Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 12
12 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
SAMRÁÐ „Mér finnst þetta orðið
óskaplega ómerkilegt áróðurs-
stríð af hálfu þessara aðila og
furða mig á því hvernig verka-
lýðshreyfingin kemur fram í
þessu máli,“ segir Geir H.
Haarde fjármálaráðherra. Efling
birti auglýsingu í Morgunblaðinu
þar sem lýst var eftir efndum
Geirs á yfirlýsingu sem hann gaf
í tengslum við samkomulag ASÍ
og SA fyrir ári síðan.
Yfirlýsingin tekur til við-
ræðna um aukningu réttinda
þeirra starfsmanna ríkisins sem
eru í aðildarfélögum ASÍ til móts
við réttindi þeirra starfsmanna
sem eru í stéttarfélögum ríkis-
starfsmanna. Í yfirlýsingunni
segir meðal annars: „Af hálfu
ráðuneytisins er fullur vilji til
þess að halda þessum viðræðum
áfram og freista þess að ná
ásættanlegri niðurstöðu.“
„Þetta hefur verið staðið við,“
segir Geir og vísar til viðræðna
milli ríkisins og ASÍ. „Við höfum
talað um ákveðna hluti sem við
erum tilbúnir að fallast á. Þeir
eru með aðrar kröfur sem þeir
krefjast að sé skilyrðislaust fall-
ist á.“ Ekki hafi náðst ásættanleg
niðurstaða fyrir báða aðila þrátt
fyrir þær viðræður. Auglýsingin
nú lýsi hins vegar ekki viðleitni
til að klára málið við samninga-
borðið. ■
Efling lýsir eftir efndum:
Ómerkilegt áróðursstríð
GEIR H. HAARDE
„Þó mér finnist þetta brosleg auglýsing og
fáránleg þá minnist ég þess ekki að menn
hafi persónugert deilumál með þessum
hætti á árum áður.“
Vísindamenn í
Bandaríkjunum:
Endurnýjast
hjartað?
WASHINGTON, AP Vísindamenn í
Bandaríkjunum telja mögulegt að
hjartað geti gert við sjálft sig.
Þeir hafa komist að því að hjarta-
vöðvinn í sebrafiskum, sem er ör-
smá skrautfiskategund, geti end-
urnýjast af sjálfu sér og náð sér
fyllilega á ný eftir að um fimmt-
ungur hefur verið fjarlægður.
Vísindamenn við Harvard-há-
skóla telja að í mönnum geti verið
erfðavísar sem séu hliðstæðir
þeim erfðavísum í sebrafiskunum
sem gera það að verkum að hjart-
að endurnýjast í þeim. ■
ÖRYRKJAR Hlutfall öryrkja er lang-
hæst í Reykjavík og Norðurlandi
eystra samkvæmt skýrslu sem
heilbrigðisráðherra skilaði að
beiðni Soffíu Gísladóttur og fleiri
þingmanna. Þingmennnirnir báðu
um skýringar á því hvers vegna
hlutfall öryrkja væri hæst á
Norðurlandi eystra. Í skýrslunni
kemur fram að í Reykjavík búa
43,7% landsmanna en 48% ör-
yrkja búa í Reykjavík. Á Norður-
landi eystra búa 9,0% landsmanna
en hlutfall öryrkja í kjördæminu
er 10,6%. Í öðrum kjördæmum er
hlutfall öryrkja lægra en hlutfall
íbúa af heildarfjölda landsmanna,
nema á Suðurlandi en þar er mun-
urinn vart marktækur.
Tilgáta manna er sú að fjöldi
öryrkja markist nokkuð af því
hvar hægt er að leita úrræða og
telur heilbrigðisráðherra tölurnar
ekki gefa ástæðu til frekari rann-
sókna.
Áformað er að koma á fót end-
urhæfingarstöð fyrir öryrkja á
Húsavík og telur heilbrigðisráð-
herra að með tilkomu hennar
muni hlutfall öryrkja í Norður-
landskjördæmi eystra hækka enn
frekar og lækka annars staðar. ■
Njóttu þess
að vera til
um leið og
þú hugar að
heilsunni.
Leiðin að bættri líðan
Engjavegi 6 • 104 Reykjavík
Sími 561 6990
Flott ...
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
LEIKSKÓLAGJÖLD HÆKKA Bessa-
staðahreppur hyggst hækka gjald-
skrá leikskóla sveitarfélagsins um
6% um áramótin. Hækkunin nær
bæði til grunntímagjalds og máls-
verða. Þá er einnig stefnt að því
að hækka álagningu fráveitu-
gjalds úr 0,09% af álagningar-
stofni í 0,12%. Hækkunin á að
standa straum af kostnaði við
fjárfestingar á vegum veitunnar á
næstu árum.
VISTAKSTUR Í HAFNARFIRÐI Hóp-
bílar, sem sér um skólaakstur fyr-
ir Hafnarfjarðarbæ, hefur tekið
upp svokallaðan vistakstur
(EcoDriving). Undirstöður
vistaksturs er aukin hagkvæmni í
akstri, aukið öryggi og umhverfis-
vernd.
BREYTTIR PRÓFDAGAR Uppröðun
samræmdu prófanna í tíunda
bekk næsta vor liggur fyrir. Próf í
íslensku verður 5. maí, náttúru-
fræði 6. maí, enska 8. maí, samfé-
lagsgreinar 8. maí, danska 9. maí
og stærðfræðiprófið verður 12.
maí.
