Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 25
MÁNUDAGUR 16. desember 2002
OD
DI
H
F
J
09
45
74.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V421
Nýr glæsilegur skápur.
190 l kælir, 90 l frystir.
H x b x d = 175 x 60 x 64 sm.
79.900 kr. stgr.
Eldavél
HL 54024
Ný stórglæsileg eldavél.
Keramíkhelluborð, fjórar hellur,
fjölvirkur ofn, létthreinsun,
sökkhnappar, stangarhandfang.
Gæðagripur sem sómi er að.
69.900 kr. stgr.
Bakstursofn
HB 28055
Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi.
Sannkallaður gæðaofn frá Siemens.
12.900 kr. stgr.
Þráðlaus sími
Gigaset 4010 Classic
Númerabirtir. DECT/GAP-staðall.
Einstök talgæði. Siemens færir þér draumasímann.
66.900 kr. stgr.
Helluborð
ET 72554
Keramíkhelluborð með snertihnöppum.
Stílhreinn gæðagripur frá Siemens.
56.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXB 1060BY
Frábær rafeindastýrð þvottavél
á kostakjörum. 1000 sn./mín.
9.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 51B22
Kraftmikil 1400 W ryksuga,
létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling.
59.900 kr. stgr.
Uppþvottavél
SE 34234
Einstaklega hljóðlát
og sparneytin.
Fjögur þvottakerfi,
þrjú hitastig.
Umboðsmenn um land allt.
Jólatilboð!
listar hafi ótvíræð áhrif á sölu
bóka. Halldór tekur í sama streng.
„Ótrúleg undirboð á stórmörkuðum
geta verið ánægjuefni fyrir neyt-
endur til skamms tíma en bjóða
hættunni heim til langs tíma. Þetta
mun leiða til fátæklegri bókaflóru.
Útgefendur fara að leggja ofur-
kapp á svokallaða bestsellera.“
Hagkaupsmenn eru, sem áður
segir, með Brauðbók Jóa Fel sem
selst hefur í 19.000 eintaka og er
ekkert lát á sölunni. Sigríður Grön-
dal, innkaupastjóri sérvöru, segir
þess vissulega dæmi að greitt hafi
verið með bókum. „Í verðsam-
keppni verður maður að standa sig.
Auðvitað erum við að hugsa um að
viðskiptavinirnir geti gert góð
kaup.“ Sigríður vill taka skýrt fram
að Hagkaup býður viðskiptavinum
sínum allar bækur til sölu, alls um
500 titla bóka sem koma út fyrir
þessi jól. Aðrir stórmarkaðir bjóði
hins vegar aðeins söluvænlegustu
titlana. Sigríður getur ekki ímynd-
að sér annað en forleggjarar séu
ánægðir með stórmarkaðina, sem
hafa stuðlað að aukinni sölu sem
leiði til þess að bókin haldi sínu og
vel það í aukinni samkeppni við
tölvuleiki, dvd og myndbönd.
Upplagstölur
Þumalputtareglan er sú að eigi
bækur að standa undir kostnaði
þarf að selja 1.500 eintök. Þetta er
þó breytilegt og Hagkaupsmenn
þurfa til dæmis að selja umtalsvert
meira af Jóa Fel. Bókin er seld á að-
eins 1.299 en kostar mikið í fram-
leiðslu. Sigríður er ófáanleg að
segja hvað þurfi að selja mikið til
að hún standi undir kostnaði en lík-
lega er því marki náð og vel það.
Línur eru teknar að skýrast og
gera má ráð fyrir því að Jón Bald-
vin – Tilhugalíf, Röddin, Sonja og
jafnvel Ísland í aldanna rás, sem er
dýrari bók, muni seljast í um eða
yfir 10 þúsund eintökum. Og stand-
ist það sem sagt er um stöðugt
hærri sölutoppa má jafnvel búast
við enn betri sölu eða í kringum 15
þúsund eintök. Þá er hagnaður út-
gáfu og höfunda orðinn dágóður og
ekki að undra þó talsverður titring-
ur sé meðal útgefenda og höfunda
sem eru þátttakendur í jólabóka-
vertíðinni. Allar tölur eru þó af-
stæðar því auglýsingar og annar
kostnaður eru afar misjöfn milli
bóka.
Samningar milli útgefenda og
höfunda eru jafnan þannig að
höfundar fá í sinn hlut um 23 pró-
sent af útsöluverði bóka. Sé um við-
mælanda að ræða er allur gangur á
hvernig sú tala skiptist. Oft er um
að ræða helmingaskipti höfunda-
launa en fer þó eftir því hvort mik-
il heimildavinna liggur að baki hjá
höfundi. Sumir viðmælendur skrifa
sig nánast sjálfir og er þá jafnvel
talað um kranabækur. Þess eru ein-
nig dæmi að viðmælandi bókar sem
seldist vel hafi fengið konfektkassa
að launum þannig að á þessu er all-
ur gangur.
Halldór segir að mesta sala einn-
ar bókar á vertíð sem hann þekki sé
Höll minninganna eftir Ólaf Jóhann
sem kom út í fyrra – alls 17 þúsund
eintök seld. Sú bók sem hann hefur
selt mest af í gegnum tíðina sé hins
vegar Djöflaeyjan eftir Einar Kára-
son, þegar allt sé lagt saman séu
seld yfir 40 þúsund eintök. Jóhann
Páll náði dágóðum toppi í fyrra þeg-
ar hann seldi Eyðimerkurblómið í
14.500 eintökum. Auk þess hafa far-
ið rúmlega 2000 eintök í
kilju þannig að upp-
lagið slagar í 17
þúsund. „Ólafur Jó-
hann tók þetta á
endasprettinum,“
segir Jóhann Páll.
jakob@frettabladid.is
JÓHANN PÁLL
Segir sýniþörfina ráða för
hjá blaðamönnum, að skrifa
bækur sé þeirra leið til að vekja
á sér athygli.
REYNIR TRAUSTASON
Reynir telur að í blaðamennskunni læri
menn að ná því fram sem máli skiptir. „Þú
lifir og hrærist í texta dagana langa,“ segir
Reynir.
DAVÍÐ ODDSSON
Talið er að Davíð eigi eftir að láta að sér kveða á sölulistunum, þrátt fyrir misjafna dóma,
ekki síst í ljósi þess að bók hans Nokkrir dagar án Guðnýjar seldist ákaflega vel 1997.
JÓI FEL.
Brauðbók Jóa Fel hefur selst í 19.000 eintökum og er ekkert lát virðist á sölunni.