Fréttablaðið - 16.12.2002, Qupperneq 30
Nú fer að líða að því að lands-menn flykkist í gróðrarstöðv-
ar og skógræktarlönd til að kaupa
sér jólatré. Enn sem áður er úr
vöndu að ráða þegar kemur að því
að velja rétta tréð fyrir stofuna
enda að mörgu að gæta. Í þessu
sem öðru reynast Íslendingar
ákaflega fastheldnir. „Þetta er
ákaflega hefðbundinn markaður.
Fjölskyldur koma ár eftir ár að
kaupa jólatré og gera úr því
ákveðna athöfn,“ segir Kristinn
Einarsson, framkvæmdastjóri
Blómavals. „Normannsþinurinn
er alltaf langvinsælastur hjá okk-
ur enda er hann dökkgrænn og
fallegur og heldur barrinu mjög
vel. Það er líka alltaf ákveðinn
hópur sem vill furu en barrheldn-
in virðist vera það sem skiptir
mestu máli hjá fólki.“
Innlend jólatré hafa átt undir
högg að sækja enda þykja þau
ekki halda sér jafn vel og nor-
mannsþinurinn. Rauðgreni og
stafafura eru íslensk barrtré sem
vaxa hægt í harðbýlu landi og
verða því oft mjög þétt og falleg.
Ókosturinn er aftur sá að þau fella
barrið hratt ef ekki er reynt að
halda í þeim lífi með einhverju
móti. Því er það svo að aðeins um
25% seldra jólatrjáa hér á landi
eru innlend tré en afgangurinn
innfluttur frá Danmörku. Skóg-
rækt ríkisins leggur áherslu á að
bæta markaðshlutdeild íslensku
trjánna og bendir á að þau séu
umhverfisvæn og skapi atvinnu á
landsbyggðinni. Barrheldnina má
enn fremur auka til muna með
réttri meðhöndlun.
Lítil breyting hefur verið á lög-
un jólatrjánna frá ári til árs og
virðist sem þessi markaður láti
tískusveiflur alveg framhjá sér
fara. Kristinn segir að fólk kjósi
yfirleitt þétt tré og breið tré.
„Fólk vill bosmamikil og íturvax-
in tré og þau mega alls ekki vera
gisin.“ Meðalhæðin á þeim trjám
sem Blómaval selur er um 175 cm.
Þó eru dæmi þess að fólki kaupi
allt upp í 3 metra há tré til að hafa
í stofum þar sem hátt er til lofts
en þá eru þau oft hlutfallslega
minni um sig og gisnari.
Kristinn hefur tekið eftir því
að sala á jólatrjám virðist fara
fyrr af stað nú en undanfarin ár.
„Í fyrra seldust jólatrén upp og ég
held að fólk sé hreinlega hrætt um
að þau klárist aftur núna,“ segir
Kristinn, sem efast um að lands-
menn séu farnir að setja trén upp
fyrr en áður hefur tíðkast.
Sala á gervijólatrjám hefur
verið nokkuð jöfn undanfarin ár
og áætlar Kristinn að um helm-
ingur þeirra sem eru með jólatré
á annað borð séu með slík tré.
„Eftir því sem fólk eldist verður
algengara að það fari yfir í gervi-
trén.“ Kristinn viðurkennir að lít-
il breyting sé á útliti gervitrjánna
frá ári til árs enda Íslendingar
íhaldsamir enn sem fyrr. ■
30
Dreifing: Rún heildverslun, sími: 568 0656
Söluaðilar: Herra Hafnarfjörður • 66°N • Intersport • Guðsteinn Eyjólfsson
Íslenskir Karlmenn • Herrahúsið • Ellingsen • Bjarg, Akranesi • Hjá Siggu Þrastar, Ísafirði • Olíufélag
útvegsmanna, Ísafirði • JMJ, Akureyri • Joes Akyreyri • Lækurinn, Neskaupstað • Lónið, Höfn •
Verslunin 66, Vestmannaeyjum • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • Intersport, Selfossi
Borðalmanak Múlalundar er
lausnin fyrir þá sem vilja hafa góða
yfirsýn yfir verkefni mánaðarins.
Þau fást í helstu ritfangaverslunum
landsins og söludeild Múlalundar.
Borðmottan undir almanakið
myndar ramma og gefur fínleikann.
Við hjá Múlalundi getum merkt
borðmottuna heiti fyrirtækis eða
nafni einstaklings.
RÖÐ OG REGLA
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819 Veffang: www.mulalundur.is
Alla daga við hendina!
Jólatré óháð tískusveiflum
Á jólatrésmörkuðum landsins eru á boðstólum barrtré af ýmsum gerðum.
Þessi tré búa yfir mismunandi eiginleikum en Íslendingar virðast vera
nokkuð sammála um hvað vegur þyngst.
JÓLATRÉ
Á jólatrésmörkuðum er hægt að kaupa
innlend og erlend jólatré af ýmsum teg-
undum en skógræktarfélög víða um land
bjóða fólki að sækja sín eigin tré í valda
skóga.
Egill Ólafsson söngvari:
Önd að
hætti danskra
Við borðum alltaf önd, það eralveg ófrávíkjanlegt,“ segir
Egill Ólafsson tónlistarmaður.
„Þetta er siður frá ömmu henn-
ar Tinnu, sem var dönsk.“ Að-
spurður segir Egill Tinnu vera
expertinn í eldamennskunni en
veit þó að í öndinni er fylling,
gjarnan með engifer. Þetta rím-
ar svo ágætlega við mína
jólasiði sem voru líka danskir.
Móðir mín var í Danmörku og
tók með sér heim danska matar-
gerð.“ Hann segir danska siðinn
að borða möndlugraut einnig
hafðan í heiðri og oft hafi verið
hart barist um möndluna. „Það
var nú reyndar meiri handa-
gangur í öskjunni þegar margir
voru til borðs, nú eru synir okk-
ar í útlöndum þannig að færri
eru um hituna.“ ■
JÓLAMATURINN
minn
EGILL ÓLAFSSON
„Móðir mín var í Danmörku og tók með sér heim danska matargerð.“