Fréttablaðið - 16.12.2002, Blaðsíða 20
20 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
fiegar flú breg›ur flér í bæinn á bílnum er gott a› huga
a› gó›ri gistingu fyrir hann á me›an flú sinnir flínum
málum. Kolaporti› bí›ur „gistingu“ fyrir bíla á 1,33 kr.
mínútuna.
Hér er gó› gisting undir flaki á notalegum sta›.
Lægsta gjald er 80 kr. fyrir eina klukkustund og eftir fla›
borgar flú a›eins fyrir
flann tíma sem flú
notar, e›a 10 kr. fyrir
hverjar 12 mínútur.
Mána›arkort í Kolaport
bjó›ast á a›eins
5.600 kr.*)
Ód‡r gisting
fyrir bílinn flinn
Kolaport
vi› Arnarhól
*) Ef flú kaupir 6 mánu›i borgar›u a›eins fyrir 5.
Hvernig er að vera unglingur í
dag?
Auður Anna: „Það er ágætt. Stund-
um getur verið erfitt að vera ung-
lingur, eins og þegar maður lendir
í rifrildum við foreldra sína eða
vinkonur.“
Emil: „Erfitt. Maður er fátækur
námsmaður og þarf að standa und-
ir væntingum frá foreldrum.“
Sveinborg: „Það er fínt fyrir utan
þessi venjulegu vandamál sem eru
hjá unglingum, eins og foreldrana,
skólann og peningamálin.“
Þórir Gunnar: „Í rauninni er ömur-
legt að vera unglingur. Það er ekk-
ert sérstakt félagslíf; maður getur
ekkert gert nema hanga heima hjá
einhverjum vinum sínum og horfa
á spólur sem maður hefur séð
svona þrisvar sinnum.“
Hvert er ykkar álit á alhæfingu á
borð við þessa: „Unglingar í dag
hugsa aðeins um tísku, popptónlist,
vímuefni og kynlíf“?
Auður Anna: „Mér finnst nokkuð
mikið til í henni.“
Emil: „Ég held að það sé akkúrat
„pointið“ okkar.“
Sveinborg: „Mér finnst hún vera
rétt.“
Þórir Gunnar: „Allar þessar alhæf-
ingar eru náttúrlega rangar. En
það eru ábyggilega margir ung-
lingar sem hugsa bara um þetta.“
Hafa forvarnir gegn vímuefnum
og tóbaki tilætluð áhrif á ykkur?
Auður Anna: „Jáhhhh.“
Emil: „Öllum þessum auglýsingum
er ekkert sérstaklega beint ein-
göngu að okkur. Verðið er þó góð
forvörn, sígarettupakki kostar til
dæmis meira en 500 krónur.“
Sveinborg: „Mér finnst að krakkar
fái ekki nógu mikið fræðsluefni
um þetta miðað við hversu margir
lenda í dópi og byrja að reykja.“
Þórir Gunnar: „Þessar auglýsingar
hafa ekki mikil áhrif. Þegar ég var
í tíunda bekk kom fyrrverandi
dópisti í skólann með tvær gerðir
af lifrarbólgu og átti stutt eftir.
Það hafði miklu meiri áhrif.“
Eruð þið ánægð með skólann?
Auður Anna: „Nei. Mér finnst
kennslan léleg.“
Emil: „Ég var í Iðnskólanum og
hann var hörmulegur. Þar var ekk-
ert félagslíf og tímarnir voru ekki
skemmtilegir.“
Sveinborg: „Ég er bara sátt við
skólann.“
Þórir Gunnar: „Mér finnst að skól-
ar ættu ekkert að vera skemmti-
legir. En minn skóli er ágætur.“
Álítið þið að námsefnið eigi vel við
ykkur?
Auður Anna: „Nei, mér finnst
námsefnið vera of mikið, það er
endalaust eitthvað nýtt í hverju
fagi. Við höfum ekki þörf á að vita
þetta allt.“
Emil: „Ég myndi
segja að námsefn-
ið væri gott fyrir
okkar aldur. Við
ættum allavega að
ráða við þetta.“
Sveinborg: „Já.“
Þórir Gunnar: „Jú, jú, námsefnið er
ágætt.“
Hvernig var fólk á ykkar aldri fyr-
ir hundrað árum síðan?
Auður Anna: „Ég held að það hafi
miklu meira þurft að sjá fyrir sér.“
Emil: „Hundrað ár er ekki langur
tími svo ég trúi ekki að fólk hafi
breyst mikið.“
Sveinborg: „Ég held að það hafi
verið mjög leiðinlegt hjá því. Það
voru engin sérstök unglingaár;
fólk á okkar aldri fékk enga
menntun og þurfti að byrja lífið
eins og fullorðnar manneskjur á
unga aldri.“
Þórir Gunnar: „Ég held að þau hafi
bara verið tjillandi með sviða-
kjamma í hægri hendi og harðfisk
í þeirri vinstri.“
Halda unglingar ennþá til á Lækj-
artorgi?
Auður Anna: „Já, það er eitthvert
sorglegt lið sem hangir þar.“
Emil: „Ég tel að þeir sem hafi ekk-
ert betra við tímann að gera séu á
Lækjartorgi.“
Sveinborg: „Já, en þeir sem gera
það sitja þar eins og rónar allan
daginn.“
Þórir Gunnar: „Ég held að fólk sé
dreifðara í dag. Það tjillar meira í
sjoppum og leikskólum.“
Hafa kvikmyndir og auglýsingar
haft slæm áhrif á ykkur?
Auður Anna: „Ekki
á mig kannski. En
vitaskuld kemur
þetta ákveðnum
hugmyndum inn
hjá fólki.“
Emil: „Ég tel að
allar bíómyndir
hafi áhrif. Þær
hafa áhrif til
lengdar, enda þótt
maður taki ekki
sjálfur eftir því
þegar maður horf-
ir stöðugt á mynd-
ir.“
Öll þekkjum við hormónaráðvillu unglingsáranna, en
okkur hættir þó til að gleyma því hvernig það var að
vera unglingur og dæma manneskjur á þessum aldri
með armæðufullu fussi á borð við: „Unglingar í dag!
Þegar við vorum ung hvarflaði ekki að neinum að
haga sér SVONA.“ Raunin er hins vegar sú að mörg
okkar voru einmitt SVONA því unglingsárin eru
strembin fyrir marga, ósjaldan álitin flóknasta tíma-
bilið á ævinni. Auður Anna Kristjánsdóttir, Emil Jak-
obsson, Sveinborg Hafliðadóttir og Þórir Gunnar
Jónsson féllust á að svara nokkrum spurningum um
lífið og unglingatilveruna.
Auður Jónsdóttir ræðir við unglinga um blessað lífið og tilveruna tilkomumiklu:
AUÐUR ANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
„Áður fyrr fengu allir að vinna. Nú er
alltof hátt aldurstakmark.“
ÞÓRIR GUNNAR JÓNSSON
„Í rauninni er ömurlegt að
vera unglingur.“
SVEINBORG HAF-
LIÐADÓTTIR
„Ég er bara sátt við
skólann.“
EMIL JAKOBSSON
„Verðið er þó góð for-
vörn, sígarettupakki
kostar til dæmis meira
en 500 krónur.“
Unglingar ættu
að fá að vinna