Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 27

Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 27
MÁNUDAGUR 16. desember 2002 aðstoða fyrir jólin? Rauða kross Íslands, á mánudög- um og þriðjudögum kl. 11-12 og 13-16 og þær afhentar á fimmtu- dögum og föstudögum. Í annan tíma leitar fólk til sóknarprests síns sem vísar því áfram, auk þess sem félagsstofn- anir vísa stundum fólki á Hjálpar- starfið. Þá gengur aðstoðin einnig meira út á að vinna með einstak- lingum, með ráðgjöf og jafnvel fjárhagsaðstoð, sem leita hjálpar til skemmri eða lengri tíma með það markmiði að hjálpa einstak- lingnum út úr erfiðleikunum. Hjálparstarfið er eingöngu rekið á söfnunarfé og styrkjum og framlögum frá fyrirtækjum. Hjálparstarf kirkjunnar er við Vatnsstíg 3 í Reykjavík. Hjálpræðisherinn Hjálpræðisherinn leggur sitt af mörkum til þeirra sem þarfnast aðstoðar fyrir þessi jól, að sögn Valborgar Kristjánsdóttur herkonu. Aðstoð Hjálpræðishers- ins felst í matarúthlutunum og fatagjöfum. Þeir sem leita til Hjálpræðishersins hringja og eru settir niður á lista. Reyndar skal tekið fram að hætt er að taka við beiðnum hjá Hjálpræðishernum fyrir þessi jól og úthlutað var á laugardag. Aðstoð Hjálpræðis- hersins er fjármögnuð eingöngu með því sem fólk gefur í söfnun- arbauka samtakanna, sem hafðir eru frammi víðs vegar í nokkurn tíma fyrir jól. En þótt of seint sé að sækja um aðstoð er öllum vel- komið, hver sem efni manna eru, að njóta kærleiksríkrar jólamál- tíðar og jólaballs á aðfangadags- kvöld. Hjálpræðisherinn er til húsa í Garðastræti 38. Samhjálp Samhjálp rekur súpueldhús við Hverfisgötuna árið um kring þar sem fólk getur komið og fengið sér kaffibolla, súpu og samlokur og af og til er boðið upp á heita máls- verði. Yfir hátíðarnar er boðið upp á málsverði og eru opnunartímar sem hér segir: Aðfanga- og jóladag- ur kl. 10-14, annar í jólum og gaml- ársdagur kl. 11-16 og nýársdagur kl. 11-14. Kaffistofan er annars opin kl. 10-17 virka daga og kl. 11- 16 um helgar. Að sögn Heiðars Guðnasonar forstöðumanns veitir Samhjálp ekki almenna aðstoð fyrir jólin en vísar þess í stað fólki áfram á hvítasunnukirkju Fíladelfíu. Hins vegar sér Dorkas, kvenfélag Sam- hjálpar, um að pakka inn gjöfum frá ýmsum fyrirtækjum sem síðan er gefnar skjólstæðingum samtak- anna og auk þess sendar til fanga í fangelsum landsins. Samhjálp er á Hverfisgötu 42- 44. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Að sögn Varðar Traustasonar, for- stöðumanns Hvítasunnukirkju Fíladelfíu, veitir söfnuðurinn fyrir hver jól tvenns konar aðstoð til þeirra sem minna mega sín. Ann- ars vegar eru það matarpakkar og jólaöl. Hins vegar er um að ræða gjafakort í verslanir Bónuss og Nettó. Matarpakkarnir og jólaölið eru gjafir frá Sláturfélagi Suður- lands og Vífilfelli. Hins vegar aflar söfnuðurinn sjálfur fjár fyrir gjafakortum með tónleikahaldi. Styrktartónleikar þessa árs fóru fram síðastliðið miðvikudagskvöld og var uppselt á báða tónleikana sem haldnir voru. Þeir sem vilja leita aðstoðar hjá Hvítasunnukirkj- unni Fíladelfíu geta hringt á skrif- stofu safnaðarins. Fíladelfía er í Hátúni 2. ■ Í 100 ár hefur FESTINA haft að kjörorði gæði fyrir gott verð. Stál m/ vikud. og mánaðard. með stálfesti kr. 19.400,- með ól kr. 14.500,- Stál herraúr 100 m vatnsvarið og öryggislás Jólatilboð Verð aðeins kr. 9.900,- Gull-úrið Axel Eiríksson úrsmíðameistari Álfabakka 16 Sími 587 4100 MJÓDDINNI 1902 – 2002 27

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.