Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 10
10 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
INNLENT
Jólagjöf skotveiði-
mannsins í ár!
Til afgreiðslu strax fyrir fimm og sjö
byssur. Viðurkenndir af skotvopna-
eftirliti.
Öflugir skápar
með vönduð-
um læsingar-
búnaði.
Heildsöluverð
aðeins
kr. 39.900.-
m. vsk.
Varðveisla skotvopna er alvörumál.
Frí heimkeyrsla í Reykjavík
og á Akureyri fram að jólum.
GAGNI Heildverslun
Hafnarstræti 99–101, Akureyri
S. 461-4025 GSM 461-4026
gagni@gagni.is www.gagni.is
Visa – EURO
SAMKEPPNISRÁÐ Kaup Sláturfélags
Suðurlands á meirihluta hlutafjár
í Reykjagarði fela í sér samruna í
skilningi samkeppnislaga. Í
ákvörðun samkeppnisráðs segir
að samruninn uppfylli skilyrði til
íhlutunar og til að koma í veg fyr-
ir röskun á samkeppni setur ráðið
ýmis skilyrði fyrir kaupunum.
Á meðal skilyrða sem sam-
keppnisráð setur er að fulltrúi
Sláturfélagsins í stjórn Ísfugls,
sem Sláturfélagið á 30% í, skuli
láta af setu sinni þar eigi síðar en
1. júní á næsta ári. Sláturfélaginu
er jafnframt óheimilt að beita
eignaráhrifum í Ísfugli til að
hafa áhrif á viðskiptastefnu og
viðskiptaákvarðanir fyrirtækis-
ins.
Sláturfélagið og Reykjagarður
annars vegar og Ísfugl hins vegar
skulu starfa sjálfstætt við hvers
konar vinnslu á alifuglakjöti, við
dreifingu á alifuglaafurðum og
við sölu og markaðsmál.
Samkeppnisráð hyggst endur-
skoða skilyrði ákvörðunar sinnar
1. júlí árið 2006. ■
Samkeppnisráð setur skilyrði:
Viðskiptaleg samvinna
við Ísfugl útilokuð
SAMKEPPNISSTOFNUN
Samkeppnisráð setur það skilyrði að fulltrúi Sláturfélagsins í stjórn Ísfugls, sem Sláturfé-
lagið á 30% í, skuli láta af setu sinni þar eigi síðar en 1. júní á næsta ári.
SAMGÖNGUR Vinna við jarðgöng
milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar hefst að líkindum í apríl á
næsta ári og við göng milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar árið 2004.
Samgönguráðherra hefur falið
Vegagerðinni að bjóða út hvoru
tveggja nú í vetur. Ákveðið hefur
verið að hafa útboðið í tvennu lagi
og verða útboðsgögn fyrir jarð-
göng á Austfjörðum send í vik-
unni til valinna verktaka. Þá er
vinna við gögn vegna jarðganga
fyrir norðan langt komin og verða
útboðsgögnin send verktökum í
lok febrúar.
Reiknað er með að sama hag-
kvæmni af samlegðaráhrifum
beggja verkefnanna náist með
þessari tilhögun eins og við að
bjóða þau bæði út í einu lagi.
Vinna við jarðgöng fyrir austan
ætti að hefjast seint í apríl á næsta
ári. Boruð verða 5,9 kílómetra löng
jarðgöng á milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar og er áætlað að
borun ljúki um 1 ári síðar, eða fyr-
ir árslok 2004. Þá verður lagður 8
kílómetra langur vegur að göngun-
um og er áætlað að göngin verði
tilbúin síðla árs 2005. Heildar-
kostnaður er áætlaður um 3,8
milljarðar króna á núverandi verð-
lagi.
Þá er stefnt að því að vinna við
rúmlega 10 kílómetra löng ein-
breið jarðgöng jarðgöng milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hefj-
ist árið 2004, um svipað leyti og
gangagreftri lýkur fyrir austan.
Vinna við bæði verkefnin verður
því í gangi samtímis árið 2005.
Áætlað er að göngin fyrir norðan
verði tilbúin árið 2008 og að heild-
arkostnaður verði um 6,8 milljarð-
ar á núverandi verðlagi. ■
Tvenn jarðgöng boðin út í vetur:
Tæplega ellefu millj-
arða framkvæmdir
JARÐGÖNG FYRIR AUSTAN
Langþráðir draumar Austfirðinga virðast vera að rætast hver á fætur öðrum. Álver við
Reyðarfjörð er innan seilingar og nú hefur verið ákveðið að ráðast í gerð jarðganga milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar í apríl næstkomandi.
ÞRÍR Á SJÚKRAHÚS EFTIR
ÁREKSTUR Þrír voru fluttir á
sjúkrahús eftir árekstur á mót-
um Gylfaflatar og Strandvegar í
Grafarvogi á laugardag. Meiðsl
fólksins virtist ekki alvarleg að
sögn lögreglu en bílarnir voru
báðir fluttir með kranabíl í
burtu. Loka þurfti Strandvegi í
tæplega klukkustund meðan lög-
regla og sjúkralið athöfnuðu sig.
