Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 44
44 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
Allir svo dæma-
laust glaðir
Jólasveinar ganga um gólf með...hljómar þegar inn í Kringluna
er komið. Lítil börn og foreldrar
þeirra taka undir og allir skemmta
sér. Alls staðar er fólk sem röltir
um og skoðar í glugga og allir virð-
ast svo dæmalaust glaðir. Enda að-
eins tíu dagar til jóla og ekki
seinna vænna að hefja innkaupin.
„Verslunin hefur gengið alveg
ótrúlega vel, mun betur en við átt-
um von á,“ segir Una Gunnarsdótt-
ir, verslunareigandi í „Borð fyrir
tvo“. Hún segir að reynslan sýni að
í hönd fari aðalsölutíminn og því
sé ekki vafi á að salan sé meiri en
mörg undanfarin ár. Í sama streng
taka afgreiðslustúlkurnar í Kello
en þar hefur verið mikið að gera.
Hjón með tvö börn eru að velta
fyrir sér innkaupum og snáðinn
þeirra er yfir sig spenntur í öllum
mannfjöldanum. „Við reynum ekki
að kaupa gjafir þegar börnin eru
með okkur. Hér erum við bara að
sýna okkur og sjá aðra. Börnin
hafa líka svo gaman af að sjá alla
jólasveinana og fylgjast með öll-
um þeim fígúrum sem hér eru á
ferð,“ segir móðirin, Salóme Birg-
isdóttir. Þau segjast þurfa að
kaupa gjafir fyrir minnst 30
manns en margar þeirra þurfi ekki
að vera dýrar.
Í Pennanum er Bryndís Schram
að kaupa fyllingar í penna. „Nei,
ég ætla ekki að gefa neinum þetta.
Ég kom bara við til að ná í Jón sem
er hér að árita og mundi þá eftir að
mig vantaði fyllingu í Lamy-penn-
ann minn.“
Jón er önnum kafinn að árita
bók sína. „Ég er nú ekki orðinn
handlama enn. Frægust var ferð
mín til Ísafjarðar til að árita bæk-
ur sem löngu voru uppseldar, en
það var í lagi því ég skrifaði
sendibréf í staðinn. Hann vill ekki
viðurkenna að hafa átt von á svo
mikilli sölu. „Nei, ég var óvinsæl-
asti stjórnmálamaður þjóðarinnar
í áratug. Af hverju er bókin svona
vinsæl? Ætli skýringuna megi
ekki finna í því að fjarlægðin geri
fjöllin blá og mennina mikla.“ Jón
bætir við að það sé ekki ólíklegt
að vinunum eigi eitthvað eftir að
fækka með síðari bindinu. „Menn
hafa verið að spá því,“ segir Jón
kíminn um leið hann snýr sér að
því að árita næstu bók fyrir eldri
dömu. ■
BRYNDÍS KEYPTI FYLLINGU
Í PENNA...
Finnst leitt að yfirgefa landið
svona skömmu fyrir jól.
8 DAGAR TIL JÓLA
Pondus eftir Frode Øverli
Á BEKKNUM!
JÆJA... MARGIR
GÓÐIR LEIKMENN
ÞURFA AÐ SITJA Á
BEKKNUM...
BARA EKKI Á
ÞESSUM BEKK!
Laugavegur • Kringlan • Smáralind • Hafnarfjörður • Keflavík • Akureyri • Húsavík • Mosfellsbær
frá kr. 98-1.998,-
Mikið úrval af leikföngum og gjafavöru
EI
N
N
, T
VE
IR
O
G
Þ
R
ÍR
2
42
.0
17
Höfum opnað á nýjum og betri stað í Smáralind!
Glæsileg
vasaúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Það er mannfjöldi í Kringlunni, alls kyns fígúrur og jólasveinar á
hverju strái. Jón Baldvin áritar bók sína og litlir guttar kunna sér ekki
læti. Foreldrar vagga sér í takt við tónlistina og þúsundkallarnir fljúga.
...MEÐAN JÓN BALDVIN
ÁRITAÐI BÓK SÍNA
Ekki orðinn handlama enn.
GUNNAR EYMARSSON OG
SALÓME BIRGISDÓTTIR ÁSAMT ÖLDU
KRISTÍNU OG HERMANNI KARLI
Þau skemmtu sér vel í Kringlunni en
leggja ekki í að versla mikið þegar börnin
eru með í för.
Sá fimmti,
Veggjaníður
Þá er fimmti jólasveinninn kom-inn til byggða og gefur hinum
alræmdu veggjakroturum ekkert
eftir í vandalismanum.
Sá fimmti, Veggjaníður,
er veruleikafirrtur.
Yngstur af öllum sveinum
og oftast illa girtur.
Hann spreyjar alla fleti
með speki sinni og visku.
Trúir með skemmdaverkum
tolli hann í tísku.
Eftir Ragnar Eyþórsson (með fullri
virðingu fyrir Jóhannesi úr Kötlum)
JÓLASVEINAR 2002
Nú er aðeins rétt rúm vika tiljóla og sjálfsagt margir farn-
ir að sjá fram á að ná ekki að
ljúka öllum verkum í tæka tíð. Í
dag er því góð hugmynd að fara
yfir listann og forgangsraða því
sem á honum er. Það borgar sig
þó alltaf að halda ró sinni og gefa
sér tíma til að slaka á og njóta
lífsins. Þeir sem eru að hugsa um
að fara nýjar leiðir hvað varðar
jólamatinn geta notað kvöldið til
að glugga í matreiðslubækur í
leit að ferskum hugmyndum og
góðum ráðum. ■
TEIKN
IN
G
: IN
G
I SÖ
LVI AR
N
AR
SO
N