Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 8
doi.org/10.17992/lbl.2019.06.234
Nýverið birtist í Lancet grein eftir alþjóðlegan vís
indahóp sem kallast EAT1. Hópurinn samanstendur
af 37 vísindamönnum sem hafa á síðustu þremur
árum unnið að því að setja fram vísindaleg gögn og
útreikninga sem sýna hvernig þjóðir heims geta tek
ist á við aðkallandi vandamál tengd fæðuframboði
og mataræði. Hópurinn hefur sett fram viðmið um
mataræði sem styður að:
• til sé nægur matur fyrir jarðarbúa árið 2050
• matvælaframleiðsla skilji eftir sig minna kolefn
isfótspor
• færri glími við lífstílssjúkdóma sem tengjast
mataræði
• fækkun ótímabærra dauðsfalla
Í greininni er farið yfir núverandi stöðu í aðal
atriðum varðandi þessi mál. Meðal þess sem kem
ur fram er að 30% af losun gróðurhúsalofttegunda
og 70% af notkun fersks vatns kemur til vegna
matvælaframleiðslu. Ræktun kjöts krefst mestrar
nýtingar auðlinda (land og vatn) og losar mest af
gróðurhúsalofttegundum borið saman við ræktun
annarra matvæla.
Einnig kemur fram að annars vegar glíma 820
milljónir manna við vannæringu og hins vegar eru
yfir tveir milljarðar manna í ofþyngd eða offitu (lík
amsþyngdarstuðull≥25kg/m2). Á heimsvísu hef ur
tíðnioffitu (líkamsþyngdarstuðull≥30kg/m2) þre
faldast síðan árið 1975. Á Íslandi hefur tíðni offitu
vaxið frá því að vera 8% árið 1990 í 27% árið 2017.
Samhliða þessari þróun hefur tíðni sykursýki af
gerð tvö tvöfaldast á síðustu 30 árum. Samkvæmt
Global Panel on Agriculture and Food Sys tems for
Nutrition vegur óhollt mataræði þyngra sem orsök
lífstílsstengdra sjúkdóma en áfengisneysla, reyk
ingar, vímuefnaneysla og óvarið kynlíf samanlagt².
Krabbamein er nú á dögum algengasta orsök
dauðsfallaó Íslendinga yngri en 75 ára. Vitað er
að hægt er að koma í veg fyrir 40% krabbameina
með lífsstíl, svo sem reglulegri hreyfingu, minni
tóbaksnotkun, hæfilegri líkamsþyngd og hollu og
fjölbreyttu mataræði. Árið 1980 voru kransæðasjúk
dómar langalgengasta dánarorsök hjá yngri en 75
ára. Það breyttist með minni reykingum, breyttu
mataræði og betri meðferðum, þannig að lækkun í
dánartíðni var 80% á 25 árum. Ýmsir áhættuþætt
ir útskýra meira af dánartíðni kransæðasjúkdóma
en krabbameina. Lækkun á dánartíðni kransæða
sjúkdóma mátti að ¾ hlutum rekja til hagstæðra
breytinga á áhættuþáttum en hefði ef til vill orðið
meiri ef aukning í ofþyngd og sykursýki hefði ekki
vegið á móti³. Þarna náðist stórkostlegur árangur í
forvörnum. Það er því til mikils að vinna að bæta og
viðhalda góðu mataræði fyrir góða heilsu.
Höfundar EAT huga að fleiru en heilsu okkar
því þeir reyna að setja fram markmið um mataræði
sem gæti hjálpað við að viðhalda heilsu jarðarinnar,
það er að gera neyslu okkar sjálfbæra þannig að við
göngum ekki um of á gæði jarðar.
EAThópurinn setur fram viðmið um fæðu
mynstur sem kallast „flexitarian“ þar sem reiknað
er út magn fæðutegunda sem styðja við sjálfbærni
í matvælaframleiðslu, minni losun gróðurhúsaloft
tegunda, betri heilsu og fækkun ótímabærra dauðs
falla. Meginhluti fæðunnar ætti að koma úr jurtarík
inu en þó er líka ákveðið svigrúm fyrir dýraafurðir
fyrir þá sem það kjósa. Vísindamenn EAThópsins
sýna fram á að hægt væri að fækka ótímabærum
dauðsföllum og minnka kolefnisspor með breyttu
mataræði(flexitarian)⁴.
Í flexitarianmataræði eru viðmiðin fyrir helstu
próteingjafana eftirfarandi miðað við vikuskammt:
100 g af rauðu kjöti, 200g af alifuglakjöti, 200 g af
fiski, 350 g hnetur, 90 g egg og 525 g baunir/belg
jurtir. Hér sést að aðaláhersla er lögð á að draga úr
neyslu á dýraafurðum en ekki er langt síðan þau
viðmið voru sett um allan heim (þar með talið á Ís
landi) að ekki væri borðað meira en 500 g vikulega af
rauðu kjöti til að minnka líkur á krabbameini í ristli
og endaþarmi. Samkvæmt EATskýrslunni minnkar
þetta magn fimmfalt en eins og áður sagði þá er
kolefnisspor tengt kjötframleiðslu það allra hæsta
borið saman við aðrar fæðutegundir.
Íslensku ráðleggingarnar um mataræði sem koma
frá Embætti landlæknis (EL) miða við að neytt sé
aðmeðaltali 3,5 l afmjólk og/eðamjólkurafurðum
á viku sem er nokkuð meira en í EATskýrslunni
sem leggur til 1,8 l á viku. Varðandi ráðleggingar
um fitugjafa er lögð rík áhersla á ómettaða fitugjafa
úr jurtaríkinu eða 280 ml á viku. Þegar hugað er að
kolvetnagjöfum ganga ráðleggingar frá EL út á að
heilkornavörur séu borðaðar tvisvar á dag (til dæm
is hafrar, rúgur, hýðishrísgrjón, heilhveitipasta) auk
500 gramma af ávöxtum og grænmeti daglega og
er það í samræmi við flexitarianmataræðið. Í þess
um samanburði má að lokum nefna að mælt er með
minni fiskneyslu hjá EAThópnum (samsvarar einni
máltíð á viku) en í íslensku ráðleggingunum. Í því
tilviki mætti mögulega rökstyðja það að halda áfram
að mæla með fiskneyslu 23 sinnum í viku sem að
almáltíð, helst vegna þeirra næringarefna sem finna
Sjálfbært mataræði til bjargar
Jóhanna E.
Torfadóttir
næringar- og lýðheilsu-
fræðingur, PhD. Sér-
fræðingur í fræðslu og
forvörnum hjá Krabba-
meinsfélagi Íslands og
rannsóknarsérfræðingur
við Læknadeild HÍ.
jet@hi.is
Flexitarian diet
to the rescue
Jóhanna: Specialist,
Education & Prevention
department, Icelandic
Cancer Society
Thor: Research specialist,
Centre for Public Health Sci-
ences, University of Iceland
Thor Aspelund
tölfræðingur PhD. Prófess-
or við Miðstöð í lýðheilsu-
vísindum í Læknadeild
Háskóla Íslands og töl-
fræðingur hjá Hjartavernd.
thor@hi.is
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
264 LÆKNAblaðið 2019/105