FÍKNIEFNAMÁL Á ÞÓRSHÖFN
Tveir menn voru handteknir á
Þórshöfn í síðustu viku í tengsl-
um við fíkniefnamál sem upp
komst. Lagði lögreglan í kjölfar-
ið hald á fimm grömm af hassi.
Þegar fíkniefnamálið var betur
kannað kom í ljós að annar
mannanna tengdist því ekki og
var því látin laus. Hinn maður-
inn játaði aðild og telst því málið
upplýst.
DRÍFA VILL ÞRIÐJA SÆTIÐ Drífa
Sigfúsdóttir sækist eftir þriðja
sæti á lista Framsóknarflokksins
í Suðurkjördæmi fyrir komandi
kosningar. Drífa eru fyrrum for-
seti bæjarstjórnar og varabæj-
arstjóri í Reykjanesbæ auk þess
sem hún hefur starfað í Neyt-
endasamtökunum.
WASHINGTON, AP Á alþjóðlega
vopnasölumarkaðnum er enginn
settur utangarðs.
Ríki, sem annars eiga lítið sem
ekkert sameiginlegt, koma þar
saman til þess að eiga viðskipti,
hvort heldur það er gert fyrir
opnum tjöldum eða undir borðinu.
Einu bannvörurnar eru allra
háþróuðustu vopnin. Þau sem
eiga nógan pening geta fengið allt
annað sem þau vilja.
„Sagt er að undarlegustu vin-
áttubönd geti myndast í stjórn-
málum,“ sagði Jon Wolfsthal, sem
er sérfræðingur í útbreiðslu
vopna. „Það sama gildir um al-
þjóðleg vopnaviðskipti.“
Í vikunni stöðvaði bandaríski
herinn skip sem var á leið með
flugskeyti frá Norður-Kóreu til
Jemens. Stjórnvöld í Jemen við-
urkenndu ekki að eiga flugskeyt-
in fyrr en skipið hafði verið tekið.
Þá kröfðust þau þess að fá þau af-
hent.
Norður-Kórea er hreint ekki
eina ríkið sem selur vopn til allra
sem vilja kaupa. Kínverjar og
Rússar hafa einnig verið drjúgir
sölumenn vopna. Og mörg smærri
ríki, sem hafa hingað til fengið
vopn, eru nú farin að flytja út
líka.
Langstærsti vopnasalinn á
heimsmarkaðnum eru þó Banda-
ríkin sjálf. Frá þeim er kominn
nánast helmingur allra vopna,
sem til eru í heiminum.
Árið 2000 öfluðu Bandaríkin
sér 14 milljarða bandarískra dala
með vopnaútflutningi, sem er
meira en helmingi hærri upphæð
en Bretar fengu fyrir vopnasölu
sína. Rússar eru svo í þriðja sæti
og Frakkar í því fjórða.
Líkt og flest þau ríki sem selja
vopn í stórum stíl selja Bandarík-
in sín vopn sjaldnast beint til
vafasamra kaupenda. Hins vegar
verður útkoman úr vopnavið-
skiptunum oft á endanum dálítið
undarleg.
Til að mynda var bandarískum
flugskeytum af gerðinni Stinger
beitt gegn bandarískum hermönn-
um í Afganistan. Bandaríkin út-
veguðu afgönskum uppreisnar-
mönnum þessi vopn á sínum tíma
þegar þeir börðust gegn sovéska
hernámsliðinu þar.
Írakar notuðu einnig bandarísk
vopn þegar þeir réðust inn í
Kúvæt árið 1990. Og vopnaleitar-
menn eru nú í Írak meðal annars
að leita að efnavopnum, sem
Bandaríkin útveguðu Írökum þeg-
ar þeir áttu í stríði við Íran. ■
Allir fá vopn sem vilja
Á alþjóðlega vopnasölumarkaðnum myndast oft einkennileg vináttubönd. Bandaríkin eru
langsamlega stærsti vopnasali heims.
BANDARÍSKUR VOPNASMIÐUR
SÝNIR AFURÐIR SÍNAR
Bandaríkjamenn eru langstærsti vopnasali
heims. Á alþjóðlega vopnamarkaðnum
geta allir fengið þau vopn sem þeir vilja fá
ef nóg er af peningum í spilinu.
Grænmeti og ávextir:
Lækkun
frá árs-
byrjun
VERÐLAG Algengar ávexta- og græn-
metistegundir hafa lækkað í verði
frá því Samkeppnisstofnun byrjaði
að gera mánaðarlegar verðkannanir
nú í febrúar.
Appelsínur hafa lækkað um
fimmtung í verði síðan í febrúar, per-
ur um 31% og epli um 15-34%. Verð á
agúrkum hefur lækkað um 54-60%,
innfluttir tómatar um 39% og rauð-
laukur, blaðlaukur, spergilkál og sell-
erí um 35-51%.
Helsta undantekningin eru kart-
öflur, sem hafa hækkað um 5%. ■