Fréttablaðið - 16.12.2002, Page 46
46 16. desember 2002 MÁNUDAGUR
VIKUNESTI
Sjáið Hlemmeftir Ólaf
Sveinsson. Ein-
hver magnaðasta
filma síðari ára.
Sérstaklega hljóð-
ið. Rónarnir ræsk-
ja sig í steríó.
Farið svo sjálf niður á Hlemm.Tyllið ykkur niður og fáið
framhaldið beint í æð. Veitingar á
staðnum.
Svo er það James Bond. Ágæturmeð millistærð af poppi.
Pierce Brosnan er þó orðinn stirð-
ur og tekst ekki að leyna því.
Hann hleypur eins og kerling.
Þarf að skipta honum út næst.
Sorrí.
Reynið svopeacan-vínar-
brauðin á Kaffi
Roma á Rauðarár-
stíg. Ótrúlega sæt
og góð. Andhverfa
lífsins á Hlemmi.
Örlögin ráku pólska
sveitastrákinn til Íslands
Szymon Kuran fiðluleikari á afmæli í dag. Hann segir örlögin hafa
rekið sig til Íslands.
47 ÁRA Szymon Kuran tónlistar-
maður er 47 ára í dag og í tilefni
þess ætlar hann að halda lítið boð
fyrir nánustu vini sína. „Ég
myndi ekki kalla þetta veislu.
Þetta verður smástund með nán-
ustu vinum mínum,“ segir fiðlu-
leikarinn. Szymon segist vera
mikið afmælisbarn þótt hann
haldi ekki stórar veislur.
Szymon er fæddur í Póllandi
en kom til Íslands árið 1984 þeg-
ar hann fékk stöðu annars
konsertmeistara hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Árið undan
hafði hann verið í námi í Bret-
landi.
„Ég held að örlögin hafi rekið
mig til Íslands. Ég skoðaði fjöld-
ann allan af auglýsingum þegar
ég var í Bretlandi en um leið og
ég sá auglýsinguna frá Íslandi
vissi ég að eitthvað myndi ger-
ast,“ segir Szymon. „Það var frá-
bært að koma hingað. Mér fannst
ég vera að kafna og drukkna í
mannfjöldanum í Lundúnum. En
þegar ég kom hingað fannst mér
ég geta andað á ný.“
Szymon er sveitabarn, ólst
upp í litlu þorpi rétt utan við
Varsjá. Hann segist eiga margar
góðar minningar frá uppvaxtar-
árunum sem erfitt er að rifja upp
í stuttu máli.
Szymon reynir að heimsækja
heimaland sitt eins oft og mögu-
legt er, fer í það minnsta einu
sinni á ári. „Ég fer þangað nú um
jólin. Fyrst kem ég við í Kaup-
mannahöfn og heimsæki börnin
mín,“ segir afmælisbarnið en
hann á fjögur börn, þar af eina
stjúpdóttur.
Foreldrar Szymons eru báðir
á lífi og systir hans býr í Póllandi
ásamt fjölskyldu sinni.
Szymon starfaði sem annar
konsertmeistari í 16 ár en tók sér
þá eins árs frí. Meðfram vinn-
unni semur hann tónlist. Hann
segist kunna vel við sig í Sinfón-
íuhljómsveitinni. „Þetta er fyrir-
myndarhljómsveit.“
Aðspurður hvort hann ætli að
búa hér á landi það sem eftir er
sagði Szymon: „Ekki veit ég ann-
að.“
kristjan@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR Ólafur
Sveinsson kvikmyndagerðarmaður
frumsýndi heimildarmyndina
Hlemmur í Háskólabíói í síðustu
viku. Í myndinni er fylgst með fólki
sem eyðir hluta af sínu daglega lífi
á stoppistöðinni við Hlemm.
Ólafur er uppalinn í Hafnarfirði
og í Hlíð í Gnúpverjahreppi, þar
sem hann var í sveit í sautján sum-
ur. Hann gekk í Öldutúnsskóla og
Flensborg en síðan lá leiðin í bók-
menntafræði og heimspeki í Há-
skóla Íslands. Ólafur eyddi drjúg-
um tíma í leiklist á námsárunum.
