Fréttablaðið - 16.12.2002, Síða 16
16 16. desember 2002 MÁNUDAGURSKÍÐI
Á SKÍÐUM SKEMMTI ÉG MÉR...
Daniel Kandlsbauer sést hér svífa um á
snjóbretti sínu á hinum geysivinsæla
skíðastað Grindewald í Sviss.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.00 Stöð 2
Ensku mörkin
16.40 RÚV
Helgarsportið
17.50 Sýn
Ensku mörkin
18.50 Sýn
Spænsku mörkin
19.15 Keflavík
Karfa kvenna (Keflavík - KR)
19.30 Kennaraháskólinn
Karfa kvenna (ÍS - UMFN)
19.50 Sýn
Enski boltinn (Bolton - Leeds)
20.00 Njarðvík
Bikark. karla karfa
(UMFN - UMFG)
22.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
22.30 Sýn
Sportið með Olís
23.00 Sýn
Ensku mörkin
00.20 RÚV
Markaregn
01.05 Stöð 2
Ensku mörkin
Flott
kvenúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
FÓTBOLTI Lee Bowyer, leikmaður
Leeds United, gæti átt yfir höfði
sér leikbann fyrir að traðka á Ger-
ardo, leikmanni Malaga, í leik í
Evrópukeppni félagsliða í fyrra-
dag.
Bowyer braut illa á Gerardo,
sem féll við, og á sjónvarpsupp-
tökum sést hvar enski leikmaður-
inn stígur, að því er virðist vilj-
andi, á andlit Spánverjans.
Bowyer fékk aðeins að líta gula
spjaldið fyrir vikið.
Aganefnd Evrópska knatt-
spyrnusambandsins, Uefa, mun
fara yfir upptökuna og ákveða í
kjölfarið hvort gripið verði til að-
gerða. ■
Lee Bowyer,
leikmaður Leeds:
Á bann yfir
höfði sér
LEE BOWYER
Leikmaður Leeds United hefur átt erfitt
með að hemja skap sitt, bæði innan vallar
sem utan.
BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON
Skoraði fyrsta mark sitt fyrir Stoke City á
tímabilinu.
Enska 1. deildin:
Fyrsta mark
Brynjars
FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnarsson
skoraði fyrir Stoke City í 1-1 jafn-
teflisleik gegn Portsmouth í ensku
1. deildinni á laugardag. Þetta var
fyrsta mark Brynjars Björns á
tímabilinu.
Hermann Hreiðarsson lék að
vanda með liði Ipswich, sem mætti
Heiðari Helgusyni og félögum í
Watford. Ipswich vann leikinn með
fjórum mörkum gegn tveimur.
Hvorugur Íslendinganna náði að
skora en Heiðar fékk þó kjörið
tækifæri sem hann nýtti ekki.
Ívar Ingimarsson var ekki í liði
Wolves sem steinlá fyrir Coventry,
2-0.
Stoke er í þriðja neðsta sæti 1.
deildar með 16 stig eftir 23 leiki.
Ipswich er í 19. sæti, Watford í 9.
sæti og Wolves í því sjöunda. ■
Evrópukeppnin
í handbolta:
Grótta/KR
í átta liða
úrslit
HANDBOLTI Grótta/KR er komið í
átta liða úrslit áskorendakeppni
Evrópu þrátt fyrir tap gegn Ála-
borg, 30-27, í seinni leik liðanna á
laugardag. Grótta/KR vann fyrri
leikinn 23-20 og komst áfram á
fleiri mörkum skoruðum á úti-
velli. Alfreð Finnsson skoraði síð-
asta mark Gróttu/KR á lokasek-
úndunum og tryggði þeim áfram-
haldandi rétt í keppninni.
