Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 31
MÁNUDAGUR 16. desember 2002
Miele - kostirnir
eru ótvíræðir
Miele ryksugurnar eru hannaðar og prófaðar
til að endast venjulegu heimili í 20 ár.
Þær hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir afköst,
formfegurð og þægindi í notkun.
Þær eru búnar 1800W mótor, lofthreinsisíum
og mjúkum parkethjólum.
Ríkulegur staðalbúnaður og mikið úrval aukahluta skapar
hina fullkomnu ryksugu sérhvers heimilis.
Öflugt vopn í baráttunni við
ofnæmiseinkenni af völdum
rykagna á heimilinu.
Miele HEPA-loftsían:
M E I R A E N B A R A R Y K S U G A
Ármúla 13a, sími 540 5000
frjalsi@frjalsi.is
Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur flutt
höfuðstöðvar sínar úr Sóltúni 26 í
Ármúla 13a. Við tökum því á móti
viðskiptavinum okkar á nýjum stað
frá og með deginum í dag.
Sóltún 26
Ármúli 13a
Við erum
flutt
A
B
X
/
S
ÍA
9
02
17
64
Blaðamaður var svo ljón-heppinn að rekast á Stekkj-
arstaur þar sem hann var ný-
kominn af fjalli í byggð og tókst
að króa hann af í smá spjall. Að-
spurður hver væru eftirminni-
legustu jólin hans sagði hann
fyrst humm og ha og hugsaði
þangað til hann varð eldrauður
framan. „Ég er náttúrulega bú-
inn að vera á ferli um jólin í 272
ár, svo það er af mörgu að taka.
En það var sko svolítið vand-
ræðalegt þegar ég mætti á vit-
laust jólaball. Við höfðum
nefnilega verið pantaðir við
Giljagaur til að dansa með
krökkunum á jólaballi hjá Odd-
fellow. Svo kom í ljós að Odd-
fellow er á mörgum stöðum og
af því við erum hræðilegir
klaufar að tala í síma tókst okk-
ur ekki að fá almennilegar upp-
lýsingar,“ segir Stekkjarstaur,
sem arkaði með Giljagaur suð-
ur í Hafnarfjörð þar sem þeir
fundu loks hús Oddfellow-
manna í bænum . „Við urðum
náttúrulega svakalega glaðir og
hoppuðum strax í dansinn með
krökkunum. En við vorum ekki
búnir að fara nema sextán
hringi í kringum jólatréð þegar
Gluggagægir og Hurðaskellir
skunduðu inn á ballið og sögðu
okkur að við hlytum að vera á
kolvitlausu jólaballi. Þeir hefðu
verið pantaðir í Hafnarfjörð-
inn.“ Stekkjarstaur roðnar
pínulítið þegar hann rifjar
upp þessa sögu. „Þetta
kemur til af því við erum
svo lélegir að hringja og
svona, en sem betur fór
fundum við út hvar við
áttum að vera og komum
þangað á síðustu stundu.
Þetta varð svo barasta al-
veg skelfilega skemmtilegt
jólaball.“
Stekkjarstaur segist pínulít-
ið spældur af því það er enginn
snjór, en hann segist ánægður
með krakkana og foreldra þeir-
ra. „Mér sýnist að mömmurnar
og pabbarnir gefi sér góðan
tíma til að vera með börnunum
sínum og ég held svei mér þá
að allir séu bara afslappaðri
núna en fyrir nokkrum árum,“
segir Stekkjarstaur, en má svo
ekki vera að því að spjalla
meira því hann þarf að fara að
æfa nýjustu danssporin fyrir
jólaböllin. ■
STEKKJARSTAUR
Er ofsalega glaður að vera kominn til
byggða og hlakkar til að hitta fullt
af frábærum krökkum um jólin.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga
og 10-15 laugardaga.
Pelsar frá 12.900
Mokkajakkar og kápur
Tilboð á vendipelsum
– áður kr. 24.900
– nú 12.500
Hattar, húfur og
kanínuskinn kr 2.900
Eftirminnileg
jól
Stekkjarstaur:
Kann illa á síma
og fór á kolvit-
laust jólaball