„Ég var annar af stjórnendum Stúd-
entaleikhússins þegar það var upp
á sitt besta, ásamt Andrési Sigur-
vinssyni,“ segir Ólafur. Á þeim
tíma gerði hann einnig nokkrar til-
raunir til að verða rithöfundur sem
gengu ekki alveg upp að hans eigin
dómi. „Ég ákvað því að söðla um og
fór að læra kvikmyndagerð í
Berlín.“
Ólafur fluttist til Berlínar árið
1988 en áður en hann hellti sér út í
kvikmyndirnar þurfti hann að læra
málið betur.
„Ég komst að því mér til mikill-
ar undrunar að það eru fjögur föll í
þýsku,“ segir Ólafur og hlær, minn-
ugur þýskukennslunnar og stúd-
entsprófsins góða.
Áhugi Ólafs á kvikmyndagerð
kviknaði frekar seint. Hann segir
fólk á hans aldri hafa alist upp við
útvarpsleikrit og bókmenntir frek-
ar en kvikmyndir.
„Áhuginn kviknaði á kvik-
myndahátíðunum í kringum 1975
og þegar Fjalakötturinn var. Þá sá
ég að kvikmyndaformið bauð upp á
miklu meira en þær amerísku
myndir sem voru og eru í bíó.“
Aðspurður hvernig gangi að
starfa sem kvikmyndagerðamaður
á Íslandi og í Berlín sagði Ólafur:
„Ég er að minnsta kosti skuldlaus í
augnablikinu. Maður þarf að hafa
ansi mikið fyrir hlutunum en það
gengur alveg.“
kristjan@frettabladid.is
Hlemmur, heimildarmynd Ólafs Sveins-
sonar, er nú sýnd í Háskólabíói. Ólafur er
Hafnfirðingur sem ákvað að læra kvik-
myndagerð eftir misheppnaðar tilraunir
til að verða rithöfundur.
Persónan
Fékk seint áhuga á kvikmyndagerð
SZYMON KURAN
Segist kunna vel við sig á Íslandi. Hann spilar með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hann
segir vera fyrirmyndarsveit.
JARÐARFARIR
13.30 Sigríður Jóhannesdóttir, frá
Seyðisfirði, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
15.00 Helga Sveinsdóttir, frá Kotvelli,
Miðvangi 8, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Víðistaðakirkju.
ANDLÁT
Steingrímur Friðfinnsson, Byggðarenda
6, Reykjavík, lést 13 desember.
Jenný Lúðvíksdóttir lést 13. desember.
Erlendur Einarsson, Bústaðavegi 77,
Reykjavík, lést 12. desember.
Helga Theodórsdóttir, Felli, Skipholti
21, Reykjavík, lést 11. desember.
Margrét Sigurðardóttir, Álfheimum 42,
Reykjavík, lést 10. desember.
Brynjólfur Kristinsson, frá Harðangri,
lést 9. desember.
Lovísa Jóhannsdóttir, Stýrimannastíg
13, Reykjavík, lést 7. desember.
Ragnar Steindór Jensson, Skeljagranda
5, Reykjavík, lést 7. desember.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Vinstri grænir eru ekki aðeins grænir
öðrum megin.
Leiðrétting
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Með veðurstöðinni spáir þú
sjálfur í veðrið. Veðurstöðin,
sem er dönsk hönnun frá Jacob
Jensen, samanstendur af eining-
um sem hver og einn getur rað-
að saman eftir því hvaða mæli-
tæki nýtast honum best. Í veður-
stöðina er hægt að fá rakamæli,
loftvog, hitamæli úti og inni,
þráðlaust, klukku og vekjara og
kostar hver eining frá 5.100 kr.
Útihitamælir með þráðlausum
skynjara kr. 9.400.
