Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2019/105 305
Einn þeirra sem minntust Bjarna Pálsson
ar landlæknis á Seltjarnarnesi var Ágúst
Einarsson prófessor emeritus og fyrrum
alþingismaður. Hann hefur nýlega gef
ið út bók, allnokkra að vöxtum, sem ber
titilinn Íslensk heilbrigðismál í alþjóð-
legu samhengi og helgar hana minningu
Bjarna.
Ágúst hefur á undanförnum árum
gefið út bækur og ritgerðir um hlutdeild
ýmissa þátta í íslensku hagkerfi og nú er
röðin komin að heilbrigðiskerfinu. Hann
rekur í stuttu máli sögu lækninga, bæði á
Íslandi og í heiminum. Síðan ræðir hann
alþjóðavæðingu og sérstöðu heilbrigðis
mála innan hennar, fjallar um sjúkdóma
og tryggingar, veitendur, þiggjendur og
greiðendur heilbrigðisþjónustu, gæði
þjón ustunnar og tölulegar upplýsingar.
Fjölgun aldraðra, lyfjamál og framfarir
í heilbrigðisþjónustu eru skoðuð og loks
setur hann fram stefnumótun fyrir heil
brigðiskerfið í 18 liðum.
Hér er ekki um ritdóm að ræða en þó
er ljóst við fyrstu sýn að þessi bók gerir
alvarlega tilraun til að mæta þeim skorti
á þekkingu og innsýn sem oftar en ekki
einkennir íslenska umræðu um heilbrigð
ismál. Hér er farið yfir vítt svið og það er
mikið um tölur og súlurit í bókinni. En
þeir sem virkilega vilja setja sig inn í mál
in ættu að finna umtalsverðan efnivið í
umræðuna á þessum 360 blaðsíðum.
brigðiskerfi fátækrar þjóðar sem taldi um
40.000 manns. Til þess hafði hann greini
lega rétta viðhorfið því um hann var sagt
„trautt héldu honum veður, sjór eða úrtöl
ur, er hans var vitjað til veikra“.
Rétt eins og nú til dags þarf heilbrigð
iskerfi á fleiri höndum að halda en lækna
og Bjarna var uppálagt að mennta lækna og
yfirsetukonur, sjá um lyfsölu og sinna sótt
vörnum. Einu starfi vék hann sér þó undan
þegar biskupar landsins fengu þá hugmynd
að mennta presta í læknisverkum. Það tók
Bjarni ekki í mál, hann vildi koma upp vel
lærðum læknum en ekki skottulæknum –
með fullri virðingu fyrir prestum.
Hann átti sér draum um að reisa Land
spítala. „Það tókst honum ekki og hefur
það reyndar vafist fyrir mönnum allar
götur síðan“, svo vitnað sé til orða Ölmu.
Að hefja land og lýð
Auk þess að sinna stjórnun eins og það
heitir nú til dags og kenna fólki var hann
líka vel liðtækur í lækningum. Hann þótti
hafa góða þekkingu á læknisfræði á mæli
kvarða síns tíma og var sagður duglegur,
hjálpfús og ósérhlífinn. Trúmaður var
hann mikill og hafði þann sið þegar hann
kom úr læknisferðum að ganga til kirkju,
læsa að sér og leggjast flatur á gólf hennar,
þakka guði þegar vel gekk en ákalla hann
um hjálp þegar miður gekk.
Eftir að hafa vikið að kulnun og fleiri
þáttum sem hafa áhrif á heilsu nútíma
mannsins sagði Alma: „Bjarni hefur eflaust
skynjað þessa áhrifaþætti heilsu enda var
hann fjölfróður og hafði áhuga á hverju því
sem gæti komið að gagni við að „hefja land
og lýð“. Það hefur án efa verið fyrirmynd
að lýðheilsustarfi okkar tíma.“
Alma D. Möller, 19. landlæknir Íslands, flytur ávarp sitt í Seltjarnarneskirkju.
Fróðlegt yfirlit um íslensk heilbrigðismál gefið út
Ágúst Einarsson flytur erindi sitt um Bjarna Pálsson í Seltjarnarneskirkju 19. maí síðastliðinn.