Haukar eru úr leik í Evrópu-
keppni bikarhafa eftir tap á
heimavelli, 31-26, fyrir spænska
liðinu Ademar Léon. Haukar töp-
uðu einnig fyrri leiknum, 29-21,
samanlagt 60-47. ■
HM FATLAÐRA Í SUNDI Kristín Rós
Hákonardóttir setti tvö heims-
met á heimsmeistaramóti fatl-
aðra í sundi í Argentínu sem lauk
um helgina. Kristín Rós sigraði í
200 metra fjórsundi á laugardag,
synti á tímanum 3:14,30 mínút-
um, sem er nýtt heimsmet. Hún
setti einnig heimsmet í 100 metra
baksundi á þriðjudag.
Kristín Rós vann til þrennra
gullverðlauna og einna silfur-
verðlauna á heimsmeistaramót-
inu. Um 1.100 keppendur tóku
þátt í mótinu, sem er það fjöl-
mennasta til þessa.
Kristín Rós byrjaði mótið vel.
Sem fyrr segir setti hún heims-
met í 100 metra baksundi á
þriðjudag og daginn eftir vann
hún silfurverðlaun í 100 metra
skriðsundi. Þar setti hún nýtt Ís-
landsmet með því að synda á tím-
anum 1:18,05 sekúndum. Hún
vann síðan gullverðlaun á
fimmtudag í 100 metra bringu-
sundi og til gullverðlauna í 200
metra fjórsundinu ásamt því að
setja heimsmet.
Bjarki Birgisson vann brons-
verðlaun í 100 metra bringu-
sundi. Hann komst ekki í úrslit í
200 metra fjórsundi á laugardag.
Kristín Rós segist að vissu
marki hafa átt von á góðum ár-
angri sínum. „Ég er í mjög góðri
æfingu og er að toppa á réttum
tíma. Þetta hefur allt gengið
upp,“ sagði Kristín, sem var á
rölti í miðbænum þegar Frétta-
blaðið náði tali af henni. Hún hef-
ur æft tvisvar á dag undanfarið
ár fyrir mótið og árangurinn hef-
ur verið eftir því.
Hún segir að umgjörðin á mót-
inu sé fín. „Það er mjög gott að
vera hérna, mjög þægilegt og af-
slappað. Það er gott veður, sól og
25 stiga hiti. Það er ekki slæmt,“
sagði Kristín, sem er að taka þátt
í fjórða heimsmeistaramóti sínu.
Eftir að mótinu lýkur ætlar
Kristín að taka sér smá pásu frá
sundinu og slappa af. Síðan stefn-
ir hún ótrauð á Ólympíuleika fatl-
aðra sem haldnir verða í Aþenu
eftir tvö ár.
Kristín Rós keppti í 50 metra
skriðsundi í gær og Bjarki í 50
metra flugsundi. Úrslitin voru
ekki kunn þegar blaðið fór í
prentun. ■
Kristín Rós setti
tvö heimsmet
Kristín Rós Hákonardóttir setti tvö heimsmet og vann til þrennra gull-
verðlauna á heimsmeistaramóti fatlaðra í Argentínu. Átti sjálf von á
góðum árangri. Stefnir á Ólympíuleika fatlaðra í Aþenu.
KRISTÍN RÓS
Kristín Rós Hákonardóttir hefur staðið sig með mikilli prýði á HM fatlaðra í sundi. Kristín
og Bjarki koma heim á miðvikudagsmorgun.
Evrópumótið í sundi:
Örn þriðji
SUND Örn Arnarson varð þriðji í
100 metra baksundi á Evrópumót-
inu í 25 metra laug í Þýskalandi í
gær en hann synti á 51,91 sekúndu.
Tvö Íslandsmet féllu einnig í
gær. Íslenska karlasveitin í 4x50
metra boðsundi synti á 1:32,99
mínútum og bætti Íslandsmetið
um 3,5 sekúndur. Örn Arnarson
bætti Íslandsmetið í 50 metra
skriðsundi í sama sundi, synti á
22,33 sekúndum. Auk Arnars skipa
þeir Jón Oddur Sigurðsson, Heiðar
Ingi Magnússon og Jakob Jóhann
Sveinsson íslensku sveitina.
Jakob Jóhann Sveinsson endaði
í fimmta sæti í 200 metra bringu-
sundi þegar hann synti á 2:11,19
mínútum. ■