Gull-úrið
Axel Eiríksson
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
Sími 587 4100
MJÓDDINNI
Nýtt - Jacob Jensen hönnun - Nýtt
ÓLAFUR SVEINSSON
Ólafur lærði kvikmyndagerð í DFFB-skólan-
um í Berlín, sem er þýska kvikmynda- og
sjónvarpsakademían. Hann er að mestum
hluta búsettur í Þýskalandi. Hann á sam-
býliskonu og eitt barn frá fyrra sambandi.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
11,9 milljarða króna.
Tólf ára fangelsi.
Carterpuri.
Lóðrétt: 1 hluti, 2 æviskeið, 3 nes, 4 háðkveðskapur, 5 hagnað, 6 strik, 7 út-
vega, 8 veiddi, 11 hundar, 14 kæpa, 16 vellíðunar, 18 trés, 20 smeygja, 21 hrell-
ir, 23 gljálausra, 26 svalaði, 28 stórþorskur, 30 kyrrðin, 31 væta, 33 trúarbrögð.
LÁRÉTT:
1 gustar,
4 svikula,
9 áreiðanleg,
10 kraftur,
12 ötula,
13 leiðslum,
15 fisk,
17 nabbi,
19 óvild,
20 skraut,
22 búfé,
24 þræll,
25 hrúga,
27 öskra,
29 ákafrar,
32 úrgangur,
34 hjara,
35 eldisskepnu,
36 þáttur,
37 snáði.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 hvol, 4 stegla, 9 ristill, 10 líkn, 12 efli, 13
krangi, 15 atti, 17 tagl, 19 rís, 20 aftur, 22 ærast, 24 fár, 25 pera, 27 gröf, 29
raumar, 32 plan, 34 senu, 35 páraðir, 36 gaurar, 37 rifa. Lóðrétt: 1 hólk, 2 orki,
3 linntu, 4 steig, 6 ella, 7 glitra, 8 angist, 11 írafár, 14 garp, 16 tískan, 20 afgang,
21 tröppu, 23 rausir, 26 ernar, 28 flár, 30 meri, 31 runa, 33 ara.
Innan úr Sjálf-stæðisflokkn-
um berast þær
fréttir að stig-
vaxandi ótti sé
við að Vilhjálm-
ur Egilsson taki
ekki sönsum og
sé kominn á
fremsta hlunn
með að undirbúa sérframboð í
Norðvesturkjördæmi. Maður hefur
gengið undir manns hönd til að
friða Vilhjálm en ekkert gengur.
Sitt sýnist hverjum um möguleika
hans á að ná kjöri í sérframboði en
sjálfur mun hann vera þeirrar
skoðunar að hann eigi mikla mögu-
leika á þingsæti.
Það hefur vakið nokkra athygli íþingsölum að ýmsir úr innsta
valdakjarna Sjálfstæðisflokksins
láta Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar-
ráðherra pirra sig. Þetta kom skýrt
fram þegar Valgerður þúaði Hall-
dór Blöndal þingforseta úr ræðu-
stól. Mikill bjölluhljómur hlaust af
þegar Halldór, reiður og þrútinn,
setti ofan í við Valgerði ráðherra. Í
hita leiksins gleymdi þingforsetinn
núverandi embætti sínu og sagði
með þunga að það ætti að ávarpa
ráðherra með öðrum hætti. Svo sá
hann að sér og leiðrétti sig með því
að hann ætti við þingforseta.
FÓLK Í FRÉTTUM
FÓLK Í FRÉTTUM
Kona kemur að tollhliðinu meðátta börn í eftirdragi. Toll-
vörðurinn tekur hana afsíðis og
spyr hana hvort hún eigi öll þessi
börn. Hún andvarpar og kinkar
kolli. Tollvörðurinn byrjar síðan
að yfirheyra konuna og spyr hana
hvort hún hafi í fórum sínum ein-
hver vopn, sprengiefni eða ólög-
leg lyf. „Nei,“ segir hún, „ef ég
ætti einhvern slíkan hlut væri ég
löngu búin að nota hann.“ ■
KROSSGÁTA