Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 34
34 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
kl. 4LIKE MIKE kl. 4 og 6
Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 10.50
Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.10
kl. 5.50, 8 og 10.05POSSESSION
SANTA CLAUSE kl. 5.55, 8 og 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5 og 8
THE TUXEDO kl. 8 VIT474 SWEET HOME ALABAMA 4 og 6
VIT
461
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 4 VIT429
SANTA CLAUS kl. 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485
CHANGING LANES kl. 10.10 VIT479
Sýnd kl. 6 og 9.15 VIT 469
kl. 10.05DAS EXPERIMENT
kl. 5.50 og 8HAFIÐ
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9.15 VIT 468 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 VIT 487
MASTER OF DISGUISE
FRÉTTIR AF FÓLKI
Búið er að bóka rokkhljómsveitinaMetallica á Hróarskelduhátíðina
í sumar. Búist er við nýrri plötu frá
sveitinni snemma á næsta ári.
Nokkrar sveitir hafa þegar boðað
komu sína og má þar nefna Iron
Maiden og Junkie XL. Búast má við
því að stórnöfnin bætist við dag-
skrána alveg fram að hátíðarhöldun-
um, sem verða frá 26.-29. júní þetta
árið. Miðasala er hafin á
www.exit.is.
Leikarinn Nick Nolte hefur lýstsig sekan um að hafa verið undir
stýri undir áhrifum eiturlyfja. Fyrir
vikið dæmdi dóm-
arinn hann í þrigg-
ja ára skilorðsbund-
ið fangelsi. Honum
var einnig skipað
að fara í 90 daga af-
vötnun. Nolte var
handtekinn þann
11. september á
þessu ári eftir að
lögreglan sá til hans þar sem hann
sveigði inn á öfugan vegarhelming
og keyrði um stund á móti umferð.
Lyfið sem Nolte viðurkenndi að hafa
tekið inn er kallað GHB. Því er
blandað í drykki. Of stór skammtur
þess getur leitt til þess að neytand-
inn missi meðvitund. Þess vegna
hefur það verið algengt vopn
nauðgara á skemmtistöðum.
Framleiðslufyrirtæki leikaransNicolas Cage ákvað að ná laga-
sáttum við sjónvarpsþáttahöfund
sem kærði það fyrir ritstuld. Maður-
inn hélt því fram að höfundur kvik-
myndahandrits myndarinnar
„Sonny“, sem er leikstjórnar-
frumraun Cage, hafi stolið af sér
hugmyndinni. Höfundurinn hafði
verið nemi hjá sjónvarpsþáttahöf-
undinum á níunda áratuginum og
gat fyrrum kennarinn borið fram
ýmsar sannanir þess að fyrrum
nemandi sinn hefði stolið hugmynd-
inni. Hann náði að minnsta kosti að
fullvissa framleiðslufyrirtæki Cage
og því var brugðið á það ráð að
borga manninum væna fjárupphæð.
TÓNLIST Þrátt fyrir að hafa alist upp
í tilveru fullri af tónum var það
aldrei efst á stefnuskrá Sigríðar
Eyþórsdóttur að gerast tónlistar-
maður. Það er ekki nóg með að
mamma hennar og pabbi hafi ver-
ið virkir einstaklingar í tónlistar-
lífi klakans síðustu tvo áratugi því
rætur liggja lengra en það. Afi
stúlkunnar var Jón Múli Árnason
og móðurbróðir hennar er tónlist-
armaðurinn KK.
Þrátt fyrir áralanga tónlistar-
hefð innan fjölskyldunnar segist
hún ekki heldur finna fyrir neinni
pressu. „Frekar andstæðan. Þau
hafa beðið mig um að íhuga það
vel hvort ég vilji fara út í þennan
pakka,“ segir Sigríður og þakkar
fyrir þau heilræði foreldra sinna
að varast það slæma innan um allt
það góða í tónlistarbransanum.
Sigríður fékk tónlistarhæfi-
leika sína í vöggugjöf. Þeir komu
fram þegar hún var níu mánaða
gömul þegar hún hóf að raula með
spiladós sem hún átti, löngu áður
en hún byrjaði að tala. „Ég lærði á
píanó lengi en uppgötvaði ekki að
ég væri söngkona fyrr en ég tók
þátt í söngvarakeppni í Iðnskólan-
um sextán ára. Þá varð ég í öðru
sæti og fór að hugsa um hvort ég
ætti að leggja þetta fyrir mig.“
Árið eftir það ævintýri fór
hana að langa í hljómsveit og aug-
lýsti einfaldlega í blaðinu eftir að-
ild í eina slíka. Bassaleikarinn
Jökull Jörgensen hafði samband
og fljótlega bættust þeir Birgir
Ólafsson, Ragnar Örn Emilsson og
Oddur Sigurbjörnsson í hópinn.
Saman hafa þau starfað undir
nafninu Santiago í þrjú ár þrátt
fyrir að hafa látið lítið á sér bera
fram að þessu.
