Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1850
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
16.900,- m. vsk.
Lausasala
1690,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2019/105 259
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
„Já, vissulega kom valið mér verulega á óvart,
en ég skráði mig til leiks og vonaði það besta,“
segir Þórir Einarsson Long sem útnefndur var
ungur vísindamaður Landspítala á ráðstefnunni
Vísindum á vordögum sem haldin er árlega.
Jón Jóhannes Jónsson kynnti valið fyrir hönd
Vísindaráðs og fær Þórir fjárupphæð til að kynna
rannsókn sína erlendis. „Ég lít á þetta sem hvatn
ingu til að halda áfram rannsóknum.“
Þórir segir rannsóknarstörf fara vel með
klínískri vinnu við lækningarnar. „Þetta er
ákjósanleg leið til að velta hlutum fyrir sér og
hvaða aðferðum er best að beita til að fá sem
réttasta niðurstöðu. Rannsóknarstarfið er líka
svolítið frí frá hefðbundinni klínískri vinnu um
leið og það hjálpar til við að hugsa akademískt
um það sem við læknar gerum í daglegu starfi.“
Þórir stendur á þrítugu og útskrifaðist með
kandidatspróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands
2015. Hann lauk kandídatsári á Landspítala
2016 og stefnir á að verja doktorsritgerð sína
í desember. Titill ritgerðar hans er „Bráður
nýrnaskaði – Nýgengi, áhættuþættir, endurheimt
nýrnastarfsemi og lifun.“
En af hverju lyf og nýru? „Samspil lífeðlis,
lyfja og sjúkdómafræði er heillandi við fagið.
Lífeðlisfræðilegar pælingar eru miklar og bæði
áhugaverðir og skemmtilegir sjúkdómar fylgja
þessu fagi.“
Þórir ákvað á síðasta ári í Menntaskólanum
við Hamrahlíð að fara í læknisfræði. „Mér líkar
vel og sé ekki eftir þessu vali.“
Þórir Einarsson Long er ungur
vísindamaður Landspítala
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Helga heiðurs-
vísinda maður
Landspítala
Helga Jónsdóttir, prófessor í
hjúkrunarfræði við hjúkrunar
fræðideild Háskóla Íslands og
forstöðumaður hjúkrunar langveikra fullorðinna
í samtengdri stöðu á Landspítala, er heiðursvís
indamaður Landspítala 2019. Helga hefur komið
að birtingu ríflega 70 ritrýndra tímaritsgreina og
hafa á þriðja tug hjúkrunarfræðinga lokið meist
araprófi undir hennar leiðsögn.
Kári kjörinn í eina
virtustu akademíuna
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagrein
ingar, hefur verið kjörinn í bandarísku vísinda
akademíuna, National Academy of Sciences
(NAS). Kári er fyrstur Íslendinga inn í hana.
Inngöngu fá menn aðeins eftir tilnefningu kjör
ins meðlims í henni. 100 nýir félagar úr hópi
vísindamanna voru kjörnir í þetta
sinn, þar af 25 erlendir. Kjör í
akademíuna er viðurkenning á
mikilvægu framlagi til vísinda
en NAS er ein virtasta stofnun
bandarísks vísindasamfélags.
Runólfur fær
fimm milljóna
verðlaunafé
Runólfur Pálsson yfirlæknir
hefur hlotið fimm milljóna
króna verðlaun úr Verðlauna
sjóði í læknisfræði og skyld
um greinum. Árni Kristinsson og Þórður
Harðarson, fyrrum prófessorar við Háskóla
Íslands og yfirlæknar við Landspítala, stofnuðu
verðlaunasjóðinn árið 1986. Verðlaunin eru ein
þau stærstu sem veitt eru fyrir vísindastörf hér
á landi.