Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 36
36 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
TÓNLIST Aðdáendur bresku sveitar-
innar Stereolab senda nú inn
kveðjur á heimasíðu sveitarinnar
til þess að minnast söngkonunnar
og gítarleikarans Mary Hansen
sem lést í hjólreiðaslysi á mánu-
dag.
Á síðunni, www.ster-
eolab.co.uk, má m.a. sjá kveðju
frá íslenskum aðdáanda, Óskari
Einarssyni. Hann segir m.a.; „Ég
var á tónleikum Stereolab í
Reykjavík þann 30. október. Ég er
afar sorgmæddur, en á sama tíma
þakklátur fyrir að hafa séð eina af
síðustu tónleikum Mary. Ég mun
aldrei gleyma þessum tónleikum.
Dauði Mary er á meðal sorglegri
atburða rokksins síðustu ára.“
Kveðja hans þótti það hjart-
næm að hún var birt á vef breska
tónlistarritsins NME. Tónleikar
Stereolab hér á landi voru þeir
síðustu þar sem Mary lék með
sveitinni. Hún var 36 ára og hafði
verið liðsmaður í sveitinni í tíu ár.
Jarðaför hennar fer fram í
Maryborough í Queensland í Ástr-
alíu á föstudaginn næsta, þar sem
hún var fædd og uppalin. ■
TÓNLIST Bandaríska hljómsveitin
R.E.M. hyggur á tónleikaferða-
lag á ný eftir fjögurra ára hlé.
Ferðalagið hefst á Glastonbury-
hátíðinni þann 27. júní og liggur
síðan um Belgíu, Þýskaland,
Danmörk, Sviss, Austurríki, Pól-
land, Bretland, Frakkland og
Ítalíu. Eftir Evróputúrinn munu
þeir spila í Bandaríkjunum.
„Við erum búnir að vera lok-
aðir inni í hljóðveri í lengri tíma
og okkur hlakkar til að sjá um-
heiminn á ný,“ sagði Michael
Stipe, söngvari sveitarinnar.
„Þetta er fyrsta alvöru tónleika-
ferðalagið okkar síðan 1999.“
Sveitin hélt nokkra litla tónleika
í fyrra eftir útgáfu plötunnar
„Reveal“.
R.E.M. hefur verið ein vin-
sælasta hljómsveit heims undan-
farin ár. Fyrsta plata hennar
heitir „Murmur“ og kom út árið
1983. Meðal vinsælustu laga
sveitarinnar eru „Everybody
Hurts,“ „Man on the Moon“ og
„The One I Love.“ ■
FÓLK „Það er mjög fínt að búa á
Höfn en það mætti vera meira
um að vera um helgar,“ segja vin-
konurnar Valdís Ósk Sigurðar-
dóttir og Jóhanna Íris Ingólfs-
dóttir, sem báðar eru uppaldar á
Höfn í Hornafirði. Þær segja að
unglingar séu almennt sáttir við
staðinn sinn en helst vanti að
fjölga unglingaböllum.
„Við stundum íþróttir en þess í
milli höngum við bara. Það vant-
ar eitthvað hér fyrir unglinga um
helgar og þá helst böll. Okkur
fyndist ágætt að fá hingað hljóm-
sveitir úr Reykjavík en hljóm-
sveitin Parket dugir svo sem
ágætlega. Strákarnir hérna á
Höfn eru sætir en þeir eru fleiri í
Reykjavík,“ segir þær stöllur og
skellihlæja.
Jóhanna Íris segist vera
ákveðin í að búa á Höfn í framtíð-
inni. „Ég ætla að læra sjúkra-
þjálfun og setjast að hérna. Þetta
er draumastaður til að búa á,“
segir hún en Valdís Ósk segist
eiga eftir að hugsa það mál betur
hvort hún ætli að setjast að ann-
ars staðar. ■
Unglingar sáttir á Höfn í Hornafirði:
Sætari strákar
á Höfn
VINKONUR Á HÖFN
Valdís Ósk Sigurðardóttir og Jóhanna Íris Ingólfsdóttir eru 15 ára unglingsstúlkur á
Höfn í Hornafirði. Þær eru ánægðar með staðinn en vilja að meira verði gert fyrir
unglinga um helgar.
Aðdáendur
Stereolab syrgja:
Íslensk
kveðja á
NME
STEREOLAB
Stereolab var við það að byrja á nýrri plötu
en liðsmenn sveitarinnar hafa ekkert tjáð
sig um framtíð hennar.
R.E.M. á leið í tónleikaferðalag:
Hlakkar
til að sjá
umheiminn
R.E.M.
Á næsta ári kemur út
plata með vinsælustu
lögum sveitarinnar.
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is