Fréttablaðið - 16.12.2002, Side 48
í Húsasmiðjunni
Verklegar jólagjafir
Bora & bitasett - 112 STK
Verð áður 6.337 kr.
Jólaverð 3.995 kr.
Verkfærakassar
Jólaverð frá 599 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
19
68
2
1
2/
20
02
Allt frá grunni
að góðum jólum
Opið til kl. 18.00 um helgar í Skútuvogi
Tilboð
Tilboð
Á
Jólaverði
Höggborvél DWT SBM - 500W
Verð áður 4.995 kr.
Jólaverð 3.995 kr.
Stingsög CD301 Black & Decker
370W - Verð áður 4.900 kr.
Jólaverð 3.845 kr.
Ryobi borvél & hjólsög
14.4V - Sett, taska & rafhlöður.
Verð áður 26.427 kr.
Jólaverð 19.995 kr.
Hleðsluborvél DWT 12V
Taska, 2 rafhlöður & verkfæri.Verð áður 5.995 kr.
Nú 4.995 kr.
Smíðasvunta - leður
2.990 kr.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Túristatað
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Ílýðveldinu Bongóbongó fyrir suð-vestan sól og norðaustan mána
hefur verið bongóblíða það sem af
er vetri og fátt sem skyggir á lífs-
gleði Bongóbongóbúa, nema hvað
þing landsins fór snemma í jólafrí
þetta árið, en beinar sjónvarpsút-
sendingar frá þingfundum eru eina
innlenda sjónvarpsefnið sem fram-
leitt er í landinu.
MIKILVÆGT frumvarp bíður þess
að þingið komi úr jólafríi. Það er frá
Rauðahægriflokknum og fjallar um
að banna að ofbeldi sé haft fyrir
ungmennum. Rauðihægriflokkurinn
hefur til þessa stuðlað að framförum
í Bongóbongó með því að beita sér
gegn nýjungum, en nú hafa Rauðir-
hægri ákveðið að einskorða sig ekki
lengur við að vera á móti nýjungum
heldur einnig á móti ofbeldi og raf-
magnsframleiðslu.
RAUÐIHÆGRIFLOKKURINN
hyggst loka öllum raforkuverum
landsins á næstu fimm árum og
fjarlægja ummerki um stíflur og
rafmagnslínur innan tíu ára svo að
nóg pláss verði á hálendinu fyrir er-
lenda ferðamenn. Þar sem hvert
þúsund ferðamanna veldur meiri
umhverfisspjöllum en meðalstórt
raforkuver munu ferðamenn í
Bongóbongó klæðast vistvænum
bleyjum svo að þeir saurgi ekki
náttúru landsins. Bleyjurnar verða
síðan endurunnar og pressað úr
þeim svonefnt „túristatað“ til notk-
unar sem eldsneyti.
FYRSTA grein ofbeldisfrumvarps-
ins fjallar um að banna tölvuleiki
sem ungmenni stunda í staðinn fyrir
að fljúgast á. Internetsamband við
umheiminn verður rofið svo ofbeldi
sé ekki dánlódað af Netinu. Sam-
kvæmt annarri grein frumvarpsins
skal fjarlægja allt ofbeldi úr fornrit-
um landsmanna sem snúast að miklu
leyti um vígaferli og blóðsúthelling-
ar. Þriðja greinin bannar að tala um
ofbeldi, styrjaldir og hryðjuverk í
fjölmiðlum. Loks hefur helstu rithöf-
undum landsins verið falið að semja
ofbeldisfríar útgáfur af gömlum æv-
intýrum. Ritnefndin hefur lokið við
ævintýrið um Rauðhettu sem greinir
nú frá lítilli stúlku, Rauðlokku, sem
bjargar soltnum úlfi úr klóm grimm-
ra loðdýrabænda á leið til Rauð-
sokku ömmu sinnar, og í lokin kem-
ur í ljós að úlfurinn er alls ekki úlf-
ur heldur mórauður sauður í úlfs-
feldi, voðamikið krútt, svo að land-
vörðurinn sem er grænmetisæta
ættleiðir hann. ■