Frumraun sveitarinnar, breið-
skífan „Girl“, er nú komin í búðir
og fékk hún í kjölfarið tilnefningu
til Íslensku tónlistarverðlaunanna í
flokknum „bjartasta vonin“. Þrátt
fyrir að sveitin hafi verið tilbúin í
plötugerð í nokkurn tíma kom sú
hugmynd upp óvænt í haust. „Við
vorum að spila á Gauknum og Jón
Skuggi sá um hljóðið. Eftir tónleik-
ana ákvað hann að gefa okkur út og
við vorum farin að taka upp í hljóð-
verinu hans viku seinna,“ segir
Sigríður að lokum. Hún hefur þar
með, 21 árs gömul, hafið sinn eigin
kafla í tónlistarsögu fjölskyldu
sinnar.
biggi@frettabladid.is
SIGRÍÐUR ÚR SANTIAGO
Sigríður eignaðist son í apríl. Hún segir það ganga vel að samræma móðurhlutverkið
tónlistarsköpun sinni. „Ég er náttúrulega dóttir tveggja tónlistarmanna og á rosalega
góða fjölskyldu sem hjálpar mér mikið.“ Og greinilega ekki bara í fjölskyldulífinu því
systir hennar og Ellen Kristjánsdóttir mamma hennar syngja bakraddir á plötunni.
Eyþór Gunnarsson pabbi hennar leikur einnig á orgel í nokkrum lögum.
Söng áður en
hún lærði að tala
Ég hef átt í ástar- og haturssam-bandi við rokkhljómsveitina
Pearl Jam alveg frá því að fyrsta
plata „Ten“ kom út árið ‘91. Þá var
ég fimmtán ára nýbylgjuaðdáandi
og gat aldrei almennilega gert upp
minn hug hvað mér ætti að finnast
um þessa sveit. Fyrir mér stóð
hún einhvern veginn alltaf föst í
skugga Nirvana auk þess sem mér
fannst söngstíll Eddie Vedder til-
gerðarlegur og leiðinlegur. Vissu-
lega góður, en bara leiðinlegur.
Ég hef þó öðlast aukna virð-
ingu fyrir Pearl Jam og Vedder í
gegnum árin. Sérstaklega þar sem
þeir hafa náð að þróa stíl sinn
áfram án þess að missa einkenni
sín. Í dag get ég svo nefnt fjölda
laga sem mér finnst bara nokkuð
góð.
Á nýju plötunni „Riot Act“ kafa
þeir svo enn dýpra í bandarískar
rætur sínar. Þeir eru örlítið að
mýkjast á fertugsaldrinum og það
fer þeim vel. Nokkur lög á plöt-
unni minna örlítið á The Band og
Bruce Springsteen. Annars
hljómar sveitin bara eins og Pearl
Jam. Vedder virðist vera hættur
egóstælum í raddbeitingu og það
fer honum mun betur.
Uppáhalds lög voru „Can’t
Keep“, „I Am Mine“ og besta lag
plötunnar „Thumbing My Way“.
Vel heppnuð plata hjá Pearl
Jam, sú besta síðan „Vitalogy“
kom út.
Birgir Örn Steinarsson
Bragðgóð
perlusulta
PEARL JAM: Riot Act
TÓNLIST
Lagið „Neon Lights“ með Santiago hefur ómað ótt og títt á Rás 2 síðustu vikur.
Söngkona sveitarinnar er Sigríður Eyþórsdóttir. Hún er dóttir Ellenar Kristjáns-
dóttir söngkonu og Eyþórs Gunnarssonar hljómborðsleikara.
KVIKMYNDIR Leikkonan Nicole Kidm-
an er orðuð við hlutverk í næstu
mynd ástralska leikstjórans Baz
Luhrmann. Hún mun vera í miklu
uppáhaldi hjá leikstjóranum eftir
að þau unnu saman að gerð „Moul-
in Rouge!“
Myndin fjallar um ævi Alexand-
ers mikla og hefur leikarinn Leon-
ardo DiCaprio tekið að sér aðalhlut-
verkið. Kidman hefur lýst yfir
áhuga sínum að leika móður hans,
Olympiu, í myndinni.
Samkvæmt fréttavefnum
hollywoodreporter.com mun per-
sóna Kidman eldast um tugi ára í
gegnum myndina. Myndin mun
fylgja öllu æviskeiði Alexanders,
frá blautu barnsbeini þar til hann
vinnur lönd fyrir Grikki.
Samningsviðræður við leikkon-
una munu hefjast snemma á næsta
ári og á hún að vera full áhuga.
DiCaprio hefur áður unnið með
Luhrmann en hann fór með aðal-
hlutverkið í mynd hans „Romeo +
Juliet“ árið 1996. ■
Ný mynd Baz Luhrmann:
Mun Kidman leika
móður DiCaprio?
NICOLE KIDMAN
Svo gæti farið að Kidman komi til með að
leika eitt aðalhlutverkanna í næstu mynd
Baz Luhrmann.
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is