SKIPULAGSMÁL Ný verslunarmið-
stöð og tvær tíu hæða blokkir
með 80 íbúðum munu rísa í mið-
bæ Akraness ef bæjaryfirvöld
samþykkja tillögu sem Hörður
Jónsson bygginga-
meistari hefur
lagt fram.
Björn S. Lárus-
son, talsmaður
framkvæmdarað-
ila, segir að versl-
u n a r m i ð s t ö ð i n
verði 7.000 fer-
metrar og áætlað-
ur kostnaður við
hana sé um 800
milljónir króna.
Áætlaður kostnaður við blokk-
irnar, sem verða samtals um
12.000 fermetrar, liggi ekki fyrir
en reikna megi með að hann
verði um 700 til 800 milljónir.
Framkvæmdin í heild muni því
kosta um 1,5 til 1,6 milljarða
króna.
Þorvaldur Vestmann, sviðs-
stjóri tækni- og umhverfissviðs
bæjarins, segir að byggingar-
reiturinn, sem er á Skagavers-
túninu, sé 12.000 fermetrar. Til
hafi staðið að byggja á reitnum
síðastliðin 15 til 20 ár en ekkert
verið gert. Nú liggi fyrir mjög
áhugaverð tillaga sem hann hafi
trú á að skipulagsyfirvöld muni
taka jákvætt í.
Björn S. segir að auk þess að
reisa verslunarmiðstöð og íbúðar-
húsnæði sé hugmyndin að opna 40
herbergja hótel í Landsbankahús-
inu. Forsvarsmenn bankans hafi
lýst áhuga á að flytja starfsemina
inn í verslunarmiðstöðina. Hann
segir að um 80 til 90 milljónir
króna muni kosta að breyta bank-
anum í hótel og að mikil þörf sé
fyrir nýtt hótel í bænum.
Björn S. segir að verslunar-
hús hafi ekki verið byggt á Akra-
nesi í tugi ára. Bærinn sé sá eini
sinnar stærðar á landinu sem
ekki hafi almennilega verslunar-
miðstöð. Hann segist ekki efast
um að 80 íbúðir myndu seljast,
enda hafi verið gífurleg upp-
sveifla í atvinnulífi bæjarins
undanfarin ár. Með tilkomu
Norðuráls hafi 300 íbúar flutt í
bæinn og samfara stækkun ál-
versins megi búast við enn meiri
fjölgun á Akranesi, en þar búa
um 5.600 manns í dag.
Reiknað er með að tillögurnar
verði lagðar fyrir bygginga- og
skipulagsnefnd eftir áramót.
Björn S. segir að ef tillögurnar
verði samþykktar muni fram-
kvæmdir hefjast í vor og áætlað
sé að þær taki um 2 ár.
trausti@frettabladid.is
Ráðist í 1,5 millj-
arða uppbyggingu
Verktaktar vilja reisa nýja verslunarmiðstöð og tvær tíu hæða blokkir í
hjarta Akranesbæjar. Einnig er stefnt að því að breyta Landsbankahúsinu í
40 herbergja hótel. Reiknað er með að bærinn taki jákvætt í tillögurnar.
NÝ VERSLUNARMIÐSTÖÐ Á AKRANESI
Þorvaldur Vestmann, sviðsstjóri tækni- og umhverfisviðs Akransbæjar, segir tillöguna mjög
áhugaverða og að hann hafi trú á að skipulagsyfirvöld muni taka jákvætt í hana. Björn S.
Lárusson, talsmaður framkvæmdaraðila, segir að ef tillögurnar verði samþykktar muni
framkvæmdir hefjast í vor og áætlað sé að þær taki um tvö ár.
„Efast ekki um
að 80 íbúðir
seljist enda
hefur verið
gífurleg upp-
sveifla í at-
vinnulífi bæj-
arins undan-
farin ár.“
ÖRORKULÍFEYRISÞEGAR FLOKKAÐIR EFTIR
KJÖRDÆMUM OG HLUTFALLI AF FJÖLDA.
Árið 2001 Landshlutaskipting Öryrkjar Þjóðin
Reykjavík 5,7% 48,0% 43,7%
Reykjanes 4,4% 21,1% 25,0%
Vesturland 4,4% 4,1% 4,9%
Vestfirðir 4,2% 2,2% 2,8%
Norðurl. vestra 5,2% 3,1% 3,1%
Norðurl. eystra 6,1% 10,6% 9,0%
Austurland 4,3% 3,3% 4,1%
Suðurland 5,4% 7,6% 7,4%
Meðaltal: 5,2%
Hlutfall öryrkja hæst á Norðurlandi eystra:
Mun hækka frekar
ÚTSVAR Í TOPPI Bæjaryfirvöld í
Borgarbyggð hyggjast halda
óbreyttri álagningarprósentu út-
svars á næsta ári eða 13,03%. Það
er hámark leyfilegs útsvars.
HAFNA 5.000 KRÓNA STYRK-
BEIÐNI Félagsmálanefnd Borgar-
byggðar hefur hafnað 5 þúsund
króna styrkbeiðni Félags sam- og
tvíkynhneigðra stúdenta.
FRAMKVÆMDIR Í HLÍÐARFJALLI
Framkvæmdum við Skíðastaði í
Hlíðarfjalli er að mestu lokið.
Bílastæðum hefur verið fjölgað
um nær helming og rúma nú um
500 bíla. Nýtt bílaplan hefur ver-
ið gert suðaustan við Skíðastaði
og annað stækkað til muna.
INNLENT
INNLENT