það að atvinnurekendur
standa ekki í skilum og eru oft
með sín mál í megnasta ólestri,“
segir Sigurður og vísar til þess að
oft sé um að ræða atvinnurekend-
ur sem séu í rekstrarerfiðleikum,
standi ekki í skilum en vilji halda
niðri launakostnaði með því að fá
ódýrt vinnuafl frá útlöndum. „Af
einhverjum ástæðum vilja ákveð-
in fyrirtæki aðeins ráða útlend-
inga í vinnu en ekki Íslendinga,“
segir hann.
Hann segir að félagsmálaráðu-
neytið taki endanlega ákvörðun
varðandi atvinnuleyfi og þær
ákvarðanir séu gjarnan rangar.
„Ég tel að stefna ráðuneytisins
hafi verið röng í töluvert langan
tíma. Það er óþolandi í þessari
stöðu að ekki skuli vera tekið stíf-
ar á þessum málum hjá félags-
málaráðuneytinu. Töluverður
hluti þeirra félaga okkar sem eru
á atvinnuleysiskrá væru tilbúnir
til þess að taka þá atvinnu sem
þeim stæði til boða,“ segir Sigurð-
ur.
Hann segist ekki vera að benda
á þá útlendinga sem starfað hafi í
landinu um lengri eða skemmri
tíma.
„Við erum fyrst og fremst að
gagnrýna að verið er að fá fleiri
útlendinga til starfa hér á sama
tíma og jafn mikið atvinnuleysi er
til staðar,“ segir Sigurður.
rt@frettabladid.is
Reiður vegna
útlends vinnuafls
Mesta atvinnuleysi í sjö ár og útlitið fram undan svart. 3000 manns at-
vinnulausir en erlent vinnuafl streymir inn í landið, að sögn Sigurðar
Bessasonar, formanns Eflingar. Röng stefna félagsmálaráðuneytis.
SIGURÐUR BESSASON
Félagsmálaráðuneytið leyfir innflutning erlends vinnuafls í bullandi atvinnuleysi.
„Við gefum í
mörgum tilvik-
um neikvætt
svar en um-
sóknir hafa
verið afgreidd-
ar jákvætt í
gegnum
Vinnumála-
stofnun.“
HEILBRIGÐISMÁL Rekstur nýrrar
heilsugæslustöðvar i Salahverfi
verður boðin út í dag að sögn Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra, sem sagði að um væri að
ræða tilraun til að bjóða upp á
fleiri möguleika í heilsugæslu-
þjónustunni.
Jón segir að rekstur slíkrar
stöðvar verði á sömu forsendum
og á öðrum heilsugæslustöðvum
sem ríkið reki. Sjúklingar eigi
ekki að verða þess varir að rekst-
urinn sé með öðrum hætti.
„Þarna er verið að nýta kosti
einkareksturs með sömu félags-
legu þáttunum og hafa verið til
staðar. Komugjöld eru þau sömu
og þjónustan með sama hætti. Ég
geri mun á einkarekstri og einka-
væðingu. Þetta er ekkert nýtt
form í sjálfu sér því í öldrunar-
þjónustu hefur verið boðið út
með þessum hætti.“
Jón telur ekki um sparnað að
ræða með þessu fyrirkomulagi
heldur sé verið að reyna formið.
„Það er ekki lagt upp með nein
slík áform. Fyrst er að sjá hvort
einhver býður í þessa starfsemi,
fyrr er ekki hægt að segja neitt
um það,“ segir hann.
Undirbúningsvinnan hefur
verið mjög gagnleg og segir Jón
að sú vinna hafi gefið yfirsýn um
hvað svona þjónusta kostar. „Með
þessu útboði er ég á vissan hátt að
koma til móts við heilsugæslu-
lækna í samræmi við viljayfirlýs-
ingu mína til þeirra.“ ■
Heilsugæsla boðin út í fyrsta sinn:
Tilraun til
fjölbreytni
KÓPAVOGUR
Í Salahverfi er að byggjast upp mjög fjölmennt hverfi sem hefur verið án heilsugæslu-
stöðvar fram að þessu. Gert er ráð fyrir að stöðin geti tekið til starfa eftir mitt næsta ár.
Kópavogur:
Stal konfekti
og hamborg-
arhryggjum
LÖGREGLUFRÉTTIR Kópavogslög-
reglan handtók mann um helgina
sem stolið hafði fjórum hamborg-
arhryggjum og var með ráða-
gerðir að stelu fleitu til jólanna.
Upp komst um þjófinn bí-
ræfna eftir að hann tók fimm kíló
af konfekti úr Bónusverslun og
reyndi að hafa á brott með sér.
Starfsmaður verslunarinnar
sá hins vegar til hans og hringdi
á lögreglu meðan annar starfs-
maður elti manninn uppi á
hlaupum.
Þegar lögregla kannaði málið
betur komu hamborgarhryggirn-
ir í ljós. Þeim hafði hann stolið úr
annarri verslun í bænum. Mann-
inum var stungið inn en fékk að
fara eftir yfirheyrslur. ■
FRANSKI HERINN Á FÍLABEINS-
STRÖNDINNI Frönskum hermönn-
um hefur verið fjölgað á Fíla-
beinsströndinni. Með liðsaukan-
um eru hermennirnir orðnir yfir
2000. Störf þeirra felast aðallega
í að vernda erlenda ríkisborgara
á Fílabeinsströndinni.
LÖGMÆTIR KYNÞÁTTAFORDÓMAR
Erlendir ríkisborgarar fá ekki að
vinna við eitt af hverjum þremur
störfum í Frakklandi. Vinnuveit-
endur hafa þannig lagalegan rétt
til þess að neita útlendingum um
ákveðin störf. Þetta kemur niður
á starfsstéttum eins og læknum,
lyfjafræðingum og rafvirkjum.
Þessi lög voru sett í kreppunni
miklu og eru enn í fullu gildi.
UNGFRÚ FRAKKLAND KOSIN
Corrine Coman var valin feg-
ursta stúlka Frakklands á laugar-
dag. Hún á ættir að rekja til frön-
sku nýlendunnar Guadeloupe í
Kyrrahafi og er alin þar upp.
ERLENT
ORÐRÉTT
HVAÐ VAR HANN AÐ REYKJA?
Það hafði þau áhrif
á mig að ég vakti í
tvo sólarhringa en
öðru breytti það
ekki svo ég hef
ekki reynt aftur.
Jón Baldvin Hannibals-
son um áhrifin af tetra-
hydrocannabinoli (hassi) á sig. Séð og
heyrt, 12. desember.
NÚ VERÐA LÖMBIN SÁR
Ég hef aldrei borðað rjúpur um
jólin því mér þykir of vænt um
þennan fugl til að borða hann.
Guðni Ágústson. DV, 12. desember.
SJALDAN ER GÓÐ VÍSA...
Kvennabaráttan er styttra á veg
komin en margan grunar.
Sigmundur Ernir Rúnarsson í leiðara. DV,
11. og 12. desember.
Mótmæli í Venezúela:
Forsetanum mótmælt
MÓTMÆLENDUR Í VENEZÚELA
Yfir milljón mótmæla forsetanum í höfuð-
borginni Caracas.
VENEZÚELA, AP Yfir milljón íbúar
hvöttu Hugo Chavez, forseta
Venezúela, til að segja af sér í
höfuðborginni Caracas.
Síðan 2. desember hefur alls-
herjarverkfall lamað þjóðfélag-
ið, en verkalýðsforingjar krefj-
ast þess að boðað verði til nýrra
kosninga.
Hugo Chavez hefur verið for-
seti Venezúela síðan 1998, en
hann er mjög vinstrisinnaður og
þekktur aðdáandi Fidels Castró,
hins aldna forseta Kúbu. Chavez
var endurkjörinn í júlí á þessu
ári og hefur síðan mátt þola fjöl-
margar mótmælaaðgerðir af
ýmsu tilefni.. ■