Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 28
28 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
Betur innrætt-
ur en ég hélt
Ég á mér uppáhaldsjólaskrautsem er forláta hús sem amma
mín gaf mér,“ segir Sigurður
Kristinsson tónlistarmaður að-
spurður um jólaskrautið sem
honum er kærast. „Þetta er svona
gamall burstabær, allur útskor-
inn að innan, básar og eldstó, og
hann er trúlega smíðaður 1808.
Sigurður segir bæinn þegar hafa
verið ævagamlan þegar amma
hans eignaðist hann. „Svo var
sett ljós í hann árið 1950 og ég
hef haldið þessum bæ við og er
einmitt nýbúinn að stilla honum
upp fyrir stelpurnar mínar.“
Sigurður er á fullu í jólaundir-
búningi og segir að hann og eigin-
konan byrji að skreyta strax 1.
desember. „Við settum upp serí-
ur á fyrsta degi mánaðarins og
erum í óða önn að gera jólalegt
fyrir stelpurnar okkar, sem eru
tveggja og fjögurra ára og ein al-
veg ný, sem fæddist 15. nóvem-
ber.
Annars var Sigurður að gefa út
diskinn Jólaplötu, sem hann tók
upp í barnaherberginu heima hjá
sér. „Ég hef lengi gengið með það
í maganum að gera jólaplötu og
fara illa með jólalögin. Þegar til
kom var ég miklu betur innrættur
en ég hélt og mér tókst ekkert að
vera vondur við jólalögin,“ segir
Sigurður að lokum. ■
Yfirkokkurinn á Litla-Hrauni
búinn að smíða hátíðarmatseðil:
Óvíst með
möndlugrautinn
JÓL „Það hefur alltaf verið vask-
lega lagt upp úr jólamatnum hér.
Ég er að verða búinn að smíða
matseðilinn í ár,“ segir Pétur
Andrésson, yfirkokkur á Litla-
Hrauni. Pétur hefur eldað ofan í
fanga og starfsfólk Litla-Hrauns í
tvö ár og kann vel við starfið.
„Á aðfangadag hef ég þennan
hefðbundna hamborgarhrygg og í
desert fá þeir ístertur. Á jóladag
verður boðið upp á kakó og rjóma-
tertur um daginn og um kvöldið er
hægt að velja á milli lamba- og
hangikjöts,“ segir Pétur. Í fyrra
var möndlugrautur með tilheyr-
andi verðlaunum en hann hefur
enn ekki ákveðið hvort grauturinn
góði verði á boðstólum í ár.
Í hádeginu á öðrum degi jóla
býður Pétur upp á kjúkling og
franskar en um kvöldið verður
kabarettborð, þar sem hægt verð-
ur að velja milli tveggja kjötteg-
unda auk meðlætis.
Pétur býður einnig upp á
smákökur. Hann segir fangana þó
ekki fá að koma inn í eldhúsið
þannig að áhugasamir geta ekki
tekið þátt í smákökugerðinni. ■
SIGURÐUR KRISTINSSON MEÐ DÆTURNAR
Eignaðist jólahúsið sitt þegar hann var smá patti og hefur varðveitt það vel síðan.
Húsið var smíðað árið 1808.
LITLA-HRAUN
Tveir kokkar vinna í eldhúsinu á Litla-Hrauni auk þess sem þeir hafa nokkrar hjálparhellur.
Yfirkokkurinn segist eyða hátíðunum að mestu leyti þar.
Jólaskrautið
mitt
Jólahúsið hans Sigurðar
er orðið meira en aldar
gamalt, en hann eignaðist
